Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Page 12
S.l. liaust fór stjórn S.V.F.R. upp í Kjós til að rœða við eigendur vatnasvccðisins. Var komið satnan
til kaffidrykkju i Fclagsgarði og tnynd þessi tekin við það tcekifccri.
Guðmundsson ítarlegar rannsóknir á lífs-
skilyrðum fyrir silung í vatninu. Ritaði
Geir Gígja síðan um rannsóknirnar í
sunnudagsblað Vísis 1941, og síðar kom
út ritgerð eftir hann í bókarformi undir
nafninu Kleifarvatn. Niðurstaða rann-
sóknanna varð sú, að lífsskilyrði fyrir
silung væru léleg í vatninu, og segir
Geir í lok ritgerðarinnar, að ólíklegt sé
að Kleifarvatn geti nokkurn tíma orðið
mikið veiðivatn.
Þrátt fyrir þetta hefur Stangaveiðifélag
Hafnarfjarðar nú hafizt handa um fiski-
rækt í vatninu og látið sleppa í það 15000
bleikjuséiðum og 100 fullvöxnum bleikj-
um. Er nú eftir að sjá hver árangurinn
verður af þessari tilraun.
Það væri mjög æskilegt fyrir Hafn-
firðinga að stangveiðifiskur gæti þrifist
í vatninu, sem kalla má að sé rétt við
bæjardyrnar hjá Joeim.
Fiskiræktarmenn og stangveiðinrenn
gleðjast yfir sérhverri tilraun, sem gerð
er til þess að fjölga veiðivötnum og auka
fiskistofninn, og Veiðimaðurinn óskar
Hafnfirðingum góðs árangurs af seiða-
flutningnum í Kleifarvatn.
10 KR. VELTAN.
STJÓRN S.V.F.R. minnir félagsmenn
á 10 kr. veltuna. Munið að bregða fljótt
\ið þegar skorað er á yður og benda á
aðra tvo um leið. Verum allir samtaka
um að láta velta fram á vor!
10
Veiðimaðurinn