Fréttablaðið - 17.03.2023, Síða 14
Ástæðan fyrir því
að ég trúi á Guð er
að hann hjálpaði mér í
gegnum veikindi mín
sem byrjuðu 2018. Því
var engin spurning fyrir
mig að fermast. Ég vil
hafa Jesú að leiðtoga lífs
míns.
Hjörtur Elías Ágústsson
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Skagamaðurinn Hjörtur
Elías Ágústsson er heill,
hamingjusamur og hraustur
eftir að hafa sigrast á illvígu
krabbameini. Hann fermist
í Akraneskirkju 26. mars
og hlakkar mikið til stóra
dagsins.
„Ég ákvað að fermast því ég trúi á
Guð og Jesú Krist. Ástæðan fyrir
því að ég trúi á Guð er að hann
hjálpaði mér í gegnum veikindi
mín sem byrjuðu 2018 og ég trúi
því að Guð hafi læknað mig. Ég var
duglegur að biðja bænir og fann að
ég var bænheyrður. Því var engin
spurning fyrir mig að fermast. Ég
vil hafa Jesú að leiðtoga lífs míns.“
Þetta segir Hjörtur Elías Ágústs-
son, 13 ára nemandi við Brekkju-
lækjarskóla á Akranesi. Hann
fermist í Akraneskirkju sunnu-
daginn 26. mars næstkomandi.
„Það hefur gengið mjög vel
í fermingarfræðslunni. Ég hef
lært heilmargt um Jesú og hans
verk, náungakærleikann og að
virða náungann. Við fórum líka
í stórskemmtilega fermingar-
ferð í Vatnaskóg; Grundarskóli
og Brekkulækjarskóli saman,“
upplýsir Hjörtur sem er jafnframt
búinn að fara í tíu fermingar-
messur í vetur og hlakkar mikið til
fermingardagsins.
„Ég hlakka mest til að taka þetta
skref að fermast. Líka að hitta
gestina mína, sem verða um 100
talsins, og auðvitað að fá gjafirnar.
Efst á óskalistanum er PlayStation
5-leikjatölva og ferð á heima-
leik Liverpool í Liverpool. Það er
draumurinn minn,“ segir Hjörtur
sem æfir fótbolta með 4. f lokki hjá
ÍA og fékk bikar með liði sínu á Rey
Cup í fyrra.
„Fótboltinn er bara lífið og ég
veit allt sem hugsast getur um
fótbolta. Ég spila sem bakvörður
og á kantinum, er skotfastur og
duglegur að skora. Minn stærsti
draumur er að komast í A-lands-
liðið í knattspyrnu og jafnvel
atvinnumennsku í framtíðinni,
en plan B væri að verða söngvari
og tónlistarmaður. Ég er ágætis
söngmaður, finnst gaman að koma
fram á sviði og tek þátt í öllu slíku í
skólanum,“ segir Hjörtur sem ætlar
að fermast í svörtum sparibuxum,
skyrtu, leðurskóm og leðurjakka.
Ritningarversið sem hann valdi
sér á fermingardaginn er „Sælir eru
hjartahreinir, því þeir munu Guð
sjá“.
„Ég hef ekki enn ákveðið hvað
ég geri við fermingarpeninginn en
hugsa að ég leggi hann inn í banka
til að safna mér fyrir útborgun í
íbúð í framtíðinni.“
Spítalavistin var leiðinlegust
Hjörtur Elías greindist með eitil-
frumkrabbamein í febrúar 2018 og
aftur í maí sama ár, en þá í ristli.
Hann er spurður hvernig heilsan
sé í dag.
„Heilsan er bara fín og ég er
næstum orðinn jafngóður og ég
var áður en ég veiktist. Ég náði að
sigra krabbann og útskrifaðist
samkvæmt fimm ára reglunni í
febrúar,“ segir Hjörtur sem í dag
er hraustur og kraftmikill, en auk
þess að æfa fótbolta er hann að
læra á píanó.
„Mig langaði að læra á hljóð-
færi eftir að kona á spítalanum
í Svíþjóð kenndi mér heilmikið
á píanóið þar. Núna hef ég lært í
þrjú ár, er orðinn nokkuð góður og
farinn að semja rólega píanótón-
list sjálfur. Hver veit nema ég spili
á píanó fyrir gestina í fermingar-
veislunni, ég hef alveg ekki ákveðið
það.“
Hann segir veikindin hafa verið
erfiða lífsreynslu.
„Það var auðvitað erfitt að fara
í margar meðferðir við krabba-
meininu, en erfiðast fannst mér að
þurfa að hanga á einangrunardeild
Fótbolti er líf og yndi Hjartar sem spilar með 4. flokki ÍA. Hann dreymir um
fermingarferð á heimaleik með Liverpool og atvinnumennsku í framtíðinni.
Hjörtur er þakk-
látur fyrir að
hafa náð heilsu.
Hann var dug-
legur að biðja
bænir í veik-
indum sínum
og fann að hann
var bænheyrður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Trúi því að Guð
hafi læknað mig
spítala í níu mánuði. Það var ömur-
lega leiðinlegt, en nauðsynlegt.“
Hermaður kom með Guðs gjöf
Íris Jónsdóttir, móðir Hjartar
Elíasar, segir son sinn allan að
koma til og braggast vel.
„Hjörtur er flottur unglingur
sem blómstrar hér á Skaganum,
fullur sjálfstrausts og sjálfsöryggis
og hann óttast ekki neitt. Hann er
vinsæll og á góða vini sem hann
hangir með úti langt fram á kvöld,
nýtur þess að vera frjáls og komast
út, og lífið er bara geggjað,“ segir
hún, hamingjusöm yfir bata sonar-
ins sem nú þarf að taka námið
fastari tökum en jafnaldrarnir eftir
að hafa misst tvö ár úr skóla vegna
veikindanna.
„Lyfjameðferðirnar réðust á
ónæmis- og stoðkerfi Hjartar og
sökum áhrifa þeirra er hann nú í
tannréttingum og kominn með
gleraugu. Það er margt sem spilar
inn í vegna áhrifa lyfjanna og hann
er í alls konar prógrammi en það
lítur allt vel út.“
Eftir að Hjörtur greindist með
krabbameinið og í öllu sjúkdóms-
ferlinu leitaði fjölskyldan í trúna.
„Ég hef alla tíð haldið í mína
barnatrú. Ég trúi því að Guð hafi
verið með okkur og gefið að vel
gekk með Hjört. Við fjölskyldan
báðum fyrir Hirti á hverju kvöldi
og það voru margir sem báðu fyrir
honum um land allt. Undir það síð-
asta var tíminn orðinn naumur því
ekki fannst hæfur beinmergsgjafi.
Þá runnu tvær grímur á læknana
sem kölluðu fjölskylduna á fund og
sögðu helmingslíkur á að Hjörtur
myndi lifa veikindin af ef ekki
fyndist hæfur beinmergsgjafi,“
segir Íris sem ásamt systkinum
Hjartar fór í rannsókn til að vita
hvort þau gætu gefið honum lífs-
nauðsynlegan beinmerg.
„Til að geta gefið beinmerg þurfa
gildin að vera 4,5 af 12 og ekkert
okkar náði þeim. Því leit þetta
mjög illa út. Einum og hálfum
mánuði síðar fengum við símtal
um að 28 ára þýskur hermaður
væri á leið til Svíþjóðar til að gefa
Hirti beinmerg. Hann reyndist
vera hinn fullkomni beinmergs-
gjafi, í sama blóðflokki og Hjörtur
og með gildin 12 af 12; nokkuð sem
gerist nánast aldrei, sögðu lækn-
arnir og á Karólínska sjúkrahúsinu
í Stokkhólmi var talað um krafta-
verk. Eftir beinmergsgjöfina lá
leiðin svo fljótt upp á við hjá Hirti
sem leið strax betur og sigraðist
smám saman á krabbanum. Þetta
var Guðs gjöf.“ n
2 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR