Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 37
skoða þau og haldleggja eftir atvikum.
Höfðum við fengið þær upplýsingar, áður
en laxarnir komu úr felum, að sjómenn
ættu fímm net þar úti og neituðu þeir síðan
að segja okkur eftir á, í hver þeirra eða
hvert þeirra, aflinn hefði borist. Gældum
við við þá hugmynd að haldleggja það net-
anna eða þau netanna sem færðu þetta
ólöglega veiðifang í hendur þeirra sjó-
manna.
Eftir að hafa kallað á lögreglu, fengum
við okkur góðan útsýnisstað og fylgdumst
með að ekki yrði hróflað við netum á sjó.
Það var ekki reynt. Eftir að vaskir þjónar
laga og reglna höfðu ekið alla leið frá
Blönduósi og til okkar, settum við þá vel og
vandlega inní málavöxtu og hófum við svo
búið, að höfðu samráði við lögreglumenn,
að kynna okkur net þau sem úti voru og lax-
amir feigu voru úr. Vera má að sjómenn-
imir fræknu hafí ekki logið, er þeir sögðu
að netin væru fímm að tölu, en þá voru þau
öll hnýtt saman, því það sem við sáum er
við fórum að rannsaka málið var það að
mikill ormur lá út um allan sjó lagður í
króka og hlykki. I utanverðum netadrjóla
þessum voru tveir laxar til viðbótar þeim
þremur, sem við áður höfðum séð, og varð
það til að sannfæra okkur enn frekar um
það að hér væri á ferðinni ólöglegt veiðar-
færi með ólöglegum afla. Enda tókum við
netið allt upp við lítinn fögnuð sjómann-
anna og annarra sem stóðu í flæðarmálinu
og útlistuðu skoðanir sínar á slíkum að-
gerðum fyrir lögreglumönnunum á staðn-
um.
Netið fyllti varðskipið stafna á milli
en í land með það komust við og með afl-
ann líka. Netinu var síðan fyrirkomið í
lögreglubílnum frá Blönduósi þannig að
hann líktist miklu frekar sendibíl frá Neta-
gerð Vestfjarða heldur en opinberum
„patrólbíl“.
Undir kvöld þennan dag greiddum við
úr netinu og mældum það og mynduðum á
athafnasvæði lögreglunnar á Blönduósi
og reyndist samanlögð lengd netanna, sem
þarna höfðu verið hnýtt saman, vera
hvorki meira né minna en 278 metrar. Þau
voru skoðuð sérstaklega af sérfræðingum
Veiðimálastofnunar, sem komu á staðinn,
og þau síðan sett í örugga vörslu lögregl-
unnar enda gerðu áðurgreindir sjómenn
ákaft tilkall til netanna. Þá er rétt að geta
Veiðikassar
og stangahólkar
Léttir, sterkir og duga vel
Fæst í næstu sportvöruverslun
Umboösmenn
I. Guðmundsson & Co. hf.
Símar: 24020/11999
VEIÐIMAÐURINN
35