Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Qupperneq 62
En ég er ákveðinn í að gefa mig hvergi
og satt að segja er ég í dálítilli æfingu. Fyrir
fimm vikum vorum við pabbi að veiða af
báti á svokölluðu Mjósundi, sem er veiði-
staður neðarlega í Laxá. Þá festi ég flugu í
harðsnúnum laxi, um 12-14 punda, sem
fór af eftir 15 mínútur. Pabbi sagði, að
fiskurinn hefði verið vel tekinn, en farið
af vegna þess að línan hafi verið óklár á
hjólinu. Núna á slíkt ekki að koma fyrir.
Fiskurinn, sem nú er fastur á flugunni,
hægir á sér eftir stökkið og syndir aftur á
þann stað þar sem hann tók. Pabbi rær til
baka og ég finn, að ég er að fá máttinn aftur
í fæturna.
Mamma birtist rétt í þessu á brekku-
brúninni fyrir neðan veiðikofann. Henni er
strax gefið merki um að gera myndavélina
klára. Allan tímann, sem viðureignin fer
fram, stendur mamma á bakkanum og
myndar atganginn.
A þeim stað, sem laxinn tók, er áin mjög
breið, 200-300 metrar að minnsta kosti,
og þeirri breidd heldur hún langt niður
eftir. Þetta notfærir laxinn sér. Hann
stekkur ekki aftur, en syndir ýmist langt
niður eftir ánni eða upp eftir henni, og
stundum út á miðja á. A milli stimpast
hann við og heldur að mestu kyrru fyrir.
Pabbi rær og rær og gefur upp tímann á
15 mínútna fresti.
Þegar viðureignin hefur staðið í
rúmlega eina klukkustund, rær pabbi
bátnum að litlum hólma, sem er þarna rétt
við land. Hann segir, að nú sé best að ég
þreyti laxinn úr landi. Sjálfur grípur hann
háfinn og býr sig undir að taka fiskinn í
hann.
En laxinn á heilmikið eftir, og aftur
verðum við að fara um borð og elta hann
langt út í á. Það er ekki fyrr en eftir eina
klukkustund og 25 mínútur, sem hann
næst í háfínn.
Þið megið trúa því, að það var þreyttur
en hamingjusamur veiðimaður, sem
hampaði Maríulaxinum sínum þarna á
bökkum Laxár 28. júlí í sumar.
Gamla veiðireislan hans pabba gaf sig
og slitnaði í sundur, þegar átti að fara að
vigta fiskinn. Það var ekki fyrr en við kom-
um í reykhúsið hans Kristjáns á Hólma-
vaði, að við komumst að raun um, að lax-
inn var 20 punda hrygna og 102 sm á lengd.
Það var ánægð fjölskylda, sem naut síð-
búins hádegisverðar þennan dag í glæsi-
legum húsakynnum gamla þinghússins á
Hólmavaði.
Björvin Skúli með Maríulaxinn sinn, Kári bróðir
hans og faðir þeirra, Sigurður Bjarnason. Ljósm.
Þjóðbjörg Þórðardóttir.
60
VEIÐIMAÐURINN