Læknablaðið - 01.11.2022, Síða 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 509
F R É T T I R
Alls voru 320 gestir á ráðstefnunni sem haldin var í Hörpu og miklar umræður sköpuðust eftir hvern fyrir-
lestur. Myndir/Gunnar
Twitter fyrir
umræðuna
„Það sem er gaman í dag og breytt á ráð-
stefnum er að Twitter leiðir umræðuna.
Margt fólk tekur myndir um leið og fyr-
irlesturinn er haldinn. Skrifar smá texta
og tístir. Ef læknar vilja nýjustu fréttir af
rannsóknum lesa þeir gjarnan það sem fólk
setur inn tengt ráðstefnum á Twitter,“ segir
Gunnar Guðmundsson og bendir á #ic-
laf2022 fyrir lungnaráðstefnuna í Hörpu.
„Við sáum að #iclaf2022 var ofarlega á
listum yfir mest lesnu þræðina á Twitter
einn daginn,“ segir hann og að ekki aðeins
hafi 320 sótt ráðstefnuna í raunheimum
heldur hafi 100 manns alls staðar að fylgst
með á streymi.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Einn af hverjum 5 sænskum læknum hugsar um að yfirgefa stéttina. „Ekki aðeins vinnustaðinn heldur starfsgreinina,“ leggur Ove
Rang, forstöðumaður vinnu, lífs og lögfræðideildar sænska læknafélagsins, áherslu á. Hann heimsótti Læknafélagið í október
ásamt Söru Altino, umboðsmanni hjá sænska læknafélaginu og forsvarsmanni verkefnisins Framtíð kjarasamninga
Ove Rang vitnar til rannsóknar
sem sænska félagið gaf nýverið
út þegar hann nefnir flótta-
hugleiðingar fimmtungs lækna
úr stéttinni. Svarhlutfallið var
40%. Læknar hafi kosið starf-
ið til að hjálpa öðrum. „Svo
upplifa þeir sig á framleiðslu-
færibandi,“ segir hann og það
hljómar kunnuglega.
„Þessir læknar telja sig ein-
faldlega ekki hafa tíma til að
gera það sem þeir þurfa í starfi
sínu,“ segir hann. „Staðan er
skelfileg,“ segir Rang í heim-
sókn sinni. Þau Altino áttu
fundi með leiðtogum íslenskra
lækna. Þeirra á meðal voru
Þórdís Þorkelsdóttir, formaður
Félags almennra lækna, Ragnar
Freyr Ingvarsson, formaður
Læknafélags Reykjavíkur,
Theódór Skúli Sigurðsson,
formaður Félags sjúkrahús-
lækna og Oddur Steinarsson,
varaformaður LÍ. Einnig hittu
þau Dögg Pálsdóttur fram-
kvæmdastjóra og Steinunni
Þórðardóttur formann Lækna-
félags Íslands. Altino er nú á
leið til annarra Norðurlanda til
að safna gögnum.
„Við vissum ekki hvernig ís-
lenska heilbrigðiskerfið virkaði
miðað við það sænska,“ sagði
Rang, og að þau hafi sérstak-
lega einblínt á jafnvægi vinnu
og einkalífs. „Við vildum vita
hverjar áherslurnar væru hér,“
segir hann og hún bætir við:
„Já, og hverjar áskoranirnar eru
og við fundum því miður að
við eigum margt sameiginlegt.
Báðir hóparnir upplifa mikla
vinnubyrði. Það er leitt að
heyra. Læknar fá ekki áunnin
frí heldur kýs vinnuveitandinn
almennt frekar að greiða upp
tímann svo læknarnir vinna og
vinna án hvíldar“ segir hún.
„Við heyrðum líka að hér
eins og í Svíþjóð séu nú að
verða kynslóðaskipti. Ungir
læknar meta frítímann sinn
meira,“ segir hún. „Þeir líta
ekki á það sem köllun sína að
vera læknir og að starfsheitið
skilgreini þá á sama máta og
eldri kynslóðir lækna, heldur
að þetta sé starfið þeirra,“ lýsir
hún, og þeir vilji ekki að klára
sig fyrir köllunina. En bregðast
sjúkrastofnanir við þessu kalli
ungu kynslóðarinnar?
„Ég tel ekki að það gerist án
mótstöðu,“ segir Altino. „En
þetta er kynslóð sem krefst frí-
tíma, jafnvægis og að á þau sé
hlustað og að vinnuveitandinn
bregðist við. Ég býst ekki við
að þessar breytingar verði
hnökralausar, en tel að þær séu
nauðsynlegar.“
Ove Rang og Sara Altino frá sænska
læknafélaginu hittu íslenska kollega og
ræddu jafnvægi vinnu og einkalífs og
áhrifin á kjörin. Mynd/gag
leggja mat á þekkinguna. Við höfum
ekki alltaf vitað hvað kemur band-
vefsmyndun af stað en þarna gátum
við fylgst með því,“ segir hann. „Við
gátum nánast horft á hann myndast.
Allt hefur þetta stuðlað að meiri upp-
lýsingum.“
Gunnar segir ráðstefnu sem þessa
hér heima hafa mikla þýðingu fyrir
lækna hér á landi. „Við sem stundum
mikla alþjóðlega samvinnu við rann-
sóknir náum að efla tengslin frekar
auk þess sem við getum fylgst með því
nýjasta,“ segir hann.
Báru saman stöðu sænskra
og íslenskra lækna