Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Blaðsíða 26
Alex,andra — Peter Ross — Butcher
— Bloody Butcher — Grouse & Claret
— Mallard & Claret — Black Doctor
— Silver Doctor — Wilkinson — Blue
Charm. — Athuga skal að stækka flug-
una eftir því sem straumurinn er meiri,
og ef dimmt er yfir, og eins minnka
flugustærðina í björtu og straumlitlu
vatni, einnig getur maður reynt að haf.a
bjarta og dökka flugu á sama flugu-
strengnum.
Þegar fiskað er í straumlausu vatni,
er venjulegt að hafa minnst tvær en
oftast þrjár flugur á sama flugutaumn-
um og eru það stærðirnar no. 10, 11, 12
og 14. Flugunum er raðað þannig á
tauminn, að minnsta flugan er látin vera
á endanum og stærri flugurnar ofar.
Þegar tekið er tillit til kringumstæðna,
hvað veður snertir, er oft ekki sama
hvernig flugutegundunum er raðað á
tauminn og gildir þetta sérstaklega þeg-
ar fiskurinn er tregur að taka. Ég ætla
að skrifa hér niður nokkrar samsetn-
ingar, sem ég hef reynt í Elliðavatni, en
mætti þó reyna víðar ipieð góðum ár-
angri. Til eru þó margar uppskriftir
af slíkum samsetningum, sem hægt er
að ná upp úr enskum veiðibókum.
Endafluga
Alexandra
Grouse & Claret
Rockstaðs Speciale
Peter Ross
Thunder & Ligh
Black Doctor
Alexandra
Miðfluga
Bloody Butcher
Teal & Red
Greenwells Glory
Teal & Claret
Teal & Yellow
Mallard & Silver
Col. Downmann
Efstafluga
Heckham & Red
Kingfisher Butcher
Bloody Butcher
Gold Butcher
Kingfisher Butcher
Butcher
Heckham & Green
þegar heitt er í veðri
og sólskin er.
í rigningu og þegar
alskýjað er.
Þó hér séu taldar nokkuð margar teg-
undir, er ekki nauðsynlegt að hafa þær
allar, þó .alltaf sé gaman að eiga gott
úrval af flugum, en margir erú það sem
hafa í fluguboxinu 8—10 tegundir, en
hverja tegund í sem flestum stærðum,
og er það að mínu áliti afar hyggilegt.
Svo eru margir sem hafa óbifandi trú á
einhverri sérstakri flugutegund og nota
hana þá undir hvaða kringumstæðum
sem er, en það getur oftverið gott að
skipta um flugutegundir og prófa sem
flestar af þeim, ef fiskurinn er tregur
að taka.
Að endingu vil ég benda tilvonandi
fluguveiðimönnum á, að taka ílugu-
tauminn úr boxinu ,að aflokinni veiði-
ferð og láta hann þorna og einnig að
geyma aldrei flugutauminn í girnisbox-
inu með áhnýttum flugum, það eyði-
leggur flugutauminn og fluguna.
/. E.
Rafskinna
— „gengur“
tv/svar á ári
60