Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Qupperneq 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Qupperneq 30
JÓN SIVERTSEN: RISS V M LAXVEIÐI OG LAXVEIÐIMENN Lord suffer me to catch a fish so large, that even I, when talking of it aftcrwards may have no cause to lie. (Bæn veiöimannsins). I. FYRSTI LAXINN SEM ÉG VEIDDI Rétt eftir aldamót; ég mun þá hafa verið 11 til 12 ára, v,ar ég sem oftar við veiðar uppi í Hólmsá með fóstra mínum heitnum, Guðmundi Magnússyni lækni og Friðriki kaupmanni Jónssyni. Þeir voru veiðifélagar um langt skeið og vin- ir til dauðadags. Ég var auðvitað hestastrákur þeirra og ífærusveinn. Fiskur var tregur, enda veiðiveður ekki gott. Logn og sólskin. Síðari hluta dags, er við vorum stadd- ir suðvestur af Hólmi, út við hraunjað- arinn, kom maður ríðandi og bað lækn- irinn að koma með sér heim að bænum og líta á pilt, sem dottið hafði af hest- baki og meiðst. Piltur þessi varð síðar frægastur íslenzkra listam,anna í ger- mönskum löndum, Pétur Árni Jónsson, óperusöngvarinn með Carúsó-röddina. Það var því íslands lán, að meiðslin reyndust ekki hættuleg. En það var og lánið mitt, að Pétur datt af baki í þetta sinn. Enn hafði ég aldrei tekið á stöng, sem stöng gæti k.allast, en nú réttir fóstri minn mér stöngina sína og maðkakrús- ina1) og segir mér að reyna á meðan hann sé í sjúkravitjuninni. 1) Krús er líka nafn á bleikjutegund (Salmo alpinus). J. S. 64 Hann er é I Jón Sinert- sen við veiði í „Flóku Ég lét ekki segja mér það tvisvar. Engdi öngulinn. Fleygði færinu. ... Á. ... Vænn silungur. Ég náði honum í land með kurt og pí. Ég beitti aftur. Kastaði. Aftur var hann á. Friðrik kaupmaður, sem dorgaði neðar og sá til aðfara minna, tók nú að ókyrrast. Kom hann til mín og bauð mér að reyna á sínum stað; jú, jú, vér þekkjum það. Nú, en ég varð auðvitað að þiggja boðið. Hitt hefði ekki verið comme il faut. En ekki tók betr.a við fyrir Friðriki; hann, sem var ágætur veiðimaður, verð- ur ekki var, en ég hafði skamma stund dorgað á nýja staðnum, þegar enn er á hjá mér. Og nú er hann vænn. Það var bæði ljóst og leynt. Löng roka og svo stekkur hann. Lax — lax í Hólmsá! Og það 1. september, einum degi eftir lög- skip.aðan iaxveiðitíma. Friðrik sér þetta, leggur frá sér stöngina og kemur mér til hjálpar. Ekki við það komandi. Ó, ekki. Ég næ lax- inum í land. Hann er kræktur í kjapt- vikið, lítið særður. Friðrik vill sleppa laxinum. „Það er 1. september, drengur minn“. Ég held á laxinum fyrir fram- an Friðrik og horfði á hann bænaraug-

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.