Fréttablaðið - 17.03.2023, Page 38
Um leið og
ég komst
að því að
ég gæti
unnið
sem köku
skreytari,
þá fannst
mér alveg
sjálfsagt að
læra það.
Ég elska
að skreyta
með litum.
Eins og frægt er orðið þá
kom Guðrún Erla Guðjóns-
dóttir, sá og sigraði í keppn-
inni um köku ársins 2023 og
töfraði dómnefndina upp úr
skónum með sinni fallegu
köku, bragði og áferð.
Guðrún Erla hefur haft áhuga á
bakstri frá því hún var á barnsaldri
og hefur mikla ástríðu fyrir starfi
sínu sem bakari og enn meiri fyrir
námi sínu þar sem hún er að læra
konditor. Hún elskar að skreyta
kökur og er búin að læra mörg góð
leynitrix sem vert er að kunna
þegar fallega og ljúffenga köku skal
gera.
Hún kom fram í þættinum Mat
og heimilum á dögunum og galdr
aði fram dýrindis tertu og kenndi
áhorfendum nokkur góð leynitrix
þegar unnið er með marsípan, til
dæmis þegar rósir eru gerðar. Guð
rún er 22 ára og útskrifaður bakari.
Þessa dagana stundar hún fram
haldsnám í konditor í Danmörku.
Áhugasöm um kökuskreytingar
„Ég er áhugamanneskja um köku
skreytingar og langaði að bæta
við mig og vera enn betri í því sem
ég er að gera,“ segir Guðrún Erla.
Hún segist alltaf muna eftir sér í
eldhúsinu. „Minningin er ávallt
ljóslifandi í huga mér þegar ég
fylgdist með mömmu gera þessa
klassísku súkkulaðiköku. Þá sat ég
uppi á borði hjá henni og fékk að
fylgjast með.“
Spurð segir Guðrún Erla að hún
hafi verið fljót að finna sína hillu
og velja hvað hana langaði til að
gera. „Um leið og ég komst að
því að ég gæti unnið sem köku
skreytari, þá fannst mér alveg
sjálfsagt að læra það. Ég elska að
skreyta með litum. Finnst svo
fallegt að gera litríkar og skemmti
legar kökur. Þegar einhver bakari í
salnum í Mosfellsbakaríi á afmæli,
geri ég ávallt súkkulaðiköku
með mynd af þeim. Mér finnst
skemmtilegast að gera sams konar
liti af smjörkremi og hef þær alveg
svakalega litríkar og sætar,“ segir
Guðrún Erla dreymin á svip.
Snúðarnir á sveinsprófinu bestir
Í náminu hefur Guðrún Erla prófað
sig áfram með að baka alls konar
bakkelsi og kökur og ekki síst þegar
hún hefur verið að prófa sig áfram
í bakstrinum. Þegar hún er spurð
hvað henni finnst það besta sem
hún hefur bakað stendur ekki á
svari. „Ég gerði snúða á sveinspróf
inu mínu, sem voru með kanil ,
karamellu og kókosfyllingu. Mér
fannst þeir alveg rosalega góðir.“
Margar áskoranir fylgja því
að vera bakari og vaktirnar geta
stundum verið strembnar. „Ég
átti rosalega erfitt með að mæta á
vakt í vinnunni. Fannst svo erfitt
að þurfa að vakna klukkan þrjú
að nóttu. Núna finnst mér ekkert
eðlilegra en að mæta snemma,“
segir Guðrún Erla en vinnutíminn
venst.
Kakan í fyrra í uppáhaldi
Guðrún Erla vann í ár verðlaunin
fyrir köku ársins eins og áður hefur
komið fram og gerði sér lítið fyrir
og tók líka þriðja sætið. „Kakan
sem lenti í þriðja sæti er kakan sem
ég var búin að ákveða að gera lengi.
Hún er smá meiri nammikaka.
Það er brownie í henni, smá skyr,
síðan karamellusúkkulaðimús.
