Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Side 26
STEFÁN BRYNJÓLFSSON:
1 svefni 09 vöku.
OFT hefur mig dreymt að ég væri
að veiða lax, en alltaf liefur eitthvað
verið öðruvísi í þeim draumum en það
ætti að vera.
Til dæmis hef ég í draumi lent i
bandóðum fiski í fossinum í Flliðaánum.
Eini gallinn var bara sá, að það var allt
reyktur lax!
Öðru sinni í draumi, það var líka í
Elliðaánum, dró ég mjög fallegan lax.
Var ég búinn að landa honum og bera
hann upp á bakkann og er í þann veg-
inn að keyra rotarann í liausinn á fisk-
inum, þegar auminginn neytir liinztu
krafta, lyftir upp höfðinu, horfir út á
voginn með barnslega blíðum augum,
sem tárin runnu úr, og segir: „Mamma.“
I>að er skemmst frá að segja, að ég vikn-
aði og flýtti mér að gefa veslingnum líf.
Svo var það að okkur lenti saman, laxa-
kónginum og mér. Það skeði líka í
draumi. Eg var að veiðum við einhverja
mér óþekkta á. Veiðihúsið stóð á háum
stólpum, eins og þeir hafa surns staðar
í Afríku og víðar. En þarna var það
einungis gert til þess að geta sem bezt
fylgzt með öllum laxagöngum. Við er-
um þarna uppi, ég og bróðir minn þegar
við sjáum boðaföllin af einhverju fer-
líki svona 5 km. neðar í ánni. Vissum
við strax, að þar fór laxakóngurinn. Það
24
væri rangt að segja, að liann liefði synt
upp ána, og var hún þó stór. Hann bók-
staflega óð hana, því að vatnið náði hon-
um rétt upp fyrir kviðuggana. Eg man
j)að síðast, að ég hljóp á móti skepnunni
með mundaða veiðistöng og veit það
næst, að ég vaknaði við öskrin í sjálfum
mér. Hvað okkur fór á milli eða livern-
ig viðureigninni lyktaði, mun ég aldrei
vita.
Svo var j)að í sumar, að mig dreymdi
óttalega ómerkilegan draurn. Mig
dreymdi að ég sæi tvo laxa liggjandi í
grasi, annan nokkuð vænan, en hinn tals-
\ert minni, og sex silunga. Þetta var í
júlí, og tveimur dögum síðar, eða þann
9. júlí ætluðum við bróðir minn og
faðir að hefja veiðar í Bugðu í Kjós.
Höfðum við veiðileyfi þar næstu viku.
A hverju sumri frá því ég fæddist hef
ég dvalizt við Bugðu lengri eða skemmri
tíma. Þegar maður var farinn að geta
gengið var áin helzta áhugaefnið og
keppikeflið og þangað sótti maður eins
og laxinn, eða með álíka áhuga.
Margar skemmtilegar endurminningar
eru frá þeim árum sem öðrum. Það eina
miður skennntilega í þá daga var, að
maður var vanalega háttaður upp í rúm
þegar fór að líða á daginn. Þá voru jressi
tvennu stígvél, sem maður átti, og allt
Veiðimaburinn