Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 36

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 36
um 14-15 sm á blautan, strengdan möskva. Hins vegar voru í netum þessum þrír laxar, allir dauðir. Þeir snéru allir trjónunni í átt að Miðfjarðará og hafa trúlega ætlað að heiðra hana með nærveru sinni þetta sumarið. Einhverjir eftirmálar urðu af þessari eftirlitsferð en sökum þess að mál sem útaf þessu kunna að skapast verða hugsanlega rekin sem sakamál, þykir ekki fært að fara nákvæmlega út í þá sálma hér. Aðra ferð má nefna sem veiðiverðir fóru sjóleiðis um Miðfjörð og skal hún hér rak- in en staðamöfnum er auðvitað ekki hægt að gera hér skil. Við Hannes Thorarensen höfðum ákveðið að láta aka okkur með gúmbátinn (varðskipið) langleiðina útá Vatnsnestá og sigla síðan til baka og rannsaka á leiðinni ýmsa netabelgi sem við höfðum áhuga á að vita hverjum tilheyrðu og til hvers væru notaðir. Sem við erum á leiðinni út nesið, sjáum við hvar bátur siglir á firðinum, og áttum við okkur á því að verið er að vitja um net sem vitað er um í sjó þar og eru þar undir því yfírskyni að verið sé að veiða göngusilung. Við ákváðum að sjósetja þar strax varð- skipið og kanna hvemig aflabrögð væm hjá sjómönnum og héldum til fundar við þá. Brá þá svo við að sjómenn fengu skyndi- lega heimþrá og bátur þeirra tók stefnuna beint á næsta land sem var eigi alllangt frá þeim stað sem við vomm á. Beittum við aflvél varðskipsins (öllum 9.9 hestöflum) til hins ítrasta en höfðum ekki roð við hin- um bátnum þannig að sá bátur tók land eftir skamma viðdvöl í skeri sem á leið hans varð. Náðum við landi hjá þeim, sem í bátnum voru, en þeir vom tveir fullorðnir og strákur með þeim. Við kynntum okkur sem veiðiverði og spurðum mennina frétta af aflabrögðum. Annan okkar þekktu þeir reyndar frá fyrri viðskiptum og vissu allt um það að við væmm ekki á skemmtisigl- ingu, þó gott væri veður. Sögðu menn þessir að lítið væri að frétta af aflabrögð- um. Ekkert fengist frá Ægi konungi í sil- unganetin annað en „marglyttur og þari“ eins og annar þeirra komst svo hnyttilega að orði. Og mikið rétt, á botni báts þeirra var sannfærandi þarahrúga orðum þeirra til áréttingar en marglyttur höfðu þeir ekki með sér til sannindamerkja. Við gerðumst svo djarfir að spyrja, hvort eitthvað væri máske undir þarahrúgimni, og fengum við svar þess sem telur ómaklega að sér vegið, að svo væri alls ekki. Þá vildi svo óheppi- lega til að þarabingurinn á bátsbotninum fór allur á hreyfingu, eins og væri eitthvað kvikt þar undir, og gerðumst við þá svo fádæma frekir að skyggnast undir og var þar í botni bátsins svartur plastpoki með þremur nýveiddum löxum og einn þeirra meira að segja með lífsmarki ennþá. Þetta þóttu okkur tíðindi og tilkynntum sjó- mönnum að nú væri það heilög skylda okkar að haldleggja aflann og skrifa þá síðan sjálfa upp og kæra fyrir veiðiþjófnað. Okkur var kynnt að okkur yrði ekki kápan úr því klæðinu því þeir ættu laxinn og hann létu þeir ekki af hendi með góðu. Dreif að nokkurn fjölda manna frá nær- liggjandi bæjum að fylgjast með því sem þar átti sér stað því „fljótt flýgur stundum fiskisagan“. Eftir nokkurt japl, jaml og fuður, orðahnippingar og gífuryrði (jafn- vel loforð um smá pústra) tilkynntum við viðmælendum okkar að ekki færum við að leggja líf okkar í hættu fyrir þrjá laxa, þótt stolnir væru, og sögðum þeim „að sá vægir sem vitið hefur meira“ og hurfum við á braut í bíl þann sem við komum með og þaðan náðum við um farsíma að kveðja til lögreglu því við þóttumst fullvissir að ekki væri annað fært en fara þar útað netum og 34 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.