Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 22

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 22
80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 ______________________ENDURHEIMTUAR_______________________ Mynd 2. Hundraðshluti hœnga í smálaxagöngum í Laxeldisstöð rtkisins í Kollafirði. heimtur smálaxa í góðu lagi bæði í stöðinni og í flestum ám landsins. Hlutfall hcenga í göngunni Hlutfall hænga í smálaxagöngunni getur einnig verið mikilvæg vísbending um afkomu laxanna í sjó, a.m.k. á sunnan- og vestanverðu landinu. Mynd 2 sýnir þetta hlutfall í merktum laxi sem gekk í Lax- eldisstöðina í Kollafirði árin 1980-1989. Eins og þar kemur fram er hlutfall hænga einstaklega hátt árin 1984 og 1989. Þetta benti til þess, að hrygnur hefðu tafíst um eitt ár og mundu koma að stærri hluta ári seinna (Mynd 3). Þetta fór eftir að því er varðaði smálaxagönguna 1984 og má því telja líklegt að sama verði upp á teningnum sumarið 1990. Hinsvegar er rétt að benda á að heimtur smálaxa þessi tvö ár voru óvenju rýrar (um 2%). Fjöldi stórlaxa verð- ur því aldrei mjög mikill þó hlutfallið smá- lax/stórlax yrði 50/50 en það er venjulega 85/15. Ekki er ósennilegt að svipuð lögmál séu ríkjandi í veiðiám á Vesturlandi. Jafn- ræði er mun meira milli smálaxa og stór- laxa á norðanverðu landinu, m.a. vegna annarra umhverfísskilyrða, sem ekki þarf að vera samfara rýrum heimtum. Hins- vegar hafa óhagstæð sjávarskilyrði oftar haft áhrif á heimtur á Norðurlandi, eink- um vegna mikilla áhrifa frá og nábýlis við Austur-Grænlandsstrauminn. Heildarmynd vistkerfísins Þær upplýsingar, sem hér hefur verið rætt um, er hægt að setja upp í líkan (Mynd 4), sem sýnir tengsl endurheimta, meðalstærðar hjá smálaxi og kynþroska við 20 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.