Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Síða 42

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Síða 42
og Bandaríkjunum. Aðrar þjóðir sem hafa hagsmuna að gæta eru Bretar, Norð- menn og í minna mæli Svíar, Finnar, Danir, Frakkar og Spánverjar. Alls staðar voru undirtektir góðar þó ýmsir efist um að okkur muni takast ætlun- arverk okkar, en við gerðum okkur svo sannarlega grein fyrir að verkefnið var ekki einungis geysistórt, heldur líka marg- slungið og viðkvæmt. Við Laxárfélagsmenn erum sannfærðir um að rétti tíminn í þetta verkefni er núna, og því nánar sem við skoðum málið því sannfærðari erum við, að tíminn nú er hinn eini rétti. Staðreyndin er sú að léleg veiði hefur verið á laxi hjá þessum nágrannaþjóðum okkar. Einnig hefur reynst erfitt fyrir Færeyinga að manna báta sína til þessarra veiða og hefur að því er mér skilst þurft að setja sérstakar reglur um kauptryggingar. En aðalatriðið sem vinnur með okkur nú er að heimsmarkaðsverðið á laxi hefur hríðfallið og ekkert sem bendir til þess að það verði í náinni framtíð á uppleið aftur. Við formenn veiðifélaganna sem stönd- um að Laxárfélaginu, Helgi Bjarnason for- maður Flúða á Húsavík, Jóhannes Krist- jánsson hjá Straumum á Akureyri, auk mín, hófum málið í haust með því að senda sérstaka hvatningu til allra meðlima félaga okkar auk forystumanna í öðrum samtök- um veiðimanna og veiðibænda. Við lítum á þetta mál eins og hvert annað ræktunar- starf, en það starf er og hefur alltaf verið sameiginlegt verkefni okkar og bænda sem búa á bökkum Laxár, þar sem hvor aðilinn um sig greiðir til helminga kostnað á móti hinum. Þetta hefur okkur reynst afar farsælt. Eg átti undirbúningsfund með þeim Arna Isakssyni veiðimálastjóra og Guð- mundi Eiríkssyni þjóðréttarfræðingi hjá Utanríkisráðuneytinu. Þar var málið kruf- ið og þeir Ámi og Guðmundur útbjuggu fyrir mig mikilvægt veganesti gagnvart aðildarþjóðunum í NASCO sem flestir vita að er alþjóðastofnun sú sem fer með verndun Atlantshafslaxins. Verðmæti laxins í úthafsveiðunum Samkvæmt NASCO-samþykktum mega Færeyingar veiða 550 tonn á ári næstu tvö árin með 15% millifærslurétti. Grænlendingar mega veiða 840 tonn með 10% millifærslurétti. Þetta gerir 1390 tonn eða sem nemur 560.000 löxum. Mið- að við heimsmarkaðsverð í dag, áætlum við að skilaverð til sjómanna sé um $ 10,- á meðallaxi og þá reiknast okkur til að heild- arverðmætið upp úr sjó sé 5,6 milljónir bandaríkjadala. Þegar kvóti er keyptur á botnfiski og loðnu á íslandi eða í Færeyjum eru venju- lega greidd 12-20% af áætluðu aflaverð- mæti. Samkvæmt því áætlum við að þurfi að greiða aðeins um 600.000 - 1.2 millj. dollara fyrir kvótann, en auðvitað datt okkur ekki í hug að málið væri bara svona einfalt. Samkvæmt lauslegri áætlun virðast íslendingar eiga um 5% hlutdeild í þeim stofni sem Færeyingar og Grænlendingar veiða. Þannig vorum við að gæla við að hlutdeild íslendinga í þessum kostnaði yrði ekki meiri en sem nemur 5-10 milljón- um króna af heildarpakkanum. Stærsti hlutinn lendir hjá Norðmönnum, Bretum og Kanadamönnum og ég hef beðið veiði- málastjórann í Noregi að koma með út- reikninga og gögn til að hafa við mat á kostnaðarskiptingu ef til samninga kemur. Ég fór til New York og Washington siðastliðinn september til að skýra hug- myndir okkar og afla þeim fylgis. Þar ræddi ég við hagsmunasamtök um vernd- 40 VEIÐIMAÐURINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.