Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Page 18

Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Page 18
ekki lengi á. Ég sigraði iljótt. Eitir stutta stund voru þrjár fallegar bleikjur komn- ar á land. Ég lagði þær hlið við lilið og dáðist að fegurð þeirra nokkur augna- blik. Hún var óneitanlega mikil. Þær voru vænar og nýgengnar úr sjó. Ég reyndi aftur, og enn var fast í fiski, en hann lét sér ekki nægja tvær rokur, eins og bleikjurnar, heldur hentist hann upp t'tr vatninu — og sjá, þetta var lax! Litht síðar lá hann við hliðina á hinum fiskunum. Hann var 8 pund. Laxinn er aðalborinn fiskur, sem fangar liugi manna og vekur alls staðar ltrifningu. Ég gekk nú áfram inn með ánni og o o o reyndi á tveim stöðum og fékk ltleikj- ur f þeirn báðum. Ég kom að djúpum hyl, sem þótti mjög gjöfull þegar veitt var með netum. Nú sá ég þar þrjá stór- Laxa, sem lágu í röð á mjög miklu dýpi. Þetta voru þóttafullir fiskar og litu ekki við neinu, sem ég bauð þeim. Ég tók nú alla veiðina, bar liana upp á bakka og sótti síðan hestinn, sem beið mín rólegur og iineggjaði þegar hann sá mig nálgast. Ég fór á bak, valdi góðan stað til þess að komast yfir ána óg skildi svo við fiest og farangur á vesturbakka henn- ar. Næst skyldi reynt við þann hylinn, sem ég hafði mestan áhuga fyrir. Hylur þessi er mjög stór og fallegur og býr yfir mörgum möguleikum. Enn þann dag í dag tei ég þennan hyl með- al fallegustu veiðistaða, sem ég þekki. Veður var nú orðið kyrrt og nokkuð bjart. Ég gekk hægt inn með hylnutn. Víða sást glitta í hvíta ugga bleikjunnar þar sem hún andæfði gegn hægum straumi. En hvað var nú þarna? Stórlax lá þar skammt frá landi. Ég varaðist að styggja þennan lónbúa og fór að öllu varlega. En hvernig sem ég reyndi að fá hann til við ntig, hreyfði hann sig ekki. Hann leit ekki við neinu, sent ég bauð lionum. Þetta var ljóti gikkurinn! Ég labbaði vonsvikinn frá hylnunr góða, reyndi þar ekki meira í bráðina. Ég liélt nú enn lengra inn með ánni, kastaði allvíða og varð var við mikið af bleikju. En flestar litu þær aðeins við beitu minni og sneru svo frá. Veðrið var orðið kyrrt og bjart. í litlum hyl kom þó lax þjótandi og greip beituna hjá mér. Það var 12 punda hrygna, ný- gengin og falleg. (ileðin náði strax liástigi. Ég ætlaði ekki að fara lengra inn með ánni. Nú var bezt að vera rólegur nokkra stund og fá sér bita. Það var ekki ólíklegt að aftur þyngdi í lofti. Tveir laxar og tólf bleikjur voru þeg- ar á landi. Það var sæmilegur afli. Oft hefur lmgurinn hvarflað til þess- arar stundar, og mér er minnisstætt, hvað mér leið vel og fannst allt fagurt o<> n o o gott. Þegar ég liafði setið litla stund og tekið til matarins, kom hundurinn minn þjótandi til nn'n og minnti á að hann væri líka svangur. Þessi hundur var svart- ur með hvítar framlappir og livítan hring um hálsinn. Þetta var stór og fallegur liundur, framúrskarandi þriíinn og vina- legur. Hann var að vanda þurr og hreinn, þó að ég væri búinn að fara yfir margar ár og læki. Hann hafði það fyrir sið, þegar ég reið yfir vatnsföll, að koma hlaupandi og teygja sig upp eftir síðu hestsins. Tók ég þá í annan framfótinn og kippti honum á bak, annaðhvort fyrir framan mig eða aftan. Hann var skemmti 16 Veiðimaðurixn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.