Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 23

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 23
Mynd 3. Hlutfall smálaxa og stórlaxa úr merktum seiðahópum í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði. umhverfisþætti og sjávarástand. Líkanið gerir ráð fyrir því að sjávarástand hér við land ákvarðist að stórum hluta af styrk- leika stóru hafstraumanna, sem leika um landið. Austur-Grænlandsstraumurinn er kaldur og næringarsnauður og þegar hans gætir mikið umhverfis landið hefur það neikvæð áhrif á alla lífskeðjuna í sjón- um. Golfstraumurinn er hinsvegar hlýr og næringarríkur straumur, sem hefur já- kvæð áhrif á frumframleiðsluna og fæðu- keðjuna. Golfstraumurinn berst upp með vesturströnd landsins og hans gætir mis- mikið norður fyrir landið með afdrifarík- um áhrifum á vistkerfið á því svæði. Líkanið byggir á því, að laxveiðin í land- inu endurspegli að verulegu leyti umhverf- isþætti, bæði veðurfar og sjávarástand, sem ákvarðist af hlutfallslegum styrkleika haf- straumanna, sem áður er getið. Margir stangaveiðimenn muna eftir lægðinni, sem kom í laxveiði á norðanverðu landinu upp úr 1965 og stóð í fimm ár. Þetta tímabil er oft kallað hafísárin. Annað styttra tímabil kom 1979 og eftirhreytur hafa verið af og til á þessum áratug. Inn á líkanið hafa verið sett ýmis endur- heimtuár í Laxeldisstöðinni í Kollafirði út frá ýmsum atriðum, sem einkennt hafa viðkomandi göngu. Sé litið á líkanið kemur glöggt í ljós, hvað hafbeitin 1984 og 1989 sker sig úr öðrum árum. Eg hygg að flestir stangaveiðimenn sjái, að þetta eru líka lélegustu veiðiárin á þessum áratug ásamt 1980. Með þessu er ekki verið að gefa í skyn, að hafbeitarniðurstöður séu ætíð í takt við laxveiðina. A ýmsum árum í byrjun þessa 21 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.