Fréttablaðið - 17.03.2023, Side 27
Öðlastu betri færni í ensku og menningarlæsi með því að taka þátt í
skemmtilegu prógrammi og kynnast krökkum frá öllum heiminum.
Umsóknarfrestur er til 25. mars. 2023
Nánari upplýsingar á afs.is.
SUMARNÁMSKEIÐ
Á ENGLANDI
17.-29. júlí (13-16 ára)*
Þátttökugjald 590.000 kr.
31. júlí-12. ágúst (15-18 ára)
Þátttökugjald 540.000 kr.
*fylgd í flugi
elin@frettabladid.is
Fermingardagurinn er hátíðar-
dagur og þá er alveg sjálfsagt að
skreyta fallega í kringum sig. Það
er til dæmis hægt að gera með lif-
andi blómum.
Fallegt er að binda borða um
servíetturnar, hvort sem þær eru
úr pappír eða efni, og stinga litlu
blómi í til skrauts. Þær eru síðan
lagðar á borð þar sem diskarnir
eiga eftir að koma og punta upp
umhverfið.
Þegar skreytingar eru ákveðnar
þarf að ákveða liti fyrst og hvaða
þema á að vera. Ef notaðir eru
hvítir dúkar á borðin er hægt að
lífga upp með alls kyns litum í
blómum eða öðrum skreytingum.
Fallegt er að hafa blómin í þeim
litum sem fermingarbarnið óskar
að hafa í veislunni. Þá er líka hægt
að setja eitt blóm í lítinn vasa á
hvert borð. Litur blómanna endur-
speglar aðalpersónu dagsins sem
er fermingarbarnið. Flestir hafa
myndasýningu frá lífi fermingar-
barnsins á tjaldi sem sýna áhuga-
málin. Gaman er að tengja þemað
við það sem barnið hefur gaman af
og ekki gleyma kertunum.
Það er fallegt að vera með blöðru-
boga og síðan ljósaseríur í loftinu.
Setur skemmtilegan stemmingu í
salinn eða á heimilið. n
Skreyttar munnþurrkur á veisluborðið
Lifandi blóm gera mikið fyrir veislu-
borðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Hárið skiptir langflest fermingar-
börn máli og flest fara þau í klipp-
ingu fyrir stóra daginn. Hefðin er
að stúlkurnar fari líka í fermingar-
greiðslu til að vera sem fínastar
þennan dag.
Hártíska femingarbarna er alltaf
að breytast. Einu sinni var í tísku
að vera með mikið túperað hár,
vængi og stórar og miklar greiðsl-
ur. Eitt stórt blóm í hárinu var eitt
sinn það sem allar stelpur vildu.
Uppsett hár og slöngulokkar voru
það heitasta lengi vel og seinna
varð í tísku að vera með sem nátt-
úrulegasta greiðslu og sem minnst
skraut.
Fyrir nokkrum árum voru stórar
hárspennur í tísku og miklir liðir
í hárinu en núna virðast blóm
í hárið aftur orðin vinsæl og þá
sérstaklega minni blóm. Eins vilja
stelpur í dag frekar fylgja sínum
persónulega stíl en einni ákveð-
inni tísku. n
Blómleg hártíska
Tískan í hárgreilsðu og klippingu
fermingarbarna breytist sífellt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Kransakökur eru vinsælar á veislu-
borðið og æ fleiri sem prófa sig
áfram með að baka slíka heima.
n Smyrjið bökunarform með smá-
vegis af smjörlíki. Eins er gott að
setja ögn af raspi á botninn.
n Notið reglustiku til að mæla
lengdina og beittan hníf til að
skera deigið sundur.
n Bleytið fingur í köldu vatni og
sléttið yfir samskeytin.
n Ráðlegt er að setja aukabökun-
arplötu undir þá sem hringirnir
eru bakaðir á til að varast að
botninn verði of dökkur.
n Best er að setja kökuna saman
deginum eftir að hún er bökuð.
n Hringirnir eru festir saman
með karamellu-, sykurbráð eða
bræddu súkkulaði.
n Festið neðsta hring kökunnar
við diskinn með því að smyrja
ögn af sykurbráð eða bráðnu
súkkulaði neðan á hann.
n Snúið kökunni á meðan
hringjum er bætt er ofan á, til að
koma í veg fyrir að hún halli.
n Konfekt eða annað utan á
kökuna er fest með karamellu-
bráð eða bráðnu súkkulaði.
n Kransakökur geymast vel og því
tilvalið að baka þær með góðum
fyrirvara, jafnvel frysta og
skreyta svo deginum áður.
HEIMILD: LEIDBEININGASTOD.IS
Kransakökuráð
Kransakaka er glæsilegt kaffibrauð.
kynningarblað 15FÖSTUDAGUR 17. mars 2023 FERMINGAR