Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 10

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 10
frá Miðdal: Guðmundur Einarsson „VIÐ FJALLAVÖTNIN“ EGAR veiðimenn hittast er oftast talað um „þá stóru“, löng köst, og beztu árnar. Sumir unnendur íþróttarinnar vita þó, að metin eru miðuð við hraða, tíma og löngun til að yfirbjóða. Þeir, sem háværastar sögur segja, bera líka hóg- væra þrá í brjósti, er minnir á hrein- ustu og ljúfustu endurminningarnar. Enduróma frá bláum heiðarvötnum, þar sem hávellan syngur og hugurinn leitar fjarlægðarinnar með vængja- blakti svananna, er fljúga til heiðar- vatnanna, nýleystra úr fjötrum vetrar- íss. Við strauma stóru veiðiánna leitar veiðimaðurinn að hinu mikla, sjald- gæfa tækifæri til að berjast við sterk- an fisk í þungum strengjum, vaðandi Við veiðum í soðið. á hæpum brotum. — Það er áhættan og hið óvænta, leit að sterkari leik á taflborði lífsins. Við heiðarvötnin ríkir hið þögla við- horf, fjarri feitu dagblaðaletri og són símabjöllunnar. Þar er hægt að vaða í volgum sandinum, berfættur, og hlusta á raddir náttúrunnar, án hjá- róma hljóma. Þeir, sem þreyttu kapp- hlaup við hinn ósigrandi tíma, sjá allt í einu, að dagurinn er nógu langur, ekki þarf að hlaupa, að óþarft er að skamm- ast, og það sem mest er um vert: Mað- ur getur gleymt tímanum og orðið hamingjusamur. Veiðimaðurinn hættir að bölva klaufaskap sínum, þótt „einn stór“ sleppi, því nú er hann að leika sér. Hvað á hann að gera við mikla veiði? Á vatnsbakkanum stendur tjaldið; vorgolan leikur við þunnt línið og kippir í stagina. Þetta er húsið þitt. Þarna er allt, er þú þarfnast. Hafðu það ,ekki meira. Þú munt sjá, að því meira sem þú dregst með — því meira ófrelsi — því meiri skyldur. Kviðdregnir gæðingar vaða döggvott grasið í dældunum við vatnið. Úti á mýrarflóanum vaggar gæsamamma með unga sína, en krían vippar sér á milll sandhólanna við ós- inn. —■ 44

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.