Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Qupperneq 77
vegirnir standi ekki undir þeim hækkunum
og allt fari á hausinn, - þeir fá alltaf sitt
áhyggjulaust og ábyrgðarlaust.
Mundi okkur nokkuð muna um að
borga kr. 50 þúsund fyrir stangardaginn ef
við hefðum svona laun og svona forrétt-
indi? - Svari hver fyrir sig.
Markhópur veiðiréttareigenda eru því
þessir: Erlendir auðkýfingar, hálaunaðir
opinberir starfsmenn og forsvarsmenn
þeirra örfáu stórfyrirtækja sem þegar eru
ekki komin á vonarvöl.
Formaðurinn gefur ekki kost á sér
í því sem hér hefur verið sagt felst
meginskýringin á því að ég gef ekki kost á
mér til formanns fyrir þessi samtök nú 4.
árið í röð.
Eg er nefnilega svo óheppinn að hafa
valið mér ranga línu þ.e.a.s. að vera með
valdboði skipaður kauplaus innheimtu-
maður hjá því opinbera og ef ég stend mig
ekki í þeirri innheimtu, þá einfaldlega
mæta mennirnir með gylltu hnappana og
innsiglið.
En ég er ekki að flýja frá hinum fjöl-
mörgu verkefnum sem bíða næstu stjórn-
ar, ég er aðeins að fara fram á minna álag.
Þess vegna býðst ég til að taka sæti í vara-
stjórn ef stjómarmenn og fundurinn æskir
þess.
Ég hef því miður enga orku aflögu leng-
ur frá þessari hörðu lífsbaráttu, til að sinna
jafn krefjandi sjálfboðastarfi.
Ég tel mig skila af mér góðu búi. Það
hefur ríkt friður og samstaða innan stjórn-
arinnar allt s.l. ár og landssambandið á nú
í fyrsta skipti dágóðan sjóð eins og reikn-
ingarnir bera með sér.
Ég vil svo að lokum þakka meðstjórnar-
mönnum mínum ánægjulegt og farsælt
samstarf, einnig formönnum og stjórnum
allra stangaveiðifélaga innan L.S. og ég
vona að fundur þessi verði öllu stanga-
veiðifólki til gagns og einhverrar gleði.
Að lokinni skýrslu formanns greindi
Gylfi Pálsson frá aðalfundi NSU, sem
haldinn var í Stokkhólmi 14.-15. apríl s.l.,
en auk Gylfa sat Grettir Gunnlaugsson
þennan fund fyrir Islands hönd.
Sigurður Bjarnason skýrði frá störfum
nefndar, sem L.S. skipaði til athugunar á
unglingastarfí innan stangaveiðiíþróttar-
innar.
Sigurður Sveinsson sagði frá starfí
nefndar, sem athugar möguleika á almenn-
ingsveiði í uppistöðulónum Lands-
virkjunar.
Rósar Eggertsson greindi frá störfum
nefndar, sem skipuð var til að gera til-
lögur um breytingar á lax- og silungsveiði-
löggjöfínni.
Hjörleifur Gunnarsson gjaldkeri L.S.
Sigurður Amasott fv. skipherra hjá Landhelgis-
gœslunni segir frá eftirliti með ólöglegum laxveið-
um í sjó.
VEIÐIMAÐURINN
75