Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 37

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 37
Og hefur þá mikið að segj.a að byrjað sé með hinn rétta stofn. Það liggur því í augum uppi, að áður en lengra er haldið í því að dreifa seið- unum í árnar, frá þeim fáu klakstöðvum sem hér eru til, verði að fá úr því skorið, hvaða stofnar séu heppilegir til rækt- unar í hverri á fyrir sig og hvað.a stofn- ar væru yfirleitt beztir. Þetta atriði virðist ekki hafa verið athugað neitt af þeim mönnum, sem við klak oj ræktun á laxi hafa fengist, og má víst segj.a að hálfgert fálm sé á flestu er að klaki og laxrækt lítur. Þó að rannsóknir á lax- inum séu stutt komnar, ætti það ekki að skaða þó áhugamenn skyggnist dálítið um, og verður þetta, og fleira í þessu sambandi ef til vill rætt betur seinna. „Veiðimaðurinn“ vill benda mönnum á að kaupa framangreint rit og les.a. — Þangað er margan fróðleik að sækja. Sökum annríkis hefi ég látið af rit- stjórn „Veiðimannsins“. Ég nota þetta tækifæri til ,að þakka hinar góðu við- tökur, se mritið fékk í byrjun og vænti ég að það eigi eftir að veita veiðimönn- um margar ánægju- og fróðleiksstundir í framtíðinni. Útgefanda þakka ég góða samvinnu. ívar Guðmundsson. 71

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.