Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Blaðsíða 26
Laxveiðin 1989
Laxveiðitímabilinu 1989 lauk 20. sept-
ember síðastliðinn. Samkvæmt bráða-
birgðatölum veiddust um 30.000 laxar á
stöng og um 12.000 laxar í net. Alls endur-
heimtust um 50.000 laxar úr hafbeit.
Heildarveiði á laxi á Islandi 1989 var því
um 92.000 laxar.
Laxveiði á stöng 1989 var um 19% minni
en meðalveiði áranna 1974-1988 og 39%
minni en hún var 1988. Stangveiðin nú var
svipuð og hún var 1980 og 1983. Frávik frá
meðalveiði var mismikið eftir landshlut-
um. A Suðvesturlandi var veiðin 15% yfir
meðaltali fyrrnefndra ára. A Vesturlandi,
Vestfjörðum og Norðurlandi eystra var
stangveiðin um 20% undir meðaltali og
36% á Norðurlandi vestra. Veiðin á Aust-
urlandi að Vopnafirði meðtöldum var í
meðallagi, en á Suðurlandi var hún um
10% undir meðaltali.
Tíu aflahæstu árnar í sumar voru:
1. Laxá í Kjós og Bugða 2126 laxar
2. Elliðaár 1763 —
3. Laxá í Aðaldal 1630 —
4. Þverá og Kjarrá 1329 —
5. Grímsá og Tunguá 1200 —
6. Laxá í Leirársveit 1189 —
7. Miðfjarðará 1157 —
8. Laxá í Dölum 1015 —
9. Víðidalsá og Fitjá 920 —
10. Selá í Vopnafirði 910 —
Þess ber að geta að fjöldi stanga í ánum
er mismikill.
Netaveiðin 1989 var um 12.000 laxar,
sem er 30% minna en meðalveiði áranna
1974-1988. Flestir laxar veiddust á Suður-
landi, um 6.200, 5.500 á Vesturlandi og
mun minna í öðrum landshlutum. Neta-
veiði á laxi er mest stunduð í Ölfusá-Hvítá,
Hvítá í Borgarfirði og í Þjórsá.
í hafbeit endurheimtust um 50.000
laxar, sem er það næst mesta frá upphafí,
en 1988 var endurheimtan um 64.000
laxar.
Skilyrði til stangveiði og netaveiði í
byrjun veiðitímabilsins voru erfið vegna
vatnavaxta og töpuðust því allmargir dagar
úr veiði. Af þeim sökum var veiði eitthvað
minni en göngur gáfu tilefni til. Smálaxa-
veiði sumarsins var minni en búist hafði
verið við og var smálaxinn bæði óvenju
smár og gekk seinna í árnar en venjulega.
Endurheimtur í hafbeitarstöðvar voru
mismiklar að fjölda eftir stöðvum, en
endurheimtuhlutfall af slepptum seiðum
var almennt með lægra móti í ár.
Fréttatilkynning
frá Veiðimálastofnun.
24