Viku fyrir keppnina ákvað ég að
líka gera eina köku í viðbót sem
er aðeins ferskari og fyrir hana
hreppti ég fyrsta sætið,“ segir Guð
rún Erla en bætir því jafnframt við
að kakan hennar, sem lenti í öðru
sæti í keppninni í fyrra, sé hennar
uppáhalds.
Í þættinum Mat og heimilum
á dögunum svipti Guðrún Erla
Skemmtilegast að gera litríkar kökur
Guðrún Erla töfraði fram dýrindis tertu í þættinum Mat og heimilum á dögunum og sviptir hér hulunni af uppskriftinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Marsipantertan er fagurlega skreytt með marsipanrósum sem Guðrún Erla
gerði með höndunum. Tertan er fullkomin í fermingarveisluna og páska-
boðið og gleður svo sannarlega augað með fegurð sinni.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
hulunni af nokkrum leynitrixum
við köku skreytingar og gaf áhorf
endum góð ráð. Hún bakaði dýr
indis marsípantertu skreytta með
marsipanrósum sem má segja að
sé fullkomin í fermingarveisluna
og páskaboðið og sem flestir ættu
að ráða við að galdra fram. Hér
ljóstrar hún upp uppskriftinni að
tertunni og nú er bara að vinda sér
í baksturinn.
„Allir ættu að geta útbúið þessar
marsipanrósir sem ég skreytti
tertuna með, það er miklu einfald
ara en marga grunar. Þetta kemur
allt bara með æfingunni. Æfingin
skapar meistarann. Meistarinn
minn sagði líka alltaf: „Þú sýnir
mestan áhuga á faginu þegar þú ert
duglegur að æfa þig eftir vinnu og
svoleiðis“.“
Marsipanterta með
súkkulaðimús og berjum
210 g kransi XX Odense (marsipan)
210 g sykur
210 g smjör (við stofuhita og skera
í kubba)
4 stk. egg
84 g hveiti
20 g kakó
Blandið saman kransa og sykri
með spaða í hrærivél. Þegar það
er komið saman er sett smátt og
smátt af smjöri út í á meðan hrært
er hægt með spaðanum. Þegar allt
smjörið er komið út í, er eitt egg
sett út í og síðan annað og koll af
kolli á meðan hrært er. Sigtið hveiti
og kakó og blandið út í þegar eggin
er öll komin út í. Setjið á bökunar
plötu og sléttið út. Setjið síðan inn í
ofn á 200°C í 1015 mínútur.
Súkkulaðimús
100 g mjólk
155 g mjólkursúkkulaði
200 g rjómi
2 g matarlímsplötur
Leggið matarlímið í bleyti.
Hitið mjólkina að suðu og setjið
matarlímið út í, hellið svo yfir
súkkulaðið og blandið vel saman.
Léttþeytið rjóma og blandið við
súkkulaðið þegar það er komið í
38°C hita.
Á milli botnanna
1 box stór jarðarber
1 box hindber
1 box kókosbollur (minni stærð-
ina)
Súkkulaðimús (uppskrift að ofan)
Yfir tertuna og til skrauts
Marsipan sem búið er að fletja
út (hægt að kaupa í mörgum
bakaríum)
Marsipanrósir eða það sem ykkur
langar að skreyta tertuna með
Samsetningin
Takið hring (eins og piparköku
form) að vali og stingið út tvo
súkkulaðibotna með þeim hring.
Takið einn botn og hafið neðst í
forminu.
Skerið fersk jarðarber og
hindber í bita og setjið á neðsta
botninn. Skerið svo kókosbollur í
tvennt og setjið ofan á berin. Hellið
súkkulaðimúsinni yfir þetta og
setjið síðan hinn botninn ofan á,
og frystið þetta í sólarhring.
Takið tertuna úr forminu og
látið hana standa á borðinu í
minnst 2 klukkustundir áður en
hún er skreytt. Rúllið marsipani
yfir hana og skreytið með skrauti
að eigin vali. Til dæmis með
marsipanrósum og skreytið með
flórsykri eins og gert er í þættinum
Mat og heimilum. n
4 kynningarblað A L LT 17. mars 2023 FÖSTUDAGUR