Fréttablaðið - 17.03.2023, Side 45
Það er svo gaman að fá
að vera einhver allt
önnur manneskja en
maður er.
Catia Andreia de
Brito Pereira
Óþrjótandi glæpablæti
Íslendinga er vel þekkt en
morðgátur geta verið góð leið
til að svala þessum myrka
þorsta landans.
arnartomas@frettabladid.is
Morðgátur hafa lengi verið vinsæl
afþreying og teygja sig að minnsta
kosti aftur til fyrri hluta síðustu
aldar þar sem áhugamannaleik-
hús settu á svið morðgátuleikrit
fyrir áhorfendur. Viðburðirnir fóru
venjulega fram í heimahúsum þar
sem gestir hvoru hvattir til að klæða
sig í búninga og bregða sér í hlutverk
til að taka þátt í uppsetningunni.
Meðal elstu dæma um morðgátu-
uppsetningar voru kvöldverðarsýn-
ingarnar hjá hinum alræmda Grand
Guignol-leikhóp í París í Frakklandi
seint á 19. öld. Hópurinn var þekkt-
ur fyrir að beita öllum brögðum til
að skilja áhorfendur sína eftir agn-
dofa – eða þaðan af verra.
Í grein New York Times frá 1957
segir að það hafi algengt að áhorf-
endur hafi kastað upp eða fallið í
yfirlið á meðan á sýningum Grand
Guignol stóð. Í eitt skipti, á sérstak-
lega hrottafenginni uppsetningu,
segir sagan að liðið hafi yfir mann í
áhorfendahópnum svo að kallað var
til húslæknisins sem var hvergi að
finna. Þegar maðurinn rankaði við
sér báðust starfsmenn afsökunar
á því að hafa ekki fundið lækninn
á svæðinu en maðurinn útskýrði
daufur í dálkinn: „Ég er læknirinn!“
Krimmi í slippnum
Hótel Reykjavík Marina hefur
að undanförnu tekið upp á því
að halda morðgátupartí þar sem
Íslendingar fá að svala krimmablæt-
inu í glæpablöndnu andrúmslofti
slippsins. Viðburðirnir hafa vakið
mikla lukku og hafa kvöldin hingað
til öll verið fullbókuð. Hugmynda-
smiðurinn að baki hótelgátunum er
Catia Andreia de Brito Pereira sem
hefur sjálf tekið þátt í morðgátum í
heimahúsum.
„Það er einna helst óvissan,“ svar-
ar Catia aðspurð um hvað sé svona
spennandi við morðgátur. „Fólk
bókar sig í partíið og fær svo frekari
upplýsingar þegar nær dregur eins
og hvaða persónu það mun leika og
í hvers konar fötum það á að klæð-
ast. Þú færð líka gestalistann með
lýsingu á fólkinu sem tekur þátt í
gátunni. Við mælum alltaf með að
fólk fari alla leið því þá fær það mest
út úr upplifuninni.“
Catia segir það undir hverjum
gesti komið hversu mikið þeir séu
tilbúnir að bregða sér í persónuna
sem þeim er úthlutað og sumir
verða ansi eftirminnilegir.
„Það eru sumir sem bæta ýmsu
við persónurnar út frá sínum eigin
hugmyndum sem getur verið
skemmtilegt. Það er svo gaman að
fá að vera einhver allt önnur mann-
eskja en maður er.“
Glæpablæti Íslendinga
Glæpasögur hafa lengi verið Íslend-
ingum hugleiknar en sækja enn í sig
veðrið eins og sjá má á þeim sturl-
uðu vinsældum sem hlaðvörp um
sönn sakamál njóta í dag.
„Það hlusta næstum allar konur á
Íslandi í dag á þessi sakamálahlað-
vörp!“ segir Catia hlæjandi. „Ég held
við höfum öll þörf á því að fara út
fyrir okkar persónu og ramma og
morðgátan er svo tilvalinn vett-
vangur til þess.“
Áhugasamir geta kynnt sér næstu
morðgátuviðburði á Facebook-síðu
hótelsins en næsta gáta verður þann
7. apríl. n
Morðgátur eru móðins
Hver hleypti af byssunni? Og hver var eiginlega drepinn? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Grand Guignol-leikhúsið gekk oft
fram af gestum sínum.
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes-
og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlana og breytingar
á aðalskipulagi:
1. Brjánsstaðir lóð 4 L213014; Hádegishóll; Þjónustuhús auk þyrpingu gistihúsa; Deiliskipulag – 2301017
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags
á lóð Brjánsstaða lóð 4, L213014. Í deiliskipulaginu felst heimild til að byggja þyrpingu lítilla gistihúsa auk þjónustuhúsa og
húsnæðis fyrir starfsfólk með fasta búsetu ef á þarf að halda. Nýtingarhlutfall lóðar geti orðið allt að 0.1. Lýsing vegna aðal-
skipulagsbreytingar sem tekur til breyttrar landnotkunar innan svæðisins er í kynningu.
