Fréttablaðið - 17.03.2023, Page 10
Ég er alveg pottþéttur á
því að íslenska lands-
liðið á eftir að fara aftur
á stórmót, hvort sem
það verður á næsta ári
eða árum.
Þetta er langhlaup og
við þurfum að sanka
að okkur stigum á
næstu mánuðum.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari
íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu, hefur aldrei átt
erfiðara með að velja lands-
liðshóp sinn en nú. Hann
er brattur fyrir afar mikil-
vægum leikjum í undan-
keppni Evrópumótsins síðar í
mánuðinum.
Íslenska karlalandsliðið mætir Bos-
níu og Hersegóvínu þann 23. mars
og Liechtenstein þremur dögum
síðar í undankeppni EM 2024. Báðir
leikir fara fram ytra. Arnar Þór Við-
arsson kynnti 23 manna hóp sinn á
miðvikudag og þar komu nokkrir
áhugaverðir punktar í ljós.
„Valið var ansi erfitt í þetta skipt-
ið. Ég held að það sé engin spurning
að ég hafi fengið mesta hausverkinn
við að velja þennan hóp vegna þess
að leikmenn, bæði ungir sem aldnir,
eru að spila mikið og spila vel,“ segir
Arnar í samtali við Fréttablaðið.
Albert vildi byrja
Albert Guðmundsson er sá leikmað-
ur sem hefur verið á milli tannanna
á fólki undanfarið. Arnar hefur ekki
valið hann í hóp sinn síðan í haust
og er samband þeirra ekki talið gott.
„Ég hringdi í Albert og bauð
honum að koma til baka. Eins og ég
hef alltaf sagt er hurðin alltaf opin,“
segir Arnar.
Albert var hins vegar ekki tilbú-
inn að koma inn í landsliðið á for-
sendum liðsins.
„Í þessari undankeppni, eins og
alltaf, eru leikir sem öskra á hæfi-
leika Alberts. En það eru líka leikir
sem kalla á annars konar hæfileika
og önnur leikplön. Ég get ekki, sem
þjálfari, valið leikmann í hóp hjá
mér sem er ekki tilbúinn til að byrja
á bekknum í ákveðnum leikjum og
taka því hlutverki sem við teljum að
sé best fyrir liðið.
Við áttum mjög gott spjall. Það
er ekkert illt á milli mín og Alberts.
En þegar ég tjáði honum að hann
myndi byrja á bekknum á móti Bos-
níu lét hann mig vita að hann væri
ekki tilbúinn í það,“ segir Arnar og
bætir við að dyrnar séu alltaf opnar
fyrir Albert.
Þetta er langhlaup
Annar leikmaður sem hefur verið í
umræðunni er Dagur Dan Þórhalls-
son. Kappinn átti frábært tímabil
með Íslandsmeisturum Breiða-
bliks og fékk í kjölfarið félagaskipti
til Orlando City vestanhafs í vetur.
Þá heillaði Dagur í landsleikjum
í nóvember og janúar. Hann var
hins vegar ekki valinn í hópinn
fyrir komandi leiki gegn Bosníu og
Liechten stein.
„Dagur er á brúninni. Hann er
ekki bara byrjaður að banka á
dyrnar, hann er farinn að berja á
þær. Hann stóð sig mjög vel í nóvem-
ber og mér fannst hann standa sig
enn betur í janúar. Hann er orðinn
alvöru leikmaður, kominn á það stig
að vera landsliðsmaður. Sem betur
fer fær maður stundum lúxus-haus-
verk yfir því að þurfa að skilja góða
leikmenn eftir utan hóps.“
Auk Íslands, Bosníu og Liechten-
stein eru í undanriðlinum Lúxem-
borg, Portúgal og Slóvakía. Arnar
segir næstu tvo leiki mikilvæga en
mótið sé þó langhlaup.
„Við förum auðvitað inn í alla
leiki til að ná í stig. Það er ekkert
öðruvísi núna. Þetta eru tveir mis-
munandi leikir. Við þurfum að vera
meðvitaðir um það að Bosnía er
með mjög gott lið og erfitt heim að
sækja.
