Fréttablaðið - 17.03.2023, Síða 28
Ingibjörg Sveinsdóttir hár-
greiðslumeistari hefur ófá
árin séð um greiðslur fyrir
fermingarstúlkur og veit
fátt skemmtilegra en að
taka þátt í því að láta draum
þeirra rætast þegar kemur
að heildarútlitinu. Ingibjörg
segir greiðslurnar í dag vera
látlausar.
sjofn@frettabladid.is
Margar fermingarstúlkur hafa
safnað hári fyrir stóra daginn
og vilja leyfa hárinu að njóta sín
þegar kemur að heildarmyndinni.
Strákarnir koma líka en þá snýst
það um hársnyrtingu og klipp-
inguna fyrst og fremst.
„Það er ekki ein fermingar-
greiðsla sem er allsráðandi. Þetta
er meira hvaða fatastíl og stefnur
hver og ein velur sér. Stelpur eru
meira upplýstar í dag og hug-
myndir eru aðgengilegar á netinu,
þær koma með hugmyndir og
ég vinn út frá þeim. Þá er alltaf
hugsað út frá andlitsfalli, líkams-
byggingu og fatavali. Við viljum
alltaf fá bestu útgáfuna af okkur.
Við mælum með hárskrauti sem
er frekar minna en meira, blómið
brúðarslör er okkar vinsælasta en
allt fer eftir þemanu hjá hverri og
einni.
Flestar stelpur vilja fá förðun
með fermingargreiðslunni.
Förðun þarf að bóka með
fermingargreiðslunni. Það má
ekki gleyma mömmunum, þær
vilja líka fá trít. Þá er Hárbarinn
fullkominn fyrir þær, gera sjálfar
eða fá þjónustu,“ segir Ingibjörg
og bætir við að þetta sé ein af
gæðastundum mæðgnanna fyrir
fermingardaginn.
Ingibjörg segir margt hafa
breyst síðan hún fermdist þegar
kemur að hártískunni. „Ég
fermdist árið 1987 og þá var
ansi skemmtileg tíska í gangi,
allt aðeins meira en minna og
greiðslan í þeim stíl. Ég var með
frekar stutt hár og það var blásið
í vængi í hliðunum og toppurinn
var eins og foss. Þrjú hvít plast-
blóm í hverjum væng. Það fór
örugglega heill spreybrúsi í þessa
greiðslu og hún þoldi 10 vindstig.
Við vinkonurnar fengum allar
sömu greiðsluna,“ segir Ingibjörg
og hlær.
Hárbarinn nýtur vinsælda
Ingibjörg útskrifaðist sem hár-
greiðslusveinn árið 1995 og sama
ár tók hún þátt í Íslandsmeistara-
móti nema í hárgreiðslu og
varð Íslandsmeistari. Árið 2010
útskrifaðist hún sem hárgreiðslu-
meistari. „Árið 1999, aðeins 27 ára
gömul, ákvað ég að stofna mína
eigin hárgreiðslustofu en rakst þá
á litla stofu sem var til sölu við Ing-
ólfstorg sem ég endaði á að kaupa.
Þetta voru ekki talin gáfuleg kaup
á sínum tíma og þá sérstaklega
vegna staðsetningarinnar þar sem
allt var að f lytjast úr miðbænum
upp í Kringlu eða upp við Hlemm.
Ég hef náð að byggja upp stóran
og traustan viðskiptavinahóp á
þeim 23 árum sem ég hef unnið á
litlu stofunni minni og er enn full
af orku og áhuga. Ekki alls fyrir
löngu fékk ég þá góðu hugmynd
að opna „Blow dry bar“ þar sem ég
hef orðið vör við að það vantar svo
miklu meiri þjónustu við fólkið
í miðbænum og þá sérstaklega
konurnar til að farða sig og greiða
fyrir viðburði á borð við fundi,
löns með viðskiptavinum eða
bara hitting með vinkonunum.
Í miðbænum er mikið af
f lottum fyrirtækjum og hótelum
og er vaxandi eftirspurn eftir
Hárbar fyrir allar skvísurnar sem
eru á leið á fundi og náðu ekki að
græja sig eftir ræktina eða höfðu
ekki tíma fyrr um daginn. Það
líður ekki sá dagur að ég fái ekki
spurningu um hvar sé hægt að
droppa inn í þvott og blástur og/
eða förðun, hvort sem maður
notar einungis aðstöðuna á
Hárbarnum eða nýtur aðstoðar
sérfræðinga stofunnar,“ segir
Ingibjörg og er á því að konur séu
farnar að hugsa meira um hárið en
áður var.
Ingibjörg hefur nú opnað lúxus
hársnyrtistofu, snyrtistofu, spa
og bar, sem tengir hár, fegurð
og félagslega upplifun saman.
„Nafnið á vel við, Ungfrú Reykja-
vík og við erum staðsett á Hafnar-
torgi. Í boði er hársnyrting og
snyrting en aðaláherslan er lögð á
Hárbarinn sem býður upp á þvott
og nokkrar útfærslur af blæstri,
krullum, sléttun eða greiðslum.
Hár-spa er nýtt og hefur ekki
verið í boði hér á landi, ekki frekar
en Hárbarinn. Þar ætla ég að
bjóða upp á lúxus nudd, maska,
hárgreiningu þar sem hægt verður
að greina hár og hvaða meðferð
hentar hverri hárgerð fyrir sig og
alla ráðgjöf og það er einmitt þessi
nýjung sem mæðgur í fermingar-
undirbúningi eru farnar að nýta
sér í meiri mæli,“ segir Ingi-
björg. n
Brúðarslör í hárið vinsælast hjá stelpunum
Fyrirsæturnar eru: Elísabet Friðrika Eiríksdóttir, Viktoría Íris Kristinsdóttir, Fanney Nína Gísladóttir og fremst er Emma Ottesen Gísladóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hér valdi fermingarstúlkan
sér að vera með uppsett hár
og skreyta með brúðarslöri
sem er einstaklega fallegt blóm.
Hér er hárið tekið aftur og
fléttað á hliðunum og spennt
með fallegri spennu með
steinum og perluskrauti.
Hlý, látlaus greiðsla þar sem
náttúrulegt útlit stúlkunnar
fær að njóta sín. Smá liðir og
eðlileg hreyfing fá að njóta sín.
Látlaus og falleg greiðsla
þar sem sítt og falleg hár
fermingarstúlkunnar fær að
njóta sín.
Ingibjörg Sveinsdóttir, hárgreiðslu-
meistari á Ungfrú Reykjavík, segir
að engin ein fermingargreiðsla sé
allsráðandi um þessar mundir.
Greiðslan fari meira eftir per-
sónuleika og stíl hverrar og einnar
fermingarstúlku.
16 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR