Fréttablaðið - 17.03.2023, Side 44
Það var alveg smá
súrrealískt að vera allt í
einu með þeim í partíi.
Nína Dögg Filippusdóttir,
leikkona
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
Snorri Aðalsteinsson hefur
sent frá sér kvæðakver, eins
og hann á kyn til, knúið
áfram af krafti hagyrðinga
kvölda.
Vaðbrekkuættin úr Hrafnkelsdal á
löndum austur getur ekki hætt að
setja saman stökur. Það er henni
eðlislægt að setja saman hnyttnar
og gamansaman vísur, svo stundum
svíður undan.
Þjóðfrægur var Hákon Aðalsteins
son, sá stórkostlegi hagyrðingur
sem kvaddi 2009 – og Ragnar Ingi
bróðir hans er líklega Íslendinga
fróðastur um gamla og góða bragar
hætti, en er aukinheldur völundur í
vísnagerð.
Frændinn mætir til leiks
Bróðursonur þeirra, Snorri Aðal
steinsson, hefur nú sent frá sér
bráðskemmtilegt kver með ljóðum
og lausavísum, svo og efni af hag
yrðingakvöldum sem hann hefur
tekið þátt í á síðustu árum undir
stjórn skagfirska skáldsins Hjálmars
Jónssonar, þess rímnasnillings.
Og það hefur verið á þessum
kvöldum, frammi fyrir hundruðum
vísnaþyrstra áhorfenda, sem Snorri
hefur öðlast sjálfstraustið, slíkar
hafa viðtökurnar verið.
„Þótt Vaðbrekkumenn hafi alltaf
verið þeirrar náttúru að vilja standa
þar sem til þeirra sést, hef ég sjálfur,
ef mig skyldi kalla, verið heldur
lítið fyrir að trana mér fram,“ segir
Snorri.
En hag y rðingak völdin hafa
sumsé hækkað hökuna.
„Ég er náttúrlega búinn að yrkja
alla mína tíð, eins og ég á kyn til,“
rifjar vísnasmiðurinn upp. „Þetta
er bara eitthvað sem maður ræður
ekki við. Vísurnar verða bara til af
sjálfu sér. Renna upp úr manni. Það
þarf svo lítið til, vittu til. Kannski
bara kankvíst samtal. Eða fugl á
sveimi. Ský á himni,“ segir skáldið.
Þá var friðurinn úti
Hann var ekkert endilega á því að
senda frá sér kver með kvæðum
sínum. En Ragnar Ingi, föðurbróðir
hans, komst í staflann, „og þá var
friðurinn úti,“ segir Snorri. „Frænda
mínum er svo annt um allan kveð
skap að hann getur ekki unnt sér
hvíldar fyrr en hann kemur honum
fyrir almenningssjónir.“
Og því birtist nú landsmönnum
bókin Gullvör eftir Snorra, en
heiti hennar er dregið af hjarta
góðum verndarvætti sem heldur til
í Hrafnkelsdal. Sagan segir að hún sé
búendum og börnum dalsins leiðar
vísir þegar á þarf að halda. Vitji hún
einhvers í draumi, viti það á gott.
Annars komi kvæðin hvaðanæva.
„Og stakan lifir góðu lífi, maður
lifandi,“ segir Snorri og lygnir aftur
augum. „Það fylgir henni einhver
kynngikraftur,“ bætir hann við.
„Þetta finnur maður svo glatt á
hagyrðingakvöldunum. Ef enda
línan hittir almennilega í mark þá
springur salurinn. Fyndnin verður
ekki fyndnari nema í góðri stöku,“
segir Hrafnkelsdælingurinn Snorri
Aðalsteinsson frá Vaðbrekku. n
Hagyrðingaættin heldur sínu striki
Skáldið Snorri.
„Þótt Vað-
brekkumenn
hafi alltaf verið
þeirrar náttúru
að vilja standa
þar sem til
þeirra sést, hef
ég sjálfur, ef
mig skyldi kalla,
verið heldur
lítið fyrir að
trana mér fram.“
MYND/AÐSEND
Af hagyrðingamótum
Þið hagyrðinga heyrið senn,
henda frá sér drápunum.
og kvíðafulla kvæðamenn,
að koma út úr skápunum.
Kvæðið næstu kynslóð berst,
og kannski ekki úr vegi.
Það hugsanlega gæti gerst,
að gömlu skáldin deyi.
Á æskuslóðum
Einatt er Amor skæður,
á æskunnar fornu slóð.
Hann blés í gamlar glæður,
geymdum við dýran sjóð.
Enn hún er fögur sem forðum
með fölskvalaust augnaráð,
kunnugleg alúð í orðum,
engum í veröld háð.
Hvar liggja hennar lífsins gildi,
sem lærði ég daginn þann,
er áður hún ekki vildi
elska dreifbýlismann?
Ef ætti í örlitlum sjóði,
inneign í hennar sál,
þá gæti ég líkt og af ljóði,
lesið það hjartans mál.
lovisa@frettabladid.is
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona
fer með lítið hlutverk í fjórðu og
síðustu þáttaröðinni um norsku
auðmennina í Exit. Nína leikur við
burðaskipuleggjanda í þáttunum og
var við tökur í viku á Spáni.
„Þetta er smáhlutverk. Það var
gaman að fá að vera með. Karakt
erinn sem ég leik sér um að skipu
leggja gleðiselskap, er partíplanari
og heldur framvindunni gangandi,“
segir Nína og að hún sé ekki eini
íslenski leikarinn því Björn Hlynur
Haraldsson fari líka með lítið hlut
verk. Gísli Örn Garðarsson, eigin
maður hennar, leikstýrir tveimur
þáttum í seríunni, þeim sem Nína
leikur í, en hægt er að horfa á hana
alla í sjónvarpsveitu RÚV.
„Það var ótrúlega skemmtilegt
og spennandi að kynnast þessum
strákum og öllum þessum leikur
um. Maður er búinn að fylgjast með
öllum seríunum og það var alveg smá
súrrealískt að vera allt í einu með
þeim í partíi,“ segir Nína létt.
Spurð um norska bransann og
hvort hann sé mjög ólíkur þeim
íslenska segist hún ekki hafa fundið
fyrir því. Það hafi komið saman
hópur þarna sem hafi unnið að sam
eininlegu markmiði og gert það vel.
„Það voru stórar og mannmargar
senur. Mikið af fólki og mikið að
gerast. Það var mikið verið að vinna
með nekt og alls konar svoleiðis sem
var gert á ótrúlega faglegan hátt og
manni leið aldrei illa eða þannig
að maður væri staddur í röngum
bransa.“
Hún segir að þó svo að þættirnir
fjalli um menn sem misnota kókaín
og konur þá sé einnig verið að skoða
stærri samfélagsleg mál sem komi til
dæmis okkur Íslendingum sannar
lega við.
„Þetta fjallar um vindorkuna og
það er ótrúlega áhugavert það sem
er að gerast í þeim málum og alveg
viðfangsefni fyrir okkur Íslendinga,
hvort við eigum að beisla hana
og hvernig á að deila henni og svo
framvegis,“ segir Nína og heldur
áfram:
„Það er fullt af alvöru spurning
um í þáttunum sem skipta máli,
fyrir Ísland. Þótt þetta gerist í Nor
egi þá er hægt að heimfæra það á
okkar veruleika. Þetta er ekki bara
kókaín og kellingar,“ segir hún og
hlær. n
Meira en bara kókaín og kellingar
Nína Dögg í hlutverki sínu í Exit. MYND/AÐSEND
Gísli Örn leikstýrir og Nína leikur í
nýjustu seríu Exit.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
16 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 17. MARS 2023
FÖSTUDAGUR