Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 74

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 74
strandeldisstöðvar, sem hafa frárennsli beint í sjó og hljóta samþykki landbún- aðarráðuneytisins til að taka við slíkum stofnum. 7. gr. Vegna hættu á erfðablöndun íslenskra laxastofna, sökum aukinna um- svifa í fiskeldi hér á landi, skal fela Veiði- málastofnun að framkvæma eftirfarandi rannsóknaverkefni, sem greiðist úr ríkis- sjóði: a) Könnun á innbyrðis skyldleika ís- lenskra stofna og erfðafræðilega íjarlægð frá erlendum stofnum með rafdrætti eggja- hvítuefna eða öðrum heppilegum aðferð- um. b) Frystingu á sviljum laxahænga úr villtum laxastofnum í samvinnu við Rannsóknastofnun landbúnaðarins eða nautakynbótastöðvar sem möguleika hafa á slíkri samvinnu. c) Hafmn verði undirbúningur að markvissu kynbótastarfi með heppilega íslenska stofna til notkunar í strand- og sjókvíaeldi. 9. gr. Reglur þessar skal endurskoða á sama tíma og reglugerð nr. 401 um „flutn- ing og sleppingar laxfíska og varnir gegn físksjúkdómum og blöndun laxastofna“, þ.e. fyrir 1. júlí 1990. Að sjálfsögðu hefði ég viljað komast hjá því að taka þátt í slíkum ákvörðunum en það verður ekki bæði sleppt og haldið. Eg tel að sú málamiðlun sem nefndin varð sammála um sé eins varfærnisleg og unnt var að ná fram. Og ég tel það mun sterkara fyrir okkar samtök að eiga fulltrúa í þeim nefndum og ráðum sem fjalla um vatnafiska, heldur en standa utan þeirra eins og verið hefur. Enda fórum við fram á það bréflega við landbúnaðarráðherra þ. 19. nóvember 1987 að fulltrúi frá okkar samtökum sé ætíð í þeim nefndum sem á einn eða annan hátt vinna að löggjöf og reglugerðum um vatnasvæði og umhverfí þeirra. Reglur þessar, með ítarlegri greinargerð eftir veiðimálastjóra, eru birtar í Veiði- manninum 130. tbl. Verum minnug þess að ekkert land býr við strangari veiðilöggjöf og veiðireglur en við Islendingar. Við erum öfundaðir af öll- um okkar nágrannaþjóðum, þó svo að við sjálf séum sífellt að berja lóminn. Fiskeldið Helst vildi ég sleppa því að ræða frekar um fiskeldi, svo hrikalegar eru síðustu fréttir um stöðu fiskeldisfyrirtækja. Ekki hef ég tekið það saman hve mörg þeirra hafa beðið um greiðslustöðvun eða eru nú þegar gjaldþrota, en fyrir viku las ég á for- síðu DV að „flaggskipið“ þeirra, íslands- lax, skuldaði á annan milljarð! Allar fréttir sem ég hef séð og heyrt í fjölmiðlum um laxeldi síðastliðið ár eru neikvæðar. Laxveiðin 1989 Samkvæmt nýjustu skýrslum var lax- veiðin 39% minni en í fyrra eða um 92.000 laxar og töluvert undir meðalveiði áranna 1974 til 1988. Alls veiddust 30.000 laxar á stöng, um 12.000 í net og 50.000 úr hafbeit. Eg ætla ekki að hafa þetta lengra um veiðina, þar sem veiðimálastjóri mun flytja skýrslu sína hér á eftir, en ítreka spurningu mína frá aðalfundinum 1987 „hvort við séum ekki farnir að ofbeita hafíð eins og heiðarnar“ ? Er ekki nauðsynlegt að setja einhverjar hömlur á það magn seiða sem sett er í hafíð og jafnvel gæði þeirra? Ólögleg laxveiði í sjó Aldrei hafa stangaveiðimenn tilkynnt um fleiri veidda laxa með netaförum en s.l. 72 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.