Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 32

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 32
PÁLL EINARSSON, ÍSAFIRÐI: UM LAXVEIÐI OG LAXAKLAR VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP 1 bók sinni Fiskarnir, sem dr. Bjarni Sæmundsson gaf út árið 1926, segir á bls. 342, að á Vestfjarðarkjálkanum verði lítið eða ekkert vart við lax. Það verður því að teljast staðreynd að svo hafi verið fram ,að þeim tíma, eða jafn- vel eitthvað lengur. Það verður því að líta svo á, að sá lax, er orðið hefir vart við í ánum við Isa- fjarðardjúp, nú síðari ár, sé til orðinn að mestu fyrir aðgerðir mannanna (klaks). En nú skeður þ,að merkilega hér, að það eru alls ekki þær ár við ísafjarðardjúp, sem k|ak hefur aðal- lega verið sett í, sem mest hefur borið á laxi í undanfarið, eða nú síðan árang- ur af klakinu ætti að fara að koma í ljós. Nú síðustu ár hefur mátt segja að vart hafi verið við lax, í öllum vatns- meiri ám við Djúpið, en mjög lítið veiðst nema aðeins í tveimur, og hafa þær sam- eiginlegan ós. Á ég þar við Langadalsá og Hv.annadalsá. En í þessar ár er mér ekki kunnugt um að nokkurn tíma hafi verið sett klak, en aftur á móti hefur verið sett talsvert mikið í Bolungarvík- ur-ána. Einu sinni í Laugadalsá, og svo í ísafjarðar-ána. I hana hefur verið sett klak, nokkur þúsund á ári, í síðast- liðin fjögur ár, en árangur eðlilega ekki kominn í ljós ennþá. Það munu vera 6—7 ár síðan fyrst var sleppt laxaseið- um í Bolungarvíkur ána, og hefur það verið gert oft síðan í talsvert stórum stíl. En ekki virðist það haf,a aukið lax- inn þar neitt að ráði. Árið 1936 í júlí veiddi ég þar einn 3,5 kg. hæng. og síðan er mér ekki kunnugt um að lax hafi veiðst þar á stöng fyrr en í sumar í ágúst, að maður einn hér veiddi 6 kg. hrygnu. (Eg tel það ekki, þó að Bolvíkingar hafi fengið örfáa laxa í klak á haustin. — I net, sem lagt hefir verið þvert yfir ána. Mín skoðun er þess vegna sú, að lax- inn sem klakið hefur verið út í Bolung- arvík, leiti þangað ekki aftur, heldur fari áfram inn í Djúpið, og í þær ár sem þar eru, og hafa upp á betri skilyrði ^ð bjóða. Þó þetta brjóti í bága við rann- sóknir á lifnaðarháttum laxins yfirleitt, eru ýmsar ástæður fyrir hendi, sem gera þetta eðlilegt, og skal ég skír.a það dálít- ið nánar. Bolungarvíkuráin rennur úr dálitlu vatni, ca. 2 km. frá sjónum. Vatnið er með leirbotni og víðast grunnt, áin stutt og vatnslítil, lygn og grunn, hvergi hyljir svo teljandi sé. Ósinn þröngur og liggur í gegnum sandbakka, sem mynd- ar sandrif langt út í sjó. Brimaldan sem liggur upp í ósinn gerir það að verkum að ósinn er næstum alltaf fullur af sandgruggi. Brim helzt þar oftast vik- um saman á þeim tíma sem laxinn geng- ur helst. Hann leitar þess vegna eðli- lega frá, eftir að hann máske er búinn 60

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.