Fréttablaðið - 17.03.2023, Page 26
Kristbjörg Smáradóttir
Hansen hefur mikinn áhuga
á bakstri og matargerð. Hún
starfar sem matráður á leik-
skóla en hefur líka tekið að
sér að sjá um mat og bakstur
fyrir ýmsar veislur. Hún
deilir hér einföldum upp-
skriftum að kökum fyrir
ferminguna.
sandragudrun@frettabladid.is
Kristbjörg er sjálflærð í bakstri og
eldamennsku en hún segist hafa
alist upp með óendanlega marga
kokka og bakara í kringum sig.
Hún man því ekki eftir sér öðru-
vísi en með áhuga á matargerð og
bakstri.
„Þetta er bara meðfæddur
áhugi,“ segir hún. „Ég hef rosalega
gaman af alls konar tilraunum í
eldhúsinu, hvort sem það tengist
bakstri eða matargerð. Ég hef mjög
gaman af að elda mat frá öðrum
heimsálfum og öðrum löndum
og hef prófað mig áfram
með asískan mat,
mexíkóskan mat
og mat frá lönd-
unum við Mið-
jarðarhafið,“
segir hún og
bætir við að
í augna-
blikinu sé
ítalskur
matur í
uppáhaldi.
Upphaf þess
að Kristbjörg fór
að elda og baka
fyrir veislur var að
hún fór að baka afmæl-
iskökur fyrir börnin í
fjölskyldunni og börn
vinkvenna sinna. Svo fór
hún að hjálpa vinkonu
sinni sem er kokkur með
alls kyns veislur.
„Smátt og smátt öðlaðist ég
sjálfstraust í að gera þetta áður
en ég fór að taka að mér stærri
verkefni en eina og eina köku,“
segir hún.
Þegar mamma hennar varð
fimmtug var henni svo eiginlega
kastað út í djúpu laugina. Pabbi
hennar sem er kokkur ætlaði að sjá
um veisluna en hafði svo ekki tíma
til þess og hringdi í dóttur sína
með nokkurra daga fyrirvara og
sagði henni að hún þyrfti eiginlega
bara að græja þetta.
„Það tókst svo vel til, með hjálp
auðvitað, ég gerði þetta ekki ein.
að ég fór að taka að mér stærri við-
burði,“ útskýrir Kristbjörg.
Í ár sér hún um fjórar ferm-
ingarveislur, bæði matar- og
kökuveislur. Hún segir að
marengstertur séu vinsælastar í
fermingarveislunum núna og líka
súkkulaðitertur.
„Mini-pavlóvur eru líka að
koma svolítið inn núna, en ég
hef mest verið að gera þær fyrir
veislur þar sem fullorðnir eru
aðallega, en börn hafa verið hrifin
af þeim líka,“ segir hún.
Ómissandi kökur í veisluna
En hvaða kökur eru ómissandi í
fermingarveislum?
„Þar sem eru bara kökur en
ekki matur myndi ég segja að
kransakaka og marsinpankaka
séu ómissandi. Maður gerir alltaf
ráð fyrir að fá þær í fermingar-
veislu. En eins og ég sagði þá eru
marengstertur alltaf vinsælar og
svo verður að vera einhver djúsí
súkkulaðiterta,“ segir Kristbjörg.
„Rice Krispies-turnar og Rice
Krispies-kökur eru alltaf vinsælar
fyrir krakkana og upprúllaðar
pönnukökur og kleinur standa
alltaf fyrir sínu.“
Þegar Kristbjörg gerir súkku-
laðitertur fyrir fermingarveislur
skreytir
hún þær
oftast
með nafni
fermingar-
barnsins.
En marengs-
terturnar skreytir
hún oftast með súkku-
laði og berjum.
„Leynivopnið
mitt þegar kemur að
marengstertum og
mini-pavlóvum er Royal-
búðingur. Ég blanda Royal-
búðingsduftinu út í rjómann
eða þeyti duftið með rjómanum.
Ef þú setur smá mjólk og búðings-
duft út í rjómann þá kemur meiri
frómas áferð á búðinginn heldur
en ef þú blandar hann bara venju-
lega,“ útskýrir hún.
