Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 14
c. Er fiskað er yfir ljósum botni — í logni. Það þarf að nota stærri flugu, þess kaldara sem vatnið er, og þá þarf að fiska hægar og dýpra. Jafnvel í grunnu, tæru vatni þarf að nota stærri flugu að vori og hausti — en um hásumarið. I stöðuvötnum þeim, sem laxgeng eru, ætti ekki að nota stærri flugur en no. 2 og víðast væru no. 5—8 réttu stærð- irnar. Þar sem litur flugunnar hefir mikið að segja, eins og áður er drepið á, má gefa nokkrar bendingar um val hans. Og nokkuð er sú regla algild, að nota ljósar, silfraðar flugur í björtu veðri, en dökkar flugur í dumbung. Nefni ég hér nokkrar flugur er reyn- ast munu vel. 1 björtu veðri: Dusty miller Silver doctor Silver grey Mar Lodge Torrish I hæfilegri birtu: Jock Scott (ágæt í miklum straum) Gordon Durham Ranger í dumbungsveðri: Black doctor Thunder and lightning Lady Caroline Claret and Jay. 1 skoluðu vaíni er gott að nota silf aðar flugur og má þá stækka þær ,að mun: Silver Wilkinson Dusty miller Silver grey. Þetta er aðeins uppástunga um flugu- nöfnin og munu veiðimenn hér ekki sam- mála. Sérhver veiðimaður hefir sína „drápsflugu" og fiskar vitanlega ætíð bezt á hana, þótt komið geti fyrir, að að jafnvel hún bregðist! Til skilningsauka um notkun litanna ættu menn að hafa hugfast og setja á sig tvær eftirfarandi kenningar: 1. Reynið flugur, sem að lit eru í móUetning við lit botnsins umhverfis. a. Ef fiskað er yfir brúnleitum eð,a dökkum botni, mætti reyna ljósleita flugu, t. d. Torrish. b. Þar sem grænt slí er umhverfis í botni, mætti reyna litdaufar flugur, t. d. Jock Scott. c. f skoluðu vatni er oft gott að nota svartar flugur, t. d. Black doctor. Hér er hugmyndin sú, að nota flugur í þeim litum er laxinn ætti að sjá vel, þar eð litur flugunnar er í mótsetning við umhverfið. 2. Reynið flugur, sem að lit eru sem samlitastar lit botnsins umhverfis. a. Ef botninn er brúnleitur, mætti reyna brúna flugu, t. d. March brown. b. Þar sem mikið grænt slí er umhverf- is, mætti reyna grænleita flugu, t. d. Green Highlander. c. f skolleitu vatni væri Claret and mallard reynandi. d. Ef botninn er dökkur og gríttur væri sennilega gott að reyna Black doctor. Þess má geta hér, að það er staðfest reynsla stangveiðimanna, að fluga, sem gefst vel í einum hyl árinnar, reynist oft ekki veiðisæl í nærliggjandi hyljum. Því miður er ekki rúm til að skýra þetta fyr- irbrigði frekar að þessu sinni, en aðeins drepið á það, mönnum til viðvörunar. Ef þörf krefur, ættu menn ekki að vera latir á ,að skipta um flugu, þegar flutzt er milli veiðistaða. Að lokum má geta þess, að ekki ættu veiðimenn að telja sér trú um það, að nauðsynlegt sé að hafa meðferðis mjög 48

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.