Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 12

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 12
Veiðifélagið Fluga Sæmundur Stefánsson: Árið 1938 var stofnað fiskiræktar- og veiðifélag í Árnessýslu, og fékk fé- lagið umráðarétt yfir allri neta- og stangaveiði í fiskihverfi ölfusár og Hvítár. Ákvað fétagið að taka í sínar hendur alla netaveiði, en leigja aftur á móti stangaveiðina út í einu lagi. Varð þessi ákvörðun félagsins til þess, að nokkrir stangveiðimenn, er áður höfðu veiðirétt í helztu bergvatns- ánum, svo sem Soginu, Brúará og Stóru- Laxá, og nokkrir menn aðrir, alls 19, stofnuðu Veiðifélagið Flugu í þeim tilg.angi, „.... að taka á leigu allar ár og vötn í vatnasvæði Hvítár og Ölfusár ...“, eins og það er orðað í 2. gr. félagslaganna. — Félagið var stofnað 11. maí 1938. Komu fram ein- dregnar óskir um að þeir félagar, sem áður höfðu haft vissa staði á leigu, fengju að halda þeim áfram, og var þetta eitt af grundvallarreglum félags- ins. Enda segir svo í 11. gr. félagslag- anna: „Hverjum félagsmanni er út- hlutaður veiðistaður þar, sem hann einn hefir umráðarétt yfir ...“ Veiðifélaginu Flugu tókst að ná leigusamningum um umgetið vatna- svæði, og hefir haft það á leigu síðan. Með þessum samningi voru takmarkaðar fyrirstöður og hin óhæfilega mikla netaveiði, sem áður var rekin og fór vaxandi með ári hverju, svo að jafn- vel var bein hætta á því, að laxstofn- inn yrði algjörlega eyðilagður á stutt- um tíma. — Þessar takmarkanir voru einnig í samræmi við stefnuskrá fiski- ræktar- og veiðifélagsins, er auk þess lagði nú meira kapp á að koma laxa- klaki í betra horf og einnig að útrýma sel, er alltaf sækir fast eftir laxinum upp í Ölfusá. En strax á fyrsta ári varð þó sú breyt- ing frá því, sem gert var ráð fyrir í framangreindum samningum, að gefin voru út bráðabirgðalög, er heimiluðu netaveiði við Selfoss í ölfusá, þannig að ekki þurfti að taka upp net hinn lög- boðna friðunartíma, 60 stundir í viku, og var heimild þessi þá þegar notuð og hefir svo verið öll þrj ú undanfarin sum- ur. Auk þess reis upp ágreiningur inn- an fiskiræktar- og veiðifélagsins, sem lauk þannig, að félagið var dæmt ólög- lega stofnað, og annað félag stofnað í þess stað, með svipaðri stefnuskrá og fyrirkomuiagi og hið fyrra, nema hvað öll silungsveiði var aftur gefin í hendur landeigenda. Enda þótt veiðifélagið Fluga ráði litlu um þær ráðstafanir, er gerðar hafa ver- ið eða gerðar kunna að verða í sambandi við fiskiræktun og tilhögun um veiði í Hvítá og Ölfusá, þá telur félagið sig þó hafa ástæðu til afskipta um þau mál, og þá sérstaklega um það, sem miðar að aukningu laxstofnsins og því, að lax- göngur í bergvatnsárnar séu ekki hindr- aðar um of. Stjórn Veiðifélagsins Flugu skipa nú þessir: Sæmundur Stefánsson, Runólf- ur Kjartansson og Guðmundur Ein- arsson. 46

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.