„Það er misjafnt hvaða Royal
búðing ég nota, það fer svolítið
eftir því hvað annað ég ætla að
setja í kökurnar. Ef ég er bara með
ávaxta- eða berjafyllingu þá nota
ég jarðarberjabúðinginn en ég
hef líka gert marengstertur fyrir
nokkra með nýja Pipp-búðingn-
um. Þær í vinnunni hjá mér sögðu
að það væri besta marengs terta
sem þær höfðu smakkað. Ég nota
hann líka sem fyllingu í súkkulaði
tertur.“
Súkkulaðikaka með
Royal-fyllingu og
súkkulaðihjúp
4 egg
1,5 dl bragðlaus matarolía
4 dl súrmjólk
1 pakki Betty Crocker-djöflaköku-
duft
1 pakki Royal-súkkulaðibúðingur
Byrjið á að blanda eggjum, olíu og
súrmjólk saman í skál. Bætið síðan
Betty-duftinu út í og hrærið vel.
Endið á að blanda búðingsduftinu
vel saman við.
Skiptið í 3 hringlaga form (24
cm) eða 2 ferköntuð (20x30 cm)
Bakið á 180°C í 20-25 mínútur.
Fylling
3 dl rjómi
2 dl nýmjólk
1 pakki Royal-súkkulaðibúðingur
Blandið öllu saman í skál og
þeytið vel saman, látið stífna í kæli
í nokkrar mínútur og setjið svo
kökuna saman.
Súkkulaðihjúpur
300 g suðusúkkulaði
300 ml rjómi
Byrjið á að saxa súkkulaðið smátt
og setjið í skál. Setjið rjómann
í pott og hitið að suðu. Hellið
svo rjómanum yfir súkkulaðið
og látið standa í tvær mínútur
og hrærið svo saman þar til allt
súkkulaðið hefur bráðnað. Látið
súkkulaðihjúpinn standa í um
það bil klukkustund þar til hann
hefur náð stofuhita og er farinn
að stífna.
Smyrjið hjúpnum utan á kök-
una þegar hann er nægilega stífur.
Ef afgangur er af hjúpnum er hægt
að þeyta hann í hrærivél og nota
til að skreyta kökuna. Skreytið
annars eins og þið viljið.
Mini-pavlóvur
(ca. 40 stykki)
10 eggjahvítur
500 g sykur
½ tsk. Cream of tartar
Leynivopnið er Royal-búðingur
Kristbjörg hefur bakað og eldað fyrir fjöldann allan af veislum og deilir hér einföldum uppskriftum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Súkkulaðikaka með Royal-fyllingu og súkkulaðihjúp.
Mini-pavlóvur og súkkulaðikökur eru vinsælar.
Byrjið á að þeyta eggjahvíturnar
og Cream of tartar. Þegar blandan
er farin að freyða aðeins bætið
þá sykrinum saman við smátt og
smátt. Þeytið þar til sykurinn er
allur uppleystur og marengsinn
orðinn mjög stífur.
Setjið í sprautupoka og sprautið
lítil hreiður (sem eiga að vera um
það bil 6 cm í þvermál) á bökunar-
pappírsklædda ofnplötu. Bakið
við 120°C í 45-50 mínútur.
Kosturinn við mini-pavlóvur er
sá að það er nokkuð einfalt að gera
þær og hægt er að gera margar
mismunandi fyllingar eða skreyta
eins og hugmyndaflugið leyfir.
Hér eru nokkrar hugmyndir:
Berja-pavlóvur
1 lítri rjómi
½ lítri nýmjólk
1 pakki jarðarberja-Royal
búðingur
Setjið allt saman í skál og þeytið
þangað til áferðin er eins og stíf-
þeyttur rjómi.
Setjið um það bil eina teskeið
af hindberjasultu á botninn á
hverri pavlóvu. Sprautið jarðar-
berjarjóma ofan á og skreytið með
berjum.
Sítrónu-pavlóvur
1 lítri rjómi
½ lítri nýmjólk
1 pakki vanillu Royal-búðingur
Setjið allt saman í skál og þeytið
þangað til áferðin er eins og stíf-
þeyttur rjómi.
Setjið um það bil 1 teskeið af
Lemon curd (fæst tilbúið í krukku
í ýmsum verslunum) í botninn
á hverri pavlovu og sprautið
vanillu rjóma ofan á og skreytið
með berjum.
Karamellu-pavlóvur
1 lítri rjómi
½ lítri nýmjólk
1 pakki saltkaramellu Royal-
búðingur
Setjið allt saman í skál og þeytið
þangað til að áferðin er orðin eins
og stíf þeyttur rjómi.
Sprautið þá karamellurjóm-
anum á pavlóvurnar og skreytið
með karamellusósu, berjum og
Daim-kurli. n
Mini-pavlóvur
með jarðarberja-
rjóma.
14 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR