Fréttablaðið - 17.03.2023, Page 30
Ég minni á að það
allra mikilvægasta
er að þú og fermingar-
barnið njótið dagsins.
Þetta er spurning um
samveru, ekki að tapa
sér.
Petra Rós
Petra Rós Ólafsdóttir er
sannkallaður reynslubolti
þegar kemur að fermingar-
veislum. Hún hefur haldið
þrjár slíkar á síðustu ellefu
árum og vildi helst fá að gera
þetta á hverju ári.
jme@frettabladid.is
Með þrjár fermingarveislur að
baki, gestafjölda einhvers staðar
á bilinu 100–200 og óbrennandi
áhuga á veisluhaldi, hefur Petra Rós
Ólafsdóttir sankað að sér ómetan-
legri reynslu í þessari vinsælustu
þjóðaríþrótt Íslendinga, næst á
eftir Eurovision og brauðtertu-
gerð. „Helsta ráðið sem ég get gefið
öllum er að vera ekki að þessu á
síðustu stundu. Og allt sem tengist
fermingarveislum: Þú þarft í raun-
inni ekkert af þessu,“ segir hún.
Eins og klippt úr tískublaði
„Ég fermdi son minn árið 2012,
elstu dóttur mína 2016 og þá
næstelstu 2022. Helsti munurinn á
fyrstu veislunni og hinum tveimur
var sá að í þeirri fyrstu ætlaði ég sko
að taka þetta með trompi. Þetta átti
að vera nákvæmlega eins og klippt
út úr tískublaði,“ segir Petra Rós.
„Á þeim tíma fékk maður hug-
myndirnar úr blöðunum en í dag
kemur pressan frá samfélagsmiðl-
unum.“ Hún segir marga falla í þá
gildru, að sér meðtalinni í fyrstu
fermingarveislunni, að vilja gera of
mikið. „Þetta endaði bara í svita hjá
mér þar sem ég sat við skrifborðið
klukkan tvö, aðfaranótt fermingar-
dagsins að skrautskrifa kort sonar
míns.“
Varstu með eitthvað í fyrstu
veislunni sem þú hefur ekki lagt í
aftur?
„Í rauninni ekki. Ég hef í staðinn
fundið leiðir til að gera sömu hluti
á ódýrari hátt. Ég hef líka einfaldað.
Ég var til dæmis með allt of margar
sortir á eftirréttahlaðborðinu. Ef
þú ert með átta kökur þá fá sér allir
eina sneið af hverri sort. Svo fer
helmingurinn í ruslið því það geta
fæstir borðað átta kökusneiðar.“
Ekki gera allt of mikið
„Minn helsti lærdómur er að
stressa sig ekki á því sem aðrir eru
að gera. Fjölskyldan mín er stór
og ég hef mætt í ófáar fermingar-
veislur. Í fyrra voru þær í tólf og í
ár eru þær fimm. Mér finnst oft að
það sé verið að gera allt of mikið.“
Petra Rós birti pistil eftir veislu
númer tvö inni á Facebook-
hópnum Fermingarundirbúningur
og hugmyndir um ýmislegt sem
hún hafði lært. „Á hverju ári fjölgar
þeim sem líkar við pistilinn,“ segir
hún. Það er ljóst að margir þurfa
áminningu um að meira sé ekki
alltaf meira. „Mitt aðalráð er bara:
Gerðu það sem þú getur, hefur efni
á og tíma fyrir, þá verður veislan
fín, sama hvað. Veisla sem kostar
mikið og með allt það flottasta
skilar ekki endilega meiru en
notaleg heimaveisla með fáum
útvöldum,“ segir hún.
Hefur eitthvað breyst síðan þú
fermdir elsta soninn?
„Mér finnst í raun fátt hafa
breyst, hvorki í veitingum né kröf-
um. Það er helst eftir faraldurinn
að fólk stressar sig aðeins minna.
Margir bregða á það ráð að halda
veisluna á öðrum degi en athöfnin
er, enda er oft vöntun á sölum.
Vinsælustu veisluréttirnir
segir Petra að séu smáréttir. „En
veislurnar eru náttúrulega jafn-
ólíkar og þær eru margar og það er
um að gera að reyna að virða óskir
fermingarbarnsins eftir bestu getu,
því þetta er jú þeirra veisla.“
Sparnaður í föndrinu
Petra Rós er mikil handavinnu-
kona og lærði skrautskrift fimm-
tán ára. Hún segir að margt sé
hægt að búa til sjálfur. „Ég hef
verið í skrautskriftinni í um 27
ár og unnið að þessu í hjáverkum
undir nafninu PRÓ design. Ég tek
að mér að skrautskrifa á meistara-
bréf, prófskírteini, gestabækur,
viðurkenningar og fleira. Ég föndra
líka mikið sjálf fyrir fermingar-
veislurnar. Þá er lykilatriði að byrja
tímanlega.
Eitt sparnaðarráð sem ég get
gefið er að allt sem heitir ferm-
ingar-þetta eða brúðkaups-hitt
er alltaf dýrara en sambærilegar
vörur og þjónusta sem fæst annars
staðar.“ Í stað þess að borga fúlgur
fjár fyrir sérprentuð kerti og serv-
éttur, keypti Petra hvít kerti í Ikea
og skrautskrifaði sjálf á þau.
„Þegar sonur minn fermdist
2012, voru sérprentaðar servéttur
það eina sem hann bað um. Í 150
manna veislu er fokdýrt að kaupa
þær í sérstökum búðum sem gera
út á fermingarvörur og ég endaði
með risareikning frá Blómaval.
Þegar ég fermdi í annað sinn fann
ég út að það er mun ódýrara að
kaupa servéttur annars staðar og
láta prenta á þær sjálf.
Kortakassann sem peninga-
gjafirnar eru settar ofan í, föndraði
ég líka sjálf úr Ikea-pappakassa.
Margir halda að kassinn sé alger
nauðsyn en hann er það auðvitað
ekki, líkt og allt annað sem fólk
telur sér trú um að sé ómissandi í
fermingarveislunni,“ segir Petra.
Búðu til minningar
Margir eru með gestabók sem
gestir kvitta í. Petra segir helling
hægt að gera, með litlum tilkostn-
aði, til að gera veisluna minnis-
stæðari. „Í veislu elstu dóttur
minnar setti ég miða hjá hverjum
veislugest þar sem spurt var um
framtíðarstarf fermingarbarnsins.
Hver gestur skrifaði sína hug-
mynd, kvittaði undir og setti mið-
ann í kassa sem var lokaður þar til
hún varð tvítug. Svo kom ýmislegt
skemmtilegt upp úr þessum kassa
í fyrra þegar hann var opnaður,“
segir hún.
„Leiga á ljósmyndakassa fyrir
veisluna getur kostað sitt. Síðast
græjuðum við myndavegg með
glimmergardínu, blöðrum, leik-
munum og höttum. Fólk tók sjálft
myndir á símana sína og deildi
þeim með okkur. Þetta gerði mikla
lukku,“ segir Petra Rós. „Ég mæli
líka með því, ef fólk hefur smá tíma
aflögu, að varpa upp myndasýn-
ingu af fermingarbarninu á vegg.“
Spurning um samveru
„Þegar ég finn að vinir og vanda-
menn eru að fara á límingunum
vegna yfirvofandi fermingarveislu
þá sendi ég þeim oft pistilinn
minn og minni á að það allra
mikilvægasta er að þú og ferm-
ingarbarnið njótið dagsins. Þetta
er spurning um samveru, ekki að
tapa sér.
Ég ráðlegg líka öllum sem geta
að fá fólk til að vinna í veislunni og
njóta veislunnar. Sjálf hef ég undir-
búið margt sjálf fyrir hlaðborðið
og keypt tilbúið eða frá veisluþjón-
ustu í bland. Ég mæli líka með því
að fá hjálp frá fjölskyldu og vinum.
Í fyrstu veislunni ætlaði ég að gera
þetta allt sjálf og rakst bara á vegg.“
Mælir með opnu húsi
„Mér fannst hentugt að vera með
opið hús í veislunni fyrra. Gest-
irnir kíktu við yfir daginn og fóru
þegar þeim hentaði. Sumir mæta í
f leiri en eina veislu sama dag. Þetta
teygir á veislunni og fólk situr
lengur en ella. Það eru færri gestir í
einu og fólk getur spjallað meira.“
Nú er ein ferming eftir hjá Petru
Rós. „Birta Rós er að verða níu ára
og ég geri ráð fyrir að hún fermist
líka, 2028. Sú umræða verður bara
tekin þegar þar að kemur hvort og
hvernig sú veisla verður. Ég gæti
þó alveg hugsað mér að gera þetta
á hverju ári, ég á bara ekki nógu
mikið af börnum til að gera það,“
segir hún og hlær. n
Gæti hugsað mér að gera þetta á hverju ári
Petra Rós ásamt dóttur sinni Birtu Rós Unnarsdóttur sem er að verða níu ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Petra Rós mælir með því að fólk dragi í land þegar kemur að eftirréttunum.
Þar séu færri sortir betri en fleiri. MYNDIR/AÐSENDAR
Petra Rós fermdi Unu Rós 2016 og veisluborðið var sannarlega girnilegt.
Hlaðborðið í fermingarveislu Rakelar Rósu 2022 var glæsilegt.
Ólafur, elsta af-
kvæmið, bakaði
sjálfur ferming-
artertuna sína
og skreytti.
18 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR