Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Qupperneq 13
beinlínis rómantískur núna, farinn að
grýta höfðingjann.
Tíminn leið. Ég gerði tilraun til að vaða
að honum en það var útilokað. Stöngin
spennt til hins ítrasta á ný, fleiri steinar
hurfu úr fjörunni.
Ég fór að velta fyrir mér hvar veiði-
félagar mínir væru. Klukkan var rétt um
11.00 þegar laxinn tók, nú var hún langt
gengin í 14.00.
Stuttu síðar heyrði ég í bíl. Ég leit upp á
veg og á fleygiferð kom keyrandi Sigur-
sveinn, lítandi í allar áttir, greinilega að
leita að mér. En þó ég stæði stutt frá vegin-
um jók hann heldur ferðina þegar hann ók
fram hjá mér og ég sá á eftir honum yfir
brúna á þjóðveginum og taka strikið þaðan
niður eftir.
Það leið drjúg stund. Bíllinn birtist aft-
ur á hendingskasti uppeftir og þegar hann
nálgaðist veifaði ég sem mest ég mátti.
Frændi er með röggsamari ökumönnum.
Jeppinn dró öll hjól, rétt eins og verið væri
að forða árekstri og út kom ökumaðurinn
nánast með hurðina eins og skraut um
hálsinn. Ég rakti fyrir honum atburði og
að hér væri alger pattstaða.
Frændi greip nokkrar steinvölur og í
fyrsta kasti hitti hann greinilega á við-
kvæman stað. Fiskurinn þaut af stað, fyrst
inn í miðja á og síðan lagði hann af stað,
uppeftir! Hann var nú mun nær vestur-
landinu og sást greinilega. Frændi stóð við
hlið mér og þegar hann kom auga á fiskinn
missti hann áttirnar augnablik. Hann tróð
sér fram fyrir mig og stóð nú allt í einu á
milli mín og fisksins. Þar hoppaði hann og
baðaði höndunum í allar áttir og argaði:
„Drengur, þetta er örugglega 30 punda
fiskur!“ Það munaði minnstu að ég missti
stöngina úr höndunum, svo brá mér við
þessa tilkynningu. Sigursveinn hefur
nefnilega verið naskur í gegnum tíðina að
vigta fiska í vatni.
Laxinn strekkti áfram upp stríðan
strenginn. Það kom þó að því að hann gerði
afdrífarík mistök. Hann sneri við og tók
sprettinn niðureftir en áttaði sig ekki á
grynningum rétt þar fyrir neðan. Hann
lenti upp á þeim, strandaði og barðist þar
um, en nú var allt um seinan.
Sigursveinn fleigði sér yfir hann, tók
hann í fangið og bar í land. Leiknum var
lokið. Þremur klukkustundum og fimm
Einkaumj
Fæst i næstu sportvoruverslun
/
Js. i___________c ____________l_________±_________
/ Nýju Trimax
? línurnar eru léttari,
grennri og sterkari.
/ I; ■ *
lUKfdsson & co hf.
í Símar: 24020/11999
VEIÐIMAÐURINN
11