Fréttablaðið - 17.03.2023, Page 2
Meðalaldur ferða-
manna er 40 ár.
Við viljum leikskóla!
Þessir snáðar mættu á mótmæli í Ráðhúsinu í Reykjavík í gærmorgun. Foreldrar sem ekki hafa fengið leikskólapláss fyrir börnin sín eru orðnir örvæntingar-
fullir og mæta með þau í Ráðhúsið fyrir fund borgarráðs. Krefjast þeir úrlausnar og eru þreyttir á innihaldslausum loforðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er einn þeirra fræðimanna sem gagnrýnt
hafa breytinguna. „Hvaða flón skipuleggja þetta? Fræðimenn þurfa kyrrð og
næði,” sagði hann á samfélagsmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rektor Háskóla Íslands segir
að skólanum beri að fara
eftir fyrirmælum stjórnvalda
varðandi skipulag nýbygg-
inga. Rúmlega 400 hafa skrifað
undir áskorun um að kenn-
arar haldi einkaskrifstofum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands, segir að
starfsfólki verði tryggð aðstaða til
rannsókna og fundarhalda þrátt
fyrir breytingar á vinnuaðstöðu.
Háskólanum beri hins vegar að fara
eftir viðmiðum sem Framkvæmda-
sýsla ríkisins setur.
„Kennarar munu geta átt fundi
með einstaklingum eða hópum í
rými sem hentar til þess og þar sem
gætt er að jafnræði aðila,“ segir Jón
Atli.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær er hafin undirskriftasöfnun
til að skora á háskólasamfélagið að
spyrna við ákvörðun Framkvæmda-
sýslunnar. Það er að einkaskrif-
stofur víki fyrir opnum skrifstofu-
rýmum, þar sem starfsfólk er jafnvel
ekki með fast skrifborð. Þegar þetta
er skrifað hafa rúmlega 400 skrifað
undir listann.
Samkvæmt Jóni Atla er verið að
skipuleggja húsnæði háskólans
fyrir Menntavísindasvið, það er
gömlu Hótel Sögu, og nýbyggingu
við Læknagarð í anda verkefnamið-
aðrar vinnu til samræmis við stefnu
stjórnvalda. Þetta húsnæði verði
innréttað með þarfir þeirra sem
þar starfa í huga. Þetta verði alltaf
gert þegar nýtt húsnæði er tekið í
notkun eða því breytt.
„Þarfir geta verið ólíkar milli
hópa en út frá greiningu er þörfum
starfshópa mætt þannig að hver og
einn geti unnið sín störf í viðeigandi
aðstæðum,“ segir Jón Atli. „Þá er til
dæmis séð til þess að hægt sé að
eiga samtöl, halda fundi, vinna í
hópum og afgreiða ýmis mál í næði
eða vinna við ýmis önnur verkefni
sem kalla eftir búnaði eða rými sem
sniðið er að þeim verkefnum.“
Í viðtali við lektorinn og skipu-
leggjanda undirskriftalistans, Arn-
grím Vídalín Stefánsson, í gær kom
fram að reynslan af opnum rýmum
væri neikvæð, til dæmis í Háskólan-
um í Malmö. Jón Atli segir að verið
sé að fara aðra leið hér.
„Það sem verið er að gera er
annað og meira en það sem kallað
hefur verið „opin rými“,“ segir hann.
„Opin rými er eitthvað sem við
viljum forðast enda hefur það fyrir-
komulag ekki reynst vel. Aðstæður
sem taka mið af verkefnamiðaðri
vinnu veita starfsfólki meira sjálf-
stæði; það hefur meira frelsi til að
ákveða hvar og hvernig það vinnur
best að úrlausn verkefna sinna.
Starfsfólk hefur til ráðstöfunar þá
aðstöðu sem hentar til þeirra verk-
efna sem það þarf að vinna. Þessi
aðstaða er útbúin þannig að komið
er til móts við raunverulegar þarfir
starfsfólks til að skila sinni vinnu
vel.“ n
Kennurum verði tryggð
aðstaða sem henti þörfum
Það sem verið er að
gera er annað og meira
en það sem kallað
hefur verið opin rými.
Jón Atli Bene-
diktsson, rektor
Háskóla Íslands
ÍÞRÓTTAVIKAN
MEÐ BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 21.00
Níu af hverjum tíu ferðamönnum
sem sækja landið heim koma í frí.
erlamaria@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Þriðjungur þeirra
ferðamanna sem sóttu Ísland heim
í fyrra er frá Bandaríkjunum og býr
þriðjungur þeirra á austurströnd
Bandaríkjanna. Þá eru tæplega 33
prósent þeirra sem sóttu landið
heim í aldurshópnum 25 til 34 ára
og meðalaldurinn 40 ár.
Þetta kemur fram í nýrri könnun
Ferðamálastofu meðal erlendra
ferðamanna, en niðurstöðurnar
byggja á svörum frá tæplega átta
þúsund ferðamönnum.
Hlutfall karla og kvenna er
nokkuð jafnt eða 50 prósent karlar
og 49 prósent konur. Þá komu níu af
hverjum tíu ferðamönnum hingað
til lands í frí. n
Ísland vinsælt
meðal Ameríkana
bth@frettabladid.is
MENNTAMÁL Börnum sem fæddust
árið 2019 hefur fækkað í Reykjavík á
þriggja ára tímabili um tvö prósent.
Annars staðar á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgaði börnum sem fæddust
sama ár um fjögur prósent en úti á
landi um 10 prósent.
„Ég hef heyrt að fólk sé að f lýja
héðan til annarra sveitarfélaga.
Reykjavík er ekki að standa sig. Fólk
flytur til útlanda og einnig þvert yfir
landið til að geta verið með börnin
sín,“ segir Sanna Magdalena Mörtu-
dóttir, borgarfulltrúi Sósíalista.
27 ára gömul móðir í Vestur-
bænum, Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir,
sagði á Fréttavaktinni á Hringbraut
í gærkvöld að mikill atgervisflótti
væri úr Reykjavík til útlanda vegna
skorts á leikskólaplássi. Hún segir
ástandið verst í Vesturbænum.
Mörg hundruð leikskólapláss
vantar í Reykjavík og allt að 80
starfsmenn. Mygla hefur haft keðju-
verkandi áhrif að sögn Önnu Mar-
grétar Ólafsdóttur, leikskólastjóra
á Nóaborg. Hún segir mikinn vanda
að fá fólk til starfa. „Leikskólakenn-
arar eru sem stétt varla lengur til,“
segir Anna Margrét sem hefur aldrei
haft fleiri hlutastarfsmenn en nú. n
Ungt barnafólk sé að flýja Reykjavík
Anna Margrét
Ólafsdóttir,
leikskólastjóri
Nóaborgar
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. MARS 2023
FÖSTUDAGUR