Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.11.2022, Side 35

Læknablaðið - 01.11.2022, Side 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 511 Á nýloknum aðalfundi Læknafélags Ís- lands kom fram fordæmalítil samstaða meðal lækna. Það er fáheyrt að læknar séu tilbúnir að stíga jafn fast til jarðar og raun bar vitni, ákalla ríkisstjórnina í heild og lýsa ríkjandi neyðarástandi í heilbrigð- iskerfinu öllu. Ástandi sem sé óboðlegt og hættulegt. Á fundinum var rætt hvort hægt væri að kveða enn fastar að orði, enda velti fólk fyrir sér hvað þurfi til til að loks verði hlustað og ráðist í raunveru- lega endurreisn íslensks heilbrigðiskerfis. Eins veltir fólk fyrir sér hvað sé næst ef orðin þrýtur og áfram verði engar aðgerð- ir í sjónmáli. Við skynjum öll að við erum á ögur- stundu. Ef langvarandi vanræksla og skert fjármögnun heilbrigðiskerfisins verður látin halda áfram óáreitt, verður þrautin þyngri að snúa þróuninni við. Íslensk stjórnvöld hafa frá árinu 2010 lagt lægsta hlutfall vergrar landsframleiðslu í rekstur heilbrigðiskerfisins í samanburði við stjórnvöld á öðrum Norðurlöndum, samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar. Óhugsandi hlýtur að teljast að hægt sé að reka heilbrigðisþjónustu sem stenst kröfur almennings fyrir svo lág framlög í landi sem er fámennt og strjál- býlt og þar af leiðandi óhagkvæm rekstr- areining, auk þess að vera með eitt hæsta verðlag sem þekkist, sem svo sannarlega hefur áhrif á kostnað við aðföng og rekstur kerfisins hér. Merki eru um að þessi sveltistefna birtist nú í því að læknar lendi í auknum mæli í langvarandi veik- indum sökum álags, flýi land og skipti jafnvel alfarið um starfsvettvang. Vaxandi brotthvarf lækna úr of fáliðuðu heilbrigð- iskerfi er orðið að stjórnlitlum vítahring þar sem álag á þau sem eftir standa ýtir enn undir frekara brotthvarf. En álagið er ekki bara vegna manneklu heldur tengist það einnig þverrandi von um bjartari framtíð og siðferðilegum skaða sem lækn- ar verða fyrir í daglegum störfum sínum þar sem þeir standa sífellt frammi fyrir Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. steinunn@lis.is Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands því að geta ekki þjónustað sjúklingana með þeim hætti sem þeim þykir ásætt- anlegur. Því læknar eru svo sannarlega þrautseigir og hafa oft þurft að hlaupa hratt og takast á við álag. Í COVID-19 faraldrinum settu læknar ótta sinn gagn- vart eigin heilsu og heilsu fjölskyldunnar til hliðar, lögðu á sig ómælda vinnu við gríðarlega krefjandi aðstæður, börðust frá degi til dags í fullkominni óvissu um framhaldið og gerðu það af miklum kjarki og skyldurækni enda hlutverk lækna að lækna og líkna í neyðarástandi jafnt sem á hversdagslegri tímum. Nú standa læknar eftir í rykinu eftir mörg gríðarlega krefjandi misseri með litlum tækifærum til hvíldar og fría og við blasa biðlistar sem eru lengri en nokkru sinni fyrr, sívaxandi útskriftarvandi, troð- fullar legudeildir, heilsugæsla sem annar engan veginn eftirspurn, bráðamóttökur sem ekki geta tryggt öryggi sjúklinga né mannlega reisn þeirra. Hvernig eigum við sem læknar að geta staðið með kerfi sem stendur ekki með sjúklingunum? Sem vinnur ekki með okkur? Sem gefur okkur enga von um bjartari framtíð? Hvernig verður næsta sumar? Er eitthvað í kort- unum sem gefur til kynna að það verði betra en það síðasta, þegar Sjúkrahúsið á Akureyri var sett á neyðarstig vegna manneklu og starfsfólk kallað inn úr lang- þráðu sumarfríi? Þótt faraldurinn væri búinn? Að vinna í aðstæðum sem þessum ár eftir ár, fórna verðmætum tíma með vinum og fjölskyldu, fórna jafnvel eigin heilsu eins og svo margir læknar hafa því miður þegar gert, hvers virði er það ef það er engin von um betri tíð? Það er hægt að hlaupa hratt, sýna þrautseigju, leggja sig allan fram, ef þau sem stýra kerfinu og fjármögnun þess hlaupa líka hratt, sýna þrautseigju, leggja sig öll fram og sýna okkur þá virðingu að hlusta á okkur fagfólkið og á sjúklingana, bæta kerfið og efla. Leggja það fjármagn í kerfið sem raunverulega þarf. Skipa valinn mann í hvert rúm, bæði í stjórnun og í þjónustu við sjúklinga, og vera tilbú- in að leggja á sig það sem þarf til að laða hæfasta fólkið til starfa innan íslensks heilbrigðiskerfis með raunverulegum tilboðum um góðar starfsaðstæður, starfs- þróun og kjör. Gera okkur samkeppnishæf við það sem best gerist erlendis. Kári Stefánsson stóð fyrir undir- skriftasöfnun árið 2016, þeirri stærstu í Íslandssögunni, þar sem 85.000 lands- menn skoruðu á stjórnvöld að verja 11% af landsframleiðslu í heilbrigðismál. Ráð- herrar veittu undirskriftunum viðtöku með bros á vör við hátíðlega athöfn, en hvar eru efndirnar? Aðgerðaráætlanirn- ar liggja fyrir en það þarf að fjármagna þær og koma þeim í framkvæmd. Því heilbrigðiskerfi sem veitir fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem tök eru á að veita á hverjum tíma er lögbundinn réttur allra Íslendinga. LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna Þórdís Þorkelsdóttir Sólveig Bjarnadóttir Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson Magdalena Ásgeirsdóttir Læknafélag Reykjavíkur Ragnar Freyr Ingvarsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Á ég að fórna mér fyrir kerfi sem stendur ekki með sjúklingunum?

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.