Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 80

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Page 80
víkur skemmtu með söng og fleira var þar á dagskrá til að auka ánægju gesta. Daginn eftir hófst dagskrá fundarins með umræðum og afgreiðslu á ályktunar- tillögum, sem fram höfðu verið lagðar af stjórn L.S. Þær fólu í sér: 1. Askorun til landbúnaðarráðherra um stuðning við aukið eftirlit með netaveiðum á laxi í sjó með ströndum landsins. 2. Askorun til landbúnaðarráðherra um stuðning við aðgerðir til að fá keyptan úthafsveiðikvóta Færeyinga og Græn- lendinga á laxi. 3. Áskorun til fjármálaráðherra um að koma í veg fyrir, að virðisaukaskattur verði lagður á stangaveiðileyfi. Tillögu frá Hákoni Jóhannssyni og Birgi J. Jóhannssyni um gerð fána L.S. í tilefni af 40 ára afmæli sambandsins á næsta ári, og um ritun sögu L.S. af sama tilefni, var vísað til stjórnar. Þessu næst fóru fram kosningar í stjórn og nefndir. Rafn Hafnfjörð, sem verið hefur for- maður L.S. í þrjú ár, gaf ekki kost á sér í það embætti nú. Grettir Gunnlaugsson var einróma kjörinn formaður til eins árs. Hjörleifur Gunnarsson og Sigurður Bjarnason voru endurkosnir meðstjórn- endur til tveggja ára, Rósar Eggertsson og Sigurður Sveinsson sitja áfram án kosn- ingar. I varastjórn voru endurkosnir Matthías Einarsson og Jón Bjarnason, og Rafn Hafnfjörð var kjörinn í varastjóm í stað Grettis nýkjörins formanns. Fulltrúar í Landvernd eru Árni Er- lingsson og Sigmar Ingason, til vara Sig- urður Benjamínsson. Fulltrúar í fram- kvæmdanefnd N.S.U. eru Grettir Gunn- laugsson og Olafur G. Karlsson, Rósar Eggertsson til vara. Endurskoðendur eru Barði Friðriksson og Einar Stefánsson, Garðar Þórhallsson til vara. I lokaorðum sínum þakkaði Grettir Gunnlaugsson nýkjörinn formaður Rafni Hafnfjörð fyrir frábær störf og tók þing- heimur undir þau orð með dynjandi lófa- klappi. Nýkjörin stjórn L.S., frá vinstri Rósar Eggertsson, Sigurður Bjamason, Jón Bjarnason, Grettir Gunn- laugsson formaður, Rafn Hafnfjörð, Sigurður Sveinsson, Matthías Einarsson og Hjörleifur Gunnarsson. Ljósm. Gunnar Bender. 78 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.