Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 23

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 23
Kristján Sólmundsson: VETURINN - OG VEIÐITÆKIN Nú þegar veiðitímanum er lokið, er ekki úr vegi að fara nokkrum orðum um hirðingu og geymslu á veiðitækjunum. Og er þá fyrst að minnast á veiðistöng- ina. Eftir sumarnotkunina er stöngin meira og minna rispuð, lakk vantar hér og þar, brotinn lykkja eða laus hólk- ur. Margt smávegis, sem ekki kostar mikið að lagfæra ef gert er nógu fljótt. Er því réttast að yfirfara stöngina vand- lega að liðnum veiðitíma og gera við það, er þörf krefur, því stöngin geymist bet- ur yfir veturinn, ef henni er komið 1 gott lag strax að haustinu. Þegar stöngin er komin í það horf, er hverjum þykir við þurfa, er bezt að geyma hana í pokanum og binda aðeins lauslega um, og láta hana hanga við sléttan vegg. Ef stöng- in er látin standa í horni eða skáp (sem margir ger.a) á hún að standa sem bein- ast. Stöngina má aldrei geyma nálægt mið- stöðvarofni eða öðrum hitagjafa, og auð- vitað ekki heldur á rökum stað. Þó er hitinn hættulegri fyrir stöngina en rak- inn, sé hún vel lakkborin. Bezta geymsl- an verður því þar sem ávallt er nokkur velgja, en fjærri hitagjafanum. Svo er það línan, og þarf hún ekki síður að vera vandlega geymd, og er réttast að taka bana af hjólinu yfir vet- urinn, og um leið og undið er af hjól- inu, þarf að athuga allar samsetningar, og endurbæta þær ef með þarf. Línur er bezt að geyma í rúmgóðri skúffu á hæfilega hlýjum og þurrum stað. Iborin lína fer bezt í lausri hönk, en óíborna línu er bezt að vinda á pappaspjald eða eitthvað þessháttar, því henni er hætt við að fara í flækju ef hún er höfð í lausri hönk. Á línur vill oft koma snurð- ur sem þarf að strjúka af um leið og þær eru látnar á hjólið aftur. Ekki sk.al bera á línufeiti, fyrr en línan er tekin í notkun aftur. Þá er að minnast á girnin. Þau þarf að geyma vel, en verða oft útundan hvað það snertir. Margir veiðimenn nota aldrei girni frá fyrra ári, og k.aupa ný á hverju vori. Slíkt er óþarfi, ef vel er geymt. Þegar búið er að velja úr það sem nýtilegt er af girnunum, er gott að strjúka yfir þá staði, sem trosnað hafa, með strokleðri eða gúmmísnepli, þang- að til trosnið er horfið, vinda síðan í snotr.an hring, og binda smá miða við, þar sem skrifað er á gildleiki og lengd. Vilji maður lita eitthvað af þeim, er rétt að gera það um leið. örúggasta og bezta geymsla fyrir girnin er veski úr geitar- skinni „Chamois", og er æskilegt fyrir hvern veiðimann að eiga slíkt veski. En ef það er ekki fyrir hendi, verður ,að geyma þau í loftþéttum umslögum, eins og þeim, er girnin eru seld í, og láta svo í þykkt brúnt umslag og loka því vand- lega. Þetta, sem hér er nefnt að framan, verður að geymast vandlegast. Þó má 57

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.