Fréttablaðið - 17.03.2023, Síða 32
Það eru margir í fermingar-
gjafahugleiðingum þessa
dagana enda er sá árstími
runninn upp þar sem ferm-
ingar eru að fara á fulla ferð.
gummih@frettabladid.is
ELKO hefur verið með könnun
í gangi sem tengist fermingum.
ELKO sendi könnun á póstlista sinn
og yfir sex þúsund svör hafa borist.
„Rétt eins og gera mátti ráð fyrir
þá tróna bæði tölvur og símar á
toppnum sem fermingargjöf ársins.
Í könnuninni mátti sjá að bæði
tölvur og símar voru á óskalista
hjá um og yfir 50% svarenda væru
þau að fermast í dag,“ segir Arin-
björn Hauksson, forstöðumaður
markaðsmála hjá ELKO.
„Hvað varðar tölvur þá er það
breiður flokkur, allt frá spjaldtölv-
um, fartölvum (PC og Macbook)
og gaming-leikjatölvur og því úr
miklu að velja. Á fermingaraldr-
inum eru margir farnir að skipta út
fjarstýringunum í leikjaspilun yfir í
lyklaborð og mús en þó er ekkert lát
á vinsældum PlayStation5-leikja-
tölvunnar en hún var á óskalista
tæplega 30% svarenda. Tölvan er
nú loks til á lager eftir að hafa verið
meira og minna uppseld síðan
hún kom út árið 2020.
Það verður einnig spennandi
að sjá hvort ný sýndarveruleika-
gleraugu frá PlayStation komi til
með að seljast upp fyrir fermingar
en um er að ræða VR-gleraugu sem
koma til með taka leikjaupplifun
margra leikja upp á allt annað stig,“
segir Arinbjörn.
Tónlistarupplifun hefur svo verið
á fermingargjafalistanum eins lengi
og maður man eftir sér en auð-
vitað tekur vöruúrvalið miklum
breytingum og í stað þess að vera
að horfa á stereó-græjur eins og
í gamla daga þá koma gæða Blu-
etooth- og WiFi-hátalarar sterkir
inn ásamt heyrnartólum sem fást
í ótrúlegu úrvali í dag. Sjónvörp
voru einnig ofarlega á lista ásamt
snjallúrum, hlaupahjólum, hár-
mótunarvörum og 3D prenturum,“
segir Arinbjörn.
Arinbjörn segir að ELKO leggi
mikið upp úr því að vera með putt-
ann á púlsinum þegar það kemur
að fermingargjöfum og mikilvægt
sé að bjóða upp á breitt verðbil
fermingargjafa sem eigi eftir að slá
í gegn.
„Bæði viljum við aðstoða við-
skiptavini að finna réttu gjöfina
sem fylgir fermingarbörnum inn
í framtíðina en einnig viljum við
tryggja að allar gjafir frá okkur
hitti í mark og til dæmis um það
þá höfum við framlengt skilarétt á
fermingargjöfum til 30. júní, sem
gerir ríflega 100 daga skilarétt séu
fermingargjafir keyptar í dag.“
Bjóða upp á aðra fermingarmynd
Það kennir ýmissa grasa í könnun
ELKO. Til að mynda kemur í ljós að
24% viðskiptavina voru óánægð
með fermingarmyndina sína
og væru til í að taka hana aftur.
Þá sögðust 20% ekki hafa farið í
fermingarmyndatöku.
„ELKO ætlar að taka málin í sínar
hendur og bjóða viðskiptavinum
að koma í ELKO í Lindum til þess
að taka aðra fermingarmynd. Þetta
verður í boði frá 16. mars til 16.
apríl. Það verða kyrtlar á staðnum
og það eina sem viðskiptavinir
þurfa að gera er að mæta á staðinn
og smella mynd af sér. Þeir sem
deila myndinni á Instagram-vegg-
inn sinn og nota myllumerkið
#ELKOFERMING eiga svo mögu-
leika á því að vinna 100.000 króna
inneign í ELKO,“ segir Arinbjörn.
Ein af spurningunum í könnum
ELKO er á þessa leið: Hvað á að
bjóða gestunum upp á?
Heitir brauðréttir skora hæst en
pinnamatur og brauðtertur fylgja
þar fast á eftir. Þá eru þeir margir
sem vilja nánast þriggja rétta mat-
seðil með kjöti, sósu og meðlæti
ásamt eftirréttum. n
Tölvur og símar tróna á toppi fermingargjafa
Arinbjörn Hauksson er forstöðumaður markaðsmála hjá ELKO.
MYNDIR/AÐSENDAR
iPhone 14 er vinsæl fermingargjöf.
Lenovo Idea Pad
Gaming leikjatölva
er vinsæl fermingargjöf.
Á fermingaraldr-
inum eru margir
farnir að skipta út fjar-
stýringum í leikjaspilun
yfir í lyklaborð og mús.
Arinbjörn Hauksson
Erla Þóra Bergmann Pálma-
dóttir er 25 ára landsliðs-
kokkur sem hefur alltaf
dreymt um að feta þessa
slóð. Hún er matreiðslu-
maður á Fjallkonunni og
gefur hér lesendum upp-
skrift að frábærri graskers-
súpu með önd fyrir ferm-
ingarveislurnar.
elin@frettabladid.is
Erla Þóra segir að kokkastarfið
hafi alltaf heillað hana. „Ég hef
alveg frá því ég man fyrst eftir
mér verið harðákveðin í að verða
kokkur. Ég elska góðan mat og
er mikill sælkeri,“ segir hún en
Erla hóf fyrst störf á veitingastað
þegar hún var 13 ára. „Ég heillaðist
gjörsamlega af þessari orku og
stemmingu. Mér hefur nefni-
lega eiginlega aldrei fundist neitt
sérstaklega skemmtilegt í skóla
en þarna fann ég mig algjörlega.
Ég komst síðan á samning eftir
grunnskóla og útskrifaðist frá MK
vorið 2017.
Erla Þóra hefur starfað með
kokkalandsliðinu í tvö ár og segir
að það hafi verið eitt skemmtileg-
asta verkefni sem hún hefur tekið
sér fyrir hendur. Hún var með
landsliðinu á heimsmeistaramót-
inu í Lúxemborg fyrir áramótin
þar sem liðið hafnaði í sjötta sæti.
„Ég er mikil keppnismanneskja
og við erum ótrúlega góður hópur
sem deilum sama áhugamáli, það
að elska góðan mat og vilja ná
langt í okkar fagi. Ég stefni klár-
lega lengra í framtíðinni í þessu
fagi,“ segir Erla Þóra en sjávarréttir
eru í miklu uppáhaldi hjá henni.
Erla Þóra fermdist á pálma-
sunnudag í Laugarneskirkju vorið
2011. „Fermingarveislan mín var
ekkert smá f lott. Hún var haldin
í Iðnó og var boðið uppá alls
konar smárétti og líka lambalæri
með öllu tilheyrandi og svo auð-
vitað fermingatertu líka. Ég var
í frekar einföldum hvítum kjól
og bleikum skóm,“ segir hún og
bætir við að þetta hafi verið mjög
eftirminnilegur og skemmtilegur
dagur með öllu fólkinu hennar.
Graskerssúpan hennar Erlu er
spennandi kostur fyrir ferming-
arnar. „Mér finnst súpur geta
verið ótrúlega sniðugar í veislur
og þessi er einstaklega góð og ein-
föld og hægt að leika sér svolítið
með hana. Ég ætla að hafa önd í
súpunni minni en það er hægt að
skipta henni út fyrir t.d. kjúkling,
baunir eða jafnvel sjávarrétti.
Uppskriftin er frekar stór eða
fyrir 20-25 manns.“
Graskerssúpa
með andaconfit
5 skallot laukar
5 hvítlauksgeirar
2 jalapeno
Smá bútur af engifer, ca 4 cm
3 msk. rautt karrímauk
7 lítrar soð (kjúklinga eða græn-
metis)
3 lítrar rjómi
1 lítrar kókosrjómi
1-2 sítrónugras (má sleppa)
6 grasker (butternut squash)
smakkað til með salti og sítrónu-
safa
Graskerið er skorið niður og
bakað í ofni þar til það er
mjúkt og byrjað að rist-
ast. Laukar, jalapeno
og engifer skorið
í litla bita og
brúnað í
potti. Karrí
er bætt við
og síðan
soði,
rjóma og
sítrónu-
grasi.
Látið
malla í að
minnsta
kosti 40
mínútur en
gott að hafa
lengur. Sítrónu-
grasið er þá tekið
upp úr og graskerinu
bætt út í og allt maukað
saman t.d. með töfrasprota og
síðan sigtað. Súpan er smökkuð til
með smá sítrónusafa og salti.
Ég ætla að bera þessa súpu
fram með andaconfit og graskers-
fræjum en það má nota hvað sem
er t.d. kjúkling eða baunir. n
Graskerssúpa að hætti landsliðskokks
Erla Þóra Bergmann fermdist 2011. Hún gefur uppskrift að mjög góðri súpu
fyrir fermingarveislurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Graskerssúpa með andaconfit.
Bæði holl, falleg og góð.
Mér finnst súpur
geta verið ótrúlega
sniðugar í veislur og
þessi er einstaklega góð
og einföld og hægt að
leika sér svolítið með
hana.
20 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR