Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Blaðsíða 48
hitaða vatnið, en loftstreymið skapar
jafnvægi á bundnum lofttegundum í
vatninu við ráðandi vatnshita og loft-
þrýsting.
Niðurlag.
Klak- og eldisstöðin með núverandi
búnaði getur framleitt 1—1,5 milljónir
kviðpokaseiða á ári, 250—300 þúsund
sumaralin seiði og um 30 þúsund göngu-
seiði. Með því að fjölga eldiskerjum í
eldishúsi og byggja yfir Washington-
þróna með lágreistu þaki má auka fram-
leiðslu á gönguseiðum upp í 60—75 þús-
und á ári.
Stefnt verður að því marki, að ná veru-
legum hluta hvers seiðaárgangs upp í
göngustærð á 19 mánuðum frá því að
klak hefst í nóvember. Þessum árangri
verður ekki náð án uphitunar á klak-
og eldisvatni um 500—1000 gráðudaga.
Leggja verður áherzlu á að stytta klak-
tímann fyrir seiði, sem ala á upp í göngu-
stærð, með upphitun á klakvatni upp í
7—8° c. Þannig að byrjunareldi geti
lrafist í apríl.
Byrjunareldi í litlum eldiskerjum verð-
ur hafið við um 8° vatnshita, en vatns-
liitann má hækka upp í 12—13° á til-
tölulega skömmum tíma, en við þetta
hitastig dafna seiðin bezt. Eftir 3—4
vikur í byrjunareldi eru seiðin flutt yfir
í stærri eldisker, þar sem þeim er haldið
í sumareldi.
í sumareldi, sem er talið frá byrjun
júní til ágústloka, eða það tímabil sem
Elliðaárvatnið er að jafnaði yfir 10° c,
er nauðsynlegt að ná sem örustum þroska
hjá seiðunum með stöðugTÍ fóðrun frá
sjáífvirkum fóðurgjöfum og öru vatns-
streymi um eldiskerin.
Þróttmikil seiði úr sumareldi dafna
sæmilega, þótt eldisvatnið kólni niður í
5—6°, en draga verður úr fóðurgjöf eft-
ir því sem eldisvatnið kólnar og stöðva
liana að mestu eða öllu leyti þegar eldis-
vatnið er undir 4°c.
í lok sumareldis eru seiðin aðgreind
eftir stærð í 2—3 flokka og þeim skipt á
kerin eftir þeirri flokkun. Þegar flakkun
lýkur, má áætla upphitunarþörf á eldis-
vatni til að ná seiðum upp í göngustærð
í maí—mánuði, að loknu vetrareldi. í
sunrum tilfellunr má gera ráð fyrir svo
lrægfara þroska á seiðunr úr sumareldi
fyrsta sumars að ekki svari kostnaði upp-
lritun á eldisvatni til að ná þeinr npp í
göngustærð í lok vetrareldis. Þá er um
tvennt að velja, annaðhvort að sleppa
seiðunum í árnar, eða að halda elcli
þeirra áfram við árvatnshita í vetrareldi,
en ná þeinr upp í göngustærð í sumareldi
annars sumars.
Hér hefur verið drepið á ýms atriði í
uppbyggingu og rekstri klak- og eldis-
stöðvarinnar við Elliðaár. Reksturinn er
að ýmsu leyti á tilraunastigi, en allur
aðbúnaður til eldisins er eftir atvikum
góður og ætti því að skapa skilyrði til
hagstæðs árangurs.
Með endurbótum á tækjum og auknu
eldisrými kemst stöðin í það horf, sem
til var ætlast í upphafi, og full ástæða er
til að binda við hana góðar vonir um
farsæla eflingu á fiskrækt hjá SVFR.
42
Vf.IÐIMAÐURIiXN