Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Qupperneq 19

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Qupperneq 19
Ivar Guðmundsson: LAXAKLAK Hér segir frá árangri þeim, sem náðst hefur með klakstöð Rafveitunnar við Elliðaár T T AUSTIÐ 1932 hóf Rafmagnsveita AT Reykjavíkur laxaklak í Elliðaán- um og hefir því verið haldið áfram með ágætum árangri síðan. Er nú alls búið að klekja út um 3,6 milljón laxa- seiða í klakstöð Rafveitunnar við Ell- iðaár. Fyrir nokkru hitti ég Ágúst Guð- mundsson rafstöðvarstjóra að máli og sýndi hann mér þá vinsemd, að sýna mér klakstöðina og gefa mér nokkrar upplýsingar um klakið. Með okkur var Guðjón Jónsson klakstjóri, sem hefir unnið við klakstöðina frá byrjun, og ennfremur starfsmaður við stöðina, Gísli Kristjánsson, sem einnig hefir gætt klaksins frá byrjun. Klakstöðin er spölkorn fyrir ofan rafmagnsstýfluna í Elliðaánum. Þar eru 104 klakkassar, sem geta tekið allt að 1 milljón og 400 þúsund síli. 1 kassana rennur stöðugt Gvendar- brunnavatn, sem er frá 3—4° heitt, en það er talið heppilegasti hiti á vatni til þess að klekja í. Eins og kunnugt er, getur laxinn ekki gengið upp í Elliðaárnar fyrir ofan stýflu. Verður að hjálpa laxinum til þess að komast upp í árnar, og er það gert með þeim hætti, að hann er veiddur í kistu, sem er rétt við raf- magnsstöðina. Er hann svo tekinn úr kistunni og fluttur upp í árnar. Dæmi eru til þess, að 500 laxar hafa komið í kistuna á einum degi. ÐUR en hrygningartíminn byrjar hjá laxinum, í miðjum nóvember- mánuði til 20. desember, eru veiddir 600—800 laxar í net og geymdir þar til hrygnurnar eru komnar að því að hrygna. Þá taka klakmennirnir þær og handfjatla með höndum fagmannsins, gera einskonar ljósmóðurstörf. Hrygn- an fær sótt og ,,fæðir“ eins og hvert annað dýr, ef svo mætti að orði kom- ast. Þá kemur hlutverk hængsins til greina, og einnig þar aðstoða klak- mennirnir. Þegar laxinn er búinn að hrygna er honum sleppt aftur í vatn. Er hann látinn jafna sig í nokkra daga, en síðan er farið með hann í ,,bíltúr“ niður að árósum, þar sem honum er sleppt. Ekki virðist laxinn kunna neitt illa við þessa meðhöndlan, því oft koma sömu laxarnir fram aftur. Þekkjast þeir bæði á því, að þeir eru merktir, og svo fullyrti Guðjón Jónsson við mig, að hann bókstaflega þekkti svipinn á sömu löxunum aftur, eins og fjármað- ur, sem þekkir hverja einustu kind í hjörð sinni. Hrognin eru nú sett í klakkassana og klakmennirnir verða að bíða þolin- móðir ,eftir að „ungarnir komi úr egg- inu“. Allt á sína þróun; fyrst myndast 53

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.