Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Blaðsíða 90
88
Í kjölfar beiðni ráðherra um sérstakt refsiákvæði um heimilisofbeldi,
kynnti refsiréttarnefnd sér löggjöf hinna Norðurlandanna á þessu sviði
og þróun hennar undanfarin ár. Sú heildstæða skoðun og samanburður
leiddi til þess að norsku ákvæðin urðu fyrirmynd hins íslenska, eins
og áður hefur komið fram.
7.2 Framsetning, efni og inntak
a) Hljóðan ákvæðis og staður í hegningarlögum
Hið nýja refsiákvæði um ofbeldi í nánum samböndum er að finna í
218. gr. b og ákvæði, sem þar var fyrir, var fært til og varð að 218. gr.
c. Ákvæðið hljóðar svo:
218. gr. b
Hver sem endurtekið eða á alvarlegan hátt ógnar lífi, heilsu eða velferð
núverandi eða fyrrverandi maka síns eða sambúðaraðila, niðja síns eða niðja
núverandi eða fyrrverandi maka síns eða sambúðaraðila, áa síns, eða annarra
sem búa með honum á heimili eða eru í hans umsjá, með ofbeldi, hótunum,
frelsissviptingu, nauðung eða á annan hátt, skal sæta fangelsi allt að 6 árum.
Ef brot er stórfellt getur það varðað fangelsi allt að 16 árum. Við mat á
grófleika verknaðar skal sérstaklega líta til þess hvort þolandi hafi beðið
stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlotist af. Enn fremur ber að líta til
þess hvort brot hafi verið framið á sérstaklega sársaukafullan eða meiðandi
hátt, hafi staðið yfir í langan tíma eða hvort gerandi hafi misnotað freklega
yfirburðastöðu sína gagnvart þolanda.
Nýmæli 218. gr. b þótti eiga heima meðal annarra ofbeldisbrota, þ.e.
í XXIII. kafla hegningarlaganna, sem ber heitið Manndráp og líkams
meiðingar. Er það í samræmi við gildandi norska löggjöf og byggist
á sömu sjónarmiðum, þ.e. þeim að refsimörk fyrir ofbeldi í nánum
samböndum eigi að haldast í hendur við refsimörk annarra meiriháttar
líkamsmeiðingarbrota, sem eru mun hærri en fyrir sifskaparbrot og
endurspegla þar af leiðandi alvarleika brotanna.
b) Verknaður
Ákvæði 218. gr. b er fyrst og fremst beint gegn endurteknu ofbeldi.
Þó er ekki útlokað að einstakt brot geti fallið undir ákvæðið ef það
er nægilega alvarlegt. Minniháttar brot, sem ekki ná því stigi, gætu
eftir sem áður varðað við vægari refsiákvæði, eins og t.d. 1. mgr. 217.
gr.45 Í 1. mgr. 218. gr. b eru taldar upp aðferðir sem eiga það sammerkt
45 Sjá skýringar með 4. gr. í greinargerð.