Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 47

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 47
45 sem sveitarfélög veita á grundvelli skipulagslaga, áður eða eftir að beiðst er eignarnáms. Sem dæmi má nefna framkvæmd á grundvelli raforkulaga. Áður en til greina kemur að leita eignarnámsheimildar eða framkvæmdaleyfis er nauðsynlegt að tryggja að framkvæmdin samræmist skipulagi, að fram hafi farið mat á umhverfisáhrifum og eftir atvikum að aflað hafi verið leyfis Orkustofnunar í samræmi við ákvæði laganna. Það má leiða rök að því að eðlilegra sé að ákvörðun hafi verið tekin um eignarnám áður en framkvæmdaleyfi er veitt. Í því sambandi má nefna að öflun eignarnámsheimildar getur reynst mjög tímafrek, en samkvæmt 2. mgr. 15. gr. skipulagslaga fellur fram- kvæmda leyfi úr gildi hefjist framkvæmdir ekki innan tólf mánaða frá útgáfu þess. Samkvæmt því er framkvæmdaleyfi lokahnykkurinn í því ferli sem um ræðir. Þetta er þó ekki vafalaust og má í því sambandi benda á að samkvæmt 15. gr. laga um framkvæmd eignarnáms getur eignar nemi horfið frá fyrirhuguðu eignarnámi ef hann tilkynnir það innan mánaðar frá því að mat á eignarnámsbótum lá fyrir. Að öðrum kosti er hann bundinn við eignarnámsákvörðunina.76 Ekki hefur reynt beinlínis á þetta álitaefni í dómaframkvæmd.77 Þessi óvissa kallar ásamt öðru á endurskoðun löggjafar á þessu sviði. c) Eignarnám sem lokaúrræði Það hefur löngum verið viðurkennt að í áskilnaði 2. málsliðar 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrár um almenningsþörf felist sú krafa að eignar- nám sé lokaúrræði í þeim skilningi að eignarnemi hafi freistað þess að ná samkomulagi við eignarnámsþola um kaup eða afnot þeirra eignarréttinda sem eignarnámið beinist að. Sást þessa að nokkru staður í eldri lögum en sú krafa hlýtur jafnframt að vera atviks- bundin hverju sinni og erfitt að setja eina og altæka reglu þar að lútandi. Raunveruleikinn er þó sá að til skamms tíma var krafan um samningsumleitan skilin sem hreint formsatriði. Nokkur straumhvörf urðu í þessum efnum með fyrrnefndum Hrd. 1998, bls. 985 (Arnarnes). Svo sem fram hefur komið hafði þess verið freistað um nokkra hríð að ná samningum um kaup á viðkomandi landi á Arnarnesi án árangurs. Eignarneminn, Garðabær, taldi þær samningsumleitanir fullreyndar. Eignarnámsþolar voru á öndverðri 76 Á þetta ákvæði reyndi í Hrd. 1985, bls. 801 (Nes). 77 Þess má geta að í stjórnsýsluframkvæmd virðist hafa verið talið að unnt sé að taka ákvörðun um eignarnám án þess að framkvæmdaleyfi liggi fyrir, sbr. til dæmis þær framkvæmdir sem fjallað er um í dómum Hæstaréttar frá 12. maí 2016 í málum nr. 511, 512, 513 og 541/2015 (Suðurnesjalína 2).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.