Læknablaðið - 01.11.2022, Síða 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 511
Á nýloknum aðalfundi Læknafélags Ís-
lands kom fram fordæmalítil samstaða
meðal lækna. Það er fáheyrt að læknar
séu tilbúnir að stíga jafn fast til jarðar og
raun bar vitni, ákalla ríkisstjórnina í heild
og lýsa ríkjandi neyðarástandi í heilbrigð-
iskerfinu öllu. Ástandi sem sé óboðlegt
og hættulegt. Á fundinum var rætt hvort
hægt væri að kveða enn fastar að orði,
enda velti fólk fyrir sér hvað þurfi til til
að loks verði hlustað og ráðist í raunveru-
lega endurreisn íslensks heilbrigðiskerfis.
Eins veltir fólk fyrir sér hvað sé næst ef
orðin þrýtur og áfram verði engar aðgerð-
ir í sjónmáli.
Við skynjum öll að við erum á ögur-
stundu. Ef langvarandi vanræksla og
skert fjármögnun heilbrigðiskerfisins
verður látin halda áfram óáreitt, verður
þrautin þyngri að snúa þróuninni við.
Íslensk stjórnvöld hafa frá árinu 2010 lagt
lægsta hlutfall vergrar landsframleiðslu í
rekstur heilbrigðiskerfisins í samanburði
við stjórnvöld á öðrum Norðurlöndum,
samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar. Óhugsandi hlýtur að teljast að
hægt sé að reka heilbrigðisþjónustu sem
stenst kröfur almennings fyrir svo lág
framlög í landi sem er fámennt og strjál-
býlt og þar af leiðandi óhagkvæm rekstr-
areining, auk þess að vera með eitt hæsta
verðlag sem þekkist, sem svo sannarlega
hefur áhrif á kostnað við aðföng og
rekstur kerfisins hér. Merki eru um að
þessi sveltistefna birtist nú í því að læknar
lendi í auknum mæli í langvarandi veik-
indum sökum álags, flýi land og skipti
jafnvel alfarið um starfsvettvang. Vaxandi
brotthvarf lækna úr of fáliðuðu heilbrigð-
iskerfi er orðið að stjórnlitlum vítahring
þar sem álag á þau sem eftir standa ýtir
enn undir frekara brotthvarf. En álagið er
ekki bara vegna manneklu heldur tengist
það einnig þverrandi von um bjartari
framtíð og siðferðilegum skaða sem lækn-
ar verða fyrir í daglegum störfum sínum
þar sem þeir standa sífellt frammi fyrir
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
steinunn@lis.is
Steinunn Þórðardóttir
öldrunarlæknir og formaður
Læknafélags Íslands
því að geta ekki þjónustað sjúklingana
með þeim hætti sem þeim þykir ásætt-
anlegur. Því læknar eru svo sannarlega
þrautseigir og hafa oft þurft að hlaupa
hratt og takast á við álag. Í COVID-19
faraldrinum settu læknar ótta sinn gagn-
vart eigin heilsu og heilsu fjölskyldunnar
til hliðar, lögðu á sig ómælda vinnu við
gríðarlega krefjandi aðstæður, börðust
frá degi til dags í fullkominni óvissu um
framhaldið og gerðu það af miklum kjarki
og skyldurækni enda hlutverk lækna að
lækna og líkna í neyðarástandi jafnt sem á
hversdagslegri tímum.
Nú standa læknar eftir í rykinu eftir
mörg gríðarlega krefjandi misseri með
litlum tækifærum til hvíldar og fría og við
blasa biðlistar sem eru lengri en nokkru
sinni fyrr, sívaxandi útskriftarvandi, troð-
fullar legudeildir, heilsugæsla sem annar
engan veginn eftirspurn, bráðamóttökur
sem ekki geta tryggt öryggi sjúklinga né
mannlega reisn þeirra. Hvernig eigum við
sem læknar að geta staðið með kerfi sem
stendur ekki með sjúklingunum? Sem
vinnur ekki með okkur? Sem gefur okkur
enga von um bjartari framtíð? Hvernig
verður næsta sumar? Er eitthvað í kort-
unum sem gefur til kynna að það verði
betra en það síðasta, þegar Sjúkrahúsið
á Akureyri var sett á neyðarstig vegna
manneklu og starfsfólk kallað inn úr lang-
þráðu sumarfríi? Þótt faraldurinn væri
búinn? Að vinna í aðstæðum sem þessum
ár eftir ár, fórna verðmætum tíma með
vinum og fjölskyldu, fórna jafnvel eigin
heilsu eins og svo margir læknar hafa því
miður þegar gert, hvers virði er það ef það
er engin von um betri tíð?
Það er hægt að hlaupa hratt, sýna
þrautseigju, leggja sig allan fram, ef þau
sem stýra kerfinu og fjármögnun þess
hlaupa líka hratt, sýna þrautseigju, leggja
sig öll fram og sýna okkur þá virðingu að
hlusta á okkur fagfólkið og á sjúklingana,
bæta kerfið og efla. Leggja það fjármagn
í kerfið sem raunverulega þarf. Skipa
valinn mann í hvert rúm, bæði í stjórnun
og í þjónustu við sjúklinga, og vera tilbú-
in að leggja á sig það sem þarf til að laða
hæfasta fólkið til starfa innan íslensks
heilbrigðiskerfis með raunverulegum
tilboðum um góðar starfsaðstæður, starfs-
þróun og kjör. Gera okkur samkeppnishæf
við það sem best gerist erlendis.
Kári Stefánsson stóð fyrir undir-
skriftasöfnun árið 2016, þeirri stærstu í
Íslandssögunni, þar sem 85.000 lands-
menn skoruðu á stjórnvöld að verja 11%
af landsframleiðslu í heilbrigðismál. Ráð-
herrar veittu undirskriftunum viðtöku
með bros á vör við hátíðlega athöfn, en
hvar eru efndirnar? Aðgerðaráætlanirn-
ar liggja fyrir en það þarf að fjármagna
þær og koma þeim í framkvæmd. Því
heilbrigðiskerfi sem veitir fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu sem tök eru á að veita
á hverjum tíma er lögbundinn réttur allra
Íslendinga.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Á ég að fórna mér fyrir kerfi sem
stendur ekki með sjúklingunum?