Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Síða 20

Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Síða 20
VIGGÓ JÓNSSON: KUUfcrd í Kjós. LAUGARDAGINN 13. nóvember s.l. fóru upp að Bugðu í Kjós, á vegum S.V.F.R., þeir F.rik Mogensen fiskifræð- ingur, Einar Hannesson frá Veiðimála- skrifstofunni og ofanritaður frá félag- inu, til þess að kreista nokkra laxa, sem geymdir voru í viki í lækjarsitru, sem rennur í Bugðu, skammt fyrir ofan vatna- mót hennar og Dælisár. Laxarnir voru veiddir nokkru áður, með ádráttarneti, en þar sem þeir voru þá ekki komnir nægilega nærri goti, voru þeir geymdir til betri tíma. Var búið rammbyggilega um pollinn og vírnet strengt yfir, til þess að hvorki ránfugl eða minkur kæmist í geymsluna. Til veiði þessarar þurfti auðvitað leyfi viðkomandi ráðuneytis; höfðum við það upp á vasann og sáum dyggilega um að öllum fyrirskipuðum reglum væri fullnægt. Lagt var af stað upp úr hádeginu, og gekk hann á með slydduéljum og var heldur dökkleitur í norðrinu. Það var því eins gott að vera við öllu búinn úr þeirri átt. Þegar í Kjósina kom, var slyddan orðin að hagli og sáum við nú fram á að kuldalegt yrði verkið, enda fengum við að kenna á því. Bugða og Dælisá voru heldur við vöxt og vorum við Einar ekki viðbúnir því. Við fórum því heim að Meðalfelli til þess að biðja Jóhannes Ellertsson, sem gætir Meðal- fellsvatns um veiðitímann, að flytja okk- ur á „traktornum“ yfir Dælisá. Það stóð ekki á pilti og settumst við Einar upp í aftaníkerru, sem fest var við „traktor- inn“, og var nix lagt af stað. Brátt sauð á keipum og leit ég á Einar til þess að vita, hvort hann væri nokkuð liræddur, en ég sá engin slík merki og haikaði éö þá af mér. Ég treysti Jóhannesi og hans ágætu stjórn, enda skilaði hann okkur yfir heilum á húfi. Á meðan á þessu stóð hafði Erik vaðið ána í vöðlum með sínar fötur og var hann kominn á stað- inn þegar við komum þangað. Við sá- um strax að minkurinn hafði gert sig heimakominn við pollinn og étið sig 18 VílÐIMABURXNN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.