Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Blaðsíða 8
Gunnar
Bachmann:
KORPÚLFSSTAÐAÁ
Eins og stangveiðimönnura bæjar-
ins er kunnugt, gjörðust þau tíðindi í
byrjun veiðitímans, að fjórir veiðifé-
lagar gjörðu 15 ára veiðisamning um
stangveiði í Korpu. Margir hristu höf-
uðið og töldu þetta mesta óráð. En
það er nú oft svo, að „margur leitar
langt yfir skamt“ — og svo er það um
veiðimennina stundum. En enginn
skyldi halda að langt ferðalag með
tilheyrandi útgjöldum væri trygging
fyrir góðri veiði. Og sannast þetta með
Korpu.
Veiðin þar efra hefir gengið öllum
vonum framar, og það svo, að kunn-
ugir telja hana þola samanburð við
nærtækar veiðiár. Veiðimennirnir hafa
haft mikla ánægju af ferðum sínum
þangað, — og víst mun það vera sjald-
an að þeir hafi komið heim öngulsár-
ir. Stærð laxanna almennt hefir verið
að jafnaði 6—7 pund og verulega hef-
ir fiskast af sjóbirting.
Veiðikofi var byggður við ána strax
í byrjun veiðitímans og vörður hefir
verið við ána allan veiðitímann, sem
trúlega hefir gætt starfa síns. Hér er
ekki rúm til að skýra frá öllum þeim
umbótum er fyrirhugaðar eru til stór-
bóta á allri aðstöðu við veiðarnar
framvegis, svo að þær aðgerðir er fyrir-
hugaðar eru á sjálfri ánni. Þó má geta
þess, að 30.000 laxaseiði voru sett í
ána þegar í vor og verður því haldið
áfram framvegis .
Þeir, sem með þessi mál fara þykj-
ast hafa nokkra þekking um ræktun á
veiðiám, svo því má treysta, að allt
verði gjört Korpu til viðgangs. Sjálfir
erum við ekki í vafa um það, að þessa
litlu laxveiðiá má gjöra prýðilega góða
og munu allir stangveiðimennirnir
gjöra sitt til að svo megi verða.
Þessir laxveiðimenn stunduðu veið-
ar í ánni í sumar:
Sunnudagur:
Guðjón Ó. Guðjónsson
Kjartan Lárusson
Jónas Andrésson
Jón Leví
Mánudagur:
Hersveinn Þorsteinsson
Vilhjálmur Björnsson
Guðbjarni Guðmundsson
Þorkell Ingvarsson
Þriðjudagur:
Ágúst Hinriksson
Magnús Stefánsson
Friðrik Þorsteinsson
Emil Rokstad
Miðvikudagur:
Gunnar Smith
Kr. G. Gíslason
Oddur Jónsson
Baldvin Dungal
42