Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 24

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Page 24
ekki gleyma hjólinu, flugunum, og öðru smádóti. Hjólið er sjálfsagt að taka í sundur, og þvo alla gamla feiti og olíu í burtu með bensíni, og þurrka vel, því sandur og ryk hefir ávallt komizt í hjól- ið við sumarnotkunina. Einnig þarf að hreinsa burtu seltu eða gráða sem á aluminium hjól vill setjast, — ann.ars tærist málmurinn. Bezt er að smyrja með nýrri feiti strax aftur, svo það gleymist ekki. Tannhjólið með þykkri feiti, en alla aðra parta með góðri maskínuolíu. Þá er að fara yfir flugumar. Taka frá þær, sem ónýtar eru, og gera lista yfir það sem vantar, gera að smáskemmdum, — svo sem lakkbera hausinn og kiippa frá lausa enda eða fest.a þeim. Hreinsa ryð af önglum og skerpa oddinn. Gott er að tæma alveg fluguveskið og strjúka með tusku (sem borin er í línufeiti) und- ir hverja fjöður fyrir sig, því þar vill oft myndast ryð, þegar flugan er látín blaut í veskið. En gæta skal þess að spenr.a ekki fjaðrirnar of mikið upp, því þá missa þær fjaðurmagnið og halda flugunum illa eftir það. Betra er að geyma flugurnar í pappaöskju yfir vet- urinn, en hafa þær í fluguveskinu. Margt fleira mætti nefna, sem þarfn- ast umhirðu og fylgir veiðiskapnum. En þetta verður að nægja að sinni. Það er nú ávallt svo, að þegar vetur- inn gengur í garð, koma önnur áhuga- mál og ýmsar annir, sem gera það að verkum, að lítið er hugsað um veiðiskap- inn og veiðitækin. Og er við því ,að bú- ast. En nokkrar kvöldstundir, sem lagð- ar eru í að athuga og lagfæra áhöldin sín, geta sparað mönnum talsverð út- gjöld og mikið ergelsi. Og skemmtileg er að hugsa til fyrstu veiðiferðar næsta vor, með öll sín veiðiáhöld í góðu lagi. K. S. VEIÐISTEF Þverá þögul streymir, þraukar lax í ál. Dreng um veiði dreymir, döggvar þreyttri sál. Lykkja úr hendi hrekkur, hjóls við r.amman söng. Lax í straumi stekkur, stiklar vatna göng. Hörð eru átök hafin. Hamast taums við mél. Laxinn vanda vafinn, veit sér búið hel. Rásar, stanzar, stekkur, steypist, veltist, slær. Fölur feigðarhlekkur fjörs að brotum hlær. Svignar sviga lævi sókn og máttur þver, senn er enduð ævi, uggi vatnið sker. Loks á land er dreginn laxinn silfurgrár, laminn, virtur, veginn, varpað á gamlan klár. Finnur líinarsson, hókaverzlun Austur- stra'ti, ticfir tekið upp þá nýbreytni, að liafa enskar veiðibækur á boðstólum. Er þetta góð- ur skilningur þessa ötula bóksala á þörf stangveiðimanna fyrir aukinni fræðslu um þessi efni. Er veiðimönnum þetta fagnaðar- aðarefni, — og þakka framtakið. ó8

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.