Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Blaðsíða 35
Lyfjaskrín veiðimannsms
Það er nauðsynlegt fyrir veiðimenn,
ekki síður en aðra ferðalanga, að
geta veitt félögum sínum og öðrum
einhverja hjálp, ef slys skyldu bera
að höndum. Slíka hjálp er þó varla
hægt að veita, nema eitthvað sé við
höndina af lyfjum og umbúðum og
að menn kunni með það að fara; en
það er ótrúlega lítið, sem komast má
af með til þess að geta veitt þá bráða-
birgðahjálp, sem oftast er mest þörf-
in íyrir á slíkum ferðalögum.
Lyfjaskrínið, sem þið sjáið hér á
myndinni, er aðeins 15x12 cm. að
stærð, svo ekki fer mikið fyrir því
í farangrinum, en þó er í því allt það
helzta, sem þér þurfið á að halda af
umbúðum og lyfjum. Þessi lyfjaskrín
kosta 10 krónur hér í lyfjabúðum,
með eftirfarandi innihaldi:
Grisjubindi, 2 stk. 5 cm. breið.
Grisjubindi, 1 stk. 8 cm. breitt
Bómullarbindi, 1 stk. 8 cm. breitt.
Bómull, 1 böggull 10 gr.
Skyndiplástrar með grisju, 2 stk.
Heftiplástrar 1 rl. 2 cm.. br.
Lásnælur, 1 askja.
Gult vasilín. 1 tb.
Rivanolupplausn, 20 gr.
Asperin, 20 töflur.
Vismuttölur 12 stk.
Kamfórudropar 20 gr.
Verk og vindeyðandi dropar 20 gr.
Þótt allt þetta sé komið í skrínið,
er ennþá rúm í því, ef menn t. d.
óskuðu eftir að hafa með sér fleiri
grisjubindi, eða annað, sem þeim
fyndist vanta.
Nú skal það nánar athugað, hvernig
nota á þetta innihald lyfjaskrínsins.
Ef menn hafa skorið sig eða rifið
sig illa, t. d. á öngli, er sjálfsagt að
ftreinsa strax sárið. Er þá bðmullar-
hnoðri vættur í Rivanolupplausninni og
sárið þvegið úr því, eða dálitlu af
vökvanum er helt yfir sárið, en síðan
bundið um með grisjubindi. Mjórri
bindin (5 cm. br.) eru notuð ef sárið
er á fingrum, en sé það annarsstaðar
á líkamanum, eru breiðari bindin not-
uð. Rivanol er mjög sótthreinsand'i
vökvi, sem ekkert svíður undan.
Sé um litla skeinu eða stungusár
að ræða, þarf ekki að búa um það
með grisjubindi, heldur nægir að skera
ögn af skyndiplástrinum (Lomaplast)
og festa honum yfir meiðslin, eftir að
búið er að hreinsa þau með rivanol.
Gætið ávallt hins fyllsta hreinlætis
þegar þér búið um sár, og snertið t.
d. aldrei þann hluta umbúðanna, sem
lagður er næst sárinu.
Bómullarbindið, sem í skríninu er,
á ekki að nota til þess að binda um
69