Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 7

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 7
ins og er við öllu búinn. Nú veit ég að tækifærið er í nánd, ef guð og lukk- an leyfa. Laxarnir hlutu að vera bún- ir að sjá agnið. Allt í einu finn ég kyrrð á færinu, þar sem það í fyrra skiftið hafði bor- ist hiklaust áfram með straumnum. Fast og ákveðið lyfti ég stönginni án þess þó að gera það snöggt. Það er eins og rafstraumur berist um færið í stöngina og í gegnum mig allan. Hin lifandi, kvika hreyfing — von og þrá allra laxveiðimanna — kippirnir í færisendanum, segja mér hvað skeð hefir. Ég gæti þess að láta ekki slakna á færinu, því að þá er hætt við að öngullinn missi hald sitt. Ég þykist geta fundið, að „vel standi í“ og vind því örlítið upp á hjólið. Laxinn liggur kyrr, drykklanga stund — slíkt er hátterni „stórlax- anna“. Ég verð að gæta þess, að láta ekki óþolinmæðina buga mig. Nú er bezt að bíða og láta hann byrja leík- inn meðan þreyta þjáir hann ekki. Loksins fer hann af stað — eins og örskot upp strenginn. Ég held nokkuð við hann, en þó með fullri varúð. Þessi sporðhvati lónbúi unir illa „íhaldinu“. Og nú er ballið byrjað fyrir alvöru. Hann stefnir upp miðjan strenginn með feikna hraða, svo að hvín í fær- inu þegar það sníður vatnsborðið. Það smá minkar á hjólinu. Laxinn þræðir álinn og liggur djúpt. Nú finn ég að hann grynnir á sér og spretturinn endar með stökki. Ég legg stöngina flata, svo ekki rifni úr laxinum. Engin hvíld. Önnur rokan tekur þegar í stað við og endar eins og hin fyrri. Þetta er silfurfagur, nýrunninn lax — gríðarstór. Eftir annan sprettinn, sem er öllu lengri en hinn fyrri, leggst hann í strenginn eitt augnablik, en svo af stað á ný og í þriðja sinn lýkur sprett- inum á sama hátt. Svo er löng hvíld. Ég finn að hann leggst djúpt í og hreyfir sig ekki. Sólin hækkar á lofti og skugginn færist æ nær og nær berginu. Þó að ég viti hvað þetta þýð- ir fyrir veiði mína, skeyti ég því engu og hraða á engan hátt leiknum. Gleði mín er takmarkalaus. Þannig líður drykklöng stund. Nú fyrst finn ég örlítið lát. Laxinn leitar nú ekki leng- ur í strenginn, heldur lætur aðeins undan síga straumnum. Þetta er fyrsta tákn þreytunnar. Nú veit ég, að minn tími er kominn, og að frá þessari stundu er ég virkur leiksaðili. En gætilega verður að fara, því að stak- steinótt er í ánni og kletturinn á leið okkar, en óhugsandi að ná laxinum í land ofan við hann. Ég verð því að reyna að ráða ferðinni og að komast á milli klettsins og bergsins, því ella er laxinn glataður. Leikurinn berst nú óðfluga nær hættusvæðinu og er lax- inn orðinn furðulega auðsveipur. Ég get að vísu ekki ráðið ferðum hans, þó að þreyttur sé hann orðinn. Lánið er samt með mér og þetta tekst allt saman vel. Ennþá tekur laxinn smá- spretti, en nú er hann farinn að leggj- ast á hliðina og gapa. Leikslokin eru í nánd. Spölkorn fyrir neðan mig er sandvík, sem grynnkar hægt að landi. Þangað berst nú leikurinn og þar lýk- ur honum. Þetta er 20 punda hrygna — nýrunnin — lúsug. Sólin er nú hátt á lofti og hvergi skuggi á ánni. ÉJti á vaðinu fer æður með ungahóp sinn til sjávar. Veiðibjallan hnitar yf- ir þeim marga hringi, unz hún steypir sér niður og stelur einum úr hópnum. Það eru fleiri á veiðum í dag við Laxá en ég. 41

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.