Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Blaðsíða 13
Gunnar
Bachmann:
LAXAFLVGAN
— og notkuti hennar
Það eru tiltölulega fá ár síðan að
stangveiðimenn almennt hér á landi
byrjuðu að fiska lax og silung á flugu.
Og enn gjöra menn sér oflítið f,ar um að
kynnast þeirri veiðiaðferð til nokkurrar
hlýtar. En að fiska á flugu er ekki
vandalaust og útheimtir mikla þekking
á sjálfri aðferðinni. Hinsvegar tel ég
flugufiski ánægjulegasta veiðimátann
og oft hinn íengsælasta. Ættu stang-
veiðimenn ,almennt að leggja rækt við
að verða góðir „flugumenn“, því það
myndi margfalda ánægjuna við ána.
Það, sem mestu máli skiptir við not-
kun gerfiflugunnar, er stærð hennar og
litur. Þó er það stærðin, sem meiru máli
skiptir. En hún fer eftir dýpt vatnsins
og hita — einnig eftir lit þess og veður-
fari.
Þegar laxinn „rís“ illa á flugun,a, sem
kallað er, — eða rís nokkrum sinnum án
þess þó að „taka“, er það gefið mál, að
flugan er of stór — eða girnistaumur-
inn of sver. Það er ætíð bezt að byrja að
fiska með eins litlum flugum og tiltæki-
legt þykir st.aðhátta vegna. Einnig ætti
aldrei að nota gildara girni en frekást
þykir nauðsynlegt. Fluguna má stækka
fyrirhafnarlítið ef þurfa þykir. Og ó-
hætt er að treysta því, að lítil fluga
heldur fiski prýðilega vel ef að öllu er
rétt farið. Hinsvegar sekkur lítil fluga
ekki eins vel og stærri öngull ef fiska
þarf djúpt. Vitaskuld fer „hin rétta
stærð“ flugunnar eftir vatnsmagni ár-
innar, sem fiskuð er. Til dæmis að taka,
þá mætti kalla flugustærðina no. 6/0—
5/0 stóra flugu í Soginu, no. 3/0—2/0
meðalstærð og no. 1, 2, o. s. frv., litlar
flugur þar eystra. Hinsvegar væri no.
3/0 allt of stór fluga í Elliðaánum eða
Korpu.
En hvenær á þá að nota stóra flugu
og hvenær litla? Og eftir hvaða reglum
ætti að fara um lit flugunnar?
Nokkuð algildar reglur eru þessar:
Notið stóra flugu:
a. I miklu og skoluðu v,atni.
b. í hvössu, ruddaveðri.
c. 1 djúpu vatni, þar sem botninn
er dökkur.
Notið millistærð:
a. I miðlungs vatni.
b. I hæfilegri birtu, þegar vel
gárar.
Notið litlar og litdaufar flugur:
a. í grunnu, tæru vatni.
b. í andvara — sterkri birtu.
47