Við þurfum líka að horfa á stærri
myndina. Þetta er maraþon. Við
vitum sirka hvað við þurfum að fá
mörg stig til að ná í annað sætið.
Það er líklegt að nokkur lið taki stig
hvort af öðru. Fyrsti leikurinn er
mikilvægur en þetta er ekki úrslita-
leikur.“
Arnar segir að riðillinn sem Ísland
dróst í bjóði upp á góða möguleika
fyrir liðið.
„Það væri mjög dapurt af mér að
standa hérna og segja að ég væri
óánægður með dráttinn. En Sló-
vakía segir það sama, sem og Bosnía
og Lúxemborg. Þetta verður opinn
riðill. Þetta er langhlaup og við
þurfum að sanka að okkur stigum
á næstu mánuðum. Vonandi getum
við klárað þetta skemmtilega verk-
efni sem sigurvegarar í lok árs.“
Erfiður útivöllur
Völlurinn í Bosníu er erfiður. Leikið
er í borginni Zenica, sem þekktust
er fyrir alræmt fangelsi. Hluti stúk-
unnar verður lokaður áhorfendum
vegna hegðunar stuðningsmanna
Bosníu.
„Völlurinn mun ekki bjóða upp
á neinn Brassabolta. Við verðum
að setja leikinn upp þannig að við
eigum sem mestan möguleika á að
fá stig úr honum.
Það er ástæða fyrir því að þeir eru
að spila þarna en ekki í höfuðborg-
inni. Þetta er bær sem er þekktur
fyrir læti á vellinum. Það verða læti.“
Rúnar Alex Rúnarsson, Elías Rafn
Ólafsson og Patrik Sigurður Gunn-
arsson eru markverðirnir í hóp
Íslands. Arnar vill ekki gefa upp
hver mun standa á milli stanganna
í fyrsta leik.
„Við megum ekki gleyma því
að við erum með þrjá markmenn.
Rúnar er að spila mjög vel í Tyrk-
landi. Elías hefur ekki verið að spila
mikið en Patrik hefur verið að gera
vel. Svo eigum við aðra markmenn
líka. Við eigum Hákon (Rafn Valdi-
marsson) hjá Elfsborg, Frederik
(Schram) hjá Val. Það er annar haus-
verkur fyrir mig. Það getur vel verið
að við breytum um markmenn á
milli leikja í undankeppninni en
það getur líka verið að það verði
alltaf sá sami.“
Allt á áætlun
Frá því Arnar tók við sem landsliðs-
þjálfari í lok árs 2020 hefur margt
breyst. Fjöldi leikmanna hvarf á
braut og nýir komu inn. Nú hefur
íslenska liðið hins vegar endur-
heimt eitthvað af reynslumeiri leik-
mönnum og koma þeir inn í bland
við unga og spennandi stráka.
„Ég er mjög stoltur af því hvernig
við náðum að vinna úr hlutunum
saman hér hjá KSÍ í fyrra. Planið
sem við settum upp um hvar við
vildum vera í byrjun árs 2023 hefur
gengið eftir. Ég hef auðvitað fengið
mikla hjálp frá góðu fólki.
Ég er viss um að liðið og hópurinn
núna er á mjög góðum stað. Það er af
því við fórum í endurnýjun. Ungir
leikmenn spiluðu marga leiki til að
fá reynsluna. Mér finnst blandan
mjög góð. Mér finnst þetta sterkur
hópur og tel möguleika okkar nokk-
uð góða.“
Arnar horfir björtum augum á
framtíð íslenska liðsins.
„Ég er alveg pottþéttur á því að
íslenska landsliðið á eftir að fara
aftur á stórmót, hvort sem það
verður á næsta ári eða árum.“ n
Erfiðasta val
Arnars Þórs
hingað til
Arnar Þór Við-
arsson, þjálfari
íslenska karla-
landsliðsins í
knattspyrnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Helgi Fannar
Sigurðsson
helgifannar
@frettabladid.is
10 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. MARS 2023
FÖSTUDAGUR