Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 20

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 20
augu í hrognunum, og smátt og smátt tekur hrognið á sig fisklíki og verður að síli. Hvert síli hefir kviðpoka, og í þessum poka er næring til 6—8 vikna. En stundum þarf að fóðra sílin, og er þeim þá gefin mjólk í vatnið. Fitukorn- in í mjólkinni skilja sig frá, og er hið mesta lostæti í maga sílanna. Annars töldu klakmennirnir við Elliðaárnar, að heppilegast væri að sleppa sílunum áður en þau væru búin með nesti sitt úr kviðpokunum. Sílunum er sleppt í árnar þegar kemur fram í júnímánuð, Og dvelja í ánni 2—4 ár. Mestur hluti þeirra í 3 ár. LAKSTÖÐIN við Elliðaárnar hef- ir náð einstaklega góðum ár- angri, og er vafalaust stærsta og full- komnasta klakstöð hér á landi. Dán- artala sílanna áður en þeim er sleppt er frá 5—7 %. Það er fróðlegt og skemmtilegt að koma í klakstöðina við Elliðaárnar og skoða sílin í kössunum. Hundruðum og þúsundum saman synda þau fram og aftur í klakkössunum. Eitt og eitt síli hefir dáið, önnur eru vansköpuð. Sam- vaxin tvö og tvö, eða með einn búk og tvo hausa, o. s. frv. En þetta, dautt og vanskapað er, eins og áður er sagt, ekki nema örlítill hluti af allri mergð- inni, eða 5—7 af hundraði yfir allt tímabilið, sem hrognin og sílin eru í kössunum. Þeir, sem kunnugir eru í Elliðaán- um, telja ekki nokkurn vafa á því, að klakið þar hafi borið mikinn og góð- an árangur, þó mjög sé erfitt um klak í ánum vegna þess hve þær eru heftar. T. d. komust sílin fyrst ekki niður árn- ar vegna stýflunnar, en nú hefir verið bætt úr því. Þá þurrkast, eins og kunn- ugt er, árnar oft svo að segja alveg á sumrum, og má nærri geta, að þá drepst mikið af ungviðinu, sem fjarar undan. Elliðaár-klakhúsið. 54

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.