2. Skálabrekka-Eystri L224848; Grjótnes- og Hellunesgata, landbúnaðarlóðir; Deiliskipulag – 2210051
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
landbúnaðarlóða í landi Skálabrekku-Eystri. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 17 landbúnaðarlóðum á um 75 ha svæði.
Stærðir lóða eru frá 30.488 fm til 45.733 fm. Innan lóða er gert ráð fyrir heimild til að reisa eitt íbúðarhús ásamt aukahúsi á
lóð innan nýtingarhlutfalls 0,03.
3. Hnaus 2; Mosató 3 L225233; Stækkun hótels; Aðalskipulagsbreyting – 2207020
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur
til aukins umfangs og heimilda fyrir uppbyggingu á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi á lóð Mosató 3 L225233. Gerð
verður breyting á töflu í kafla 2.4.1 um verslun og þjónustu. Gerð verður grein fyrir auknu umfangi hótels með gistiplássi fyrir
allt að 60 manns. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn á lóð hótelsins, heimilt er að byggja hæð ofan á hótelið þannig að
byggingin verði 2 hæðir, án kjallara. Heildarbyggingarmagn innan lóðar eykst úr 2.000 m2 í allt að 3.000 m2 og hámarksfjöldi
herbergja eykst úr 20 herbergjum í 27 herbergi.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga og nýrra
deiliskipulagsáætlana:
4. Hald á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211044
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
fjallaselsins Halds á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert
er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra skála. Annar er ætlaður fyrir gistingu og hinn getur verið skemma/hesthús. Gisting getur
verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um 3,9 ha
5. Versalir á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211042
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
fjallaselsins Versala á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins. Í Versölum eru
þrír skálar, tveir gistiskálar og hesthús með hestagerði. Annar gistiskálinn og hesthúsið er í eigu Ásahrepps og Rangárþings
ytra, hinn gistiskálinn er í einkaeigu. Gisting getur verið fyrir allt að 45 gesti. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha.
6. Úthlíð 1 L167180; Frístundabyggð svæði 5a; Deiliskipulag – 2302034
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
hluta frístundabyggðar í landi Úthlíðar 1 L167180. Innan svæðisins sem deiliskipulagið tekur til eru lóðir við göturnar Djákna-
hlíð, Djáknaveg, Djáknabrúnir, Mosabrúnir og Mosaskyggni. Á svæðinu er deiliskipulag í gildi, við gildistöku þessa skipulags
fellur úr gildi sá hluti sem tekur við framlagðs deiliskipulags innan núgildandi deiliskipulags.
7. Bjarnastaðir 1; Tjarnholtsmýri 1-15; Landbúnaðarsvæði; Skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingarheimilda;
Deiliskipulag – 2301077
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipu-
lags sem tekur til lóða við Tjarnholtsmýri 1-15. Í deiliskipulaginu felst skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingar-
heimilda. Heimilt verður að byggja íbúðarhús með bílageymslu/geymslu og aðstöðuhús/hesthús. Nýtingarhlutfall lóða má
vera allt að 0,05.
8. Sjónarhóll L198871; Nýr byggingarreitur og skilmálar; Eldri viðbætur; Deiliskipulagsbreyting – 2301071
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu deiliskipulagsbreytingar vegna
bæjartorfu Sjónarhóls L198871 í Ásahreppi. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur B3 innan marka deili-
skipulagsins. Innan reitsins er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarbygginga tengdar starfsemi búsins.
9. Holtakot lóð L176853; Skilgreining lóðar og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301081
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur
til 5,8 ha lóðar Holtakots lóð L176853. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarheimilda innan svæðisins þar sem gert
er ráð fyrir að heimilað byggingarmagn á svæðinu verði allt að 1000 m2, hámarksnýtingarhlutfall er um 0,017. Leyfi er fyrir
sex byggingum og hámarksstærð hverrar byggingar er 200 m2. Heimilt er að byggja íbúðarhús ásamt mögulegu gestahúsi,
gróðurhúsi, geymslu og frístundahúsi. Umrædd lóð er samkvæmt aðalskipulagi bæði innan frístundasvæðis og landbún-
aðarsvæðis.
10. Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag – 2301053
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í
deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7,
spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða
annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði.
11. Hlíðarás (Berustaðir 2 land 1) L207089; Skilgreining lóða og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301052
Hreppsnefnd Ásahrepp samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
Hlíðaráss (Berustaðir 2 - land 2) L207089. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús auk véla-
reið- og/eða tamningaskemmu allt að 800m², hámarkshæð er 6,5m. Hesthús eða gripahús má vera allt að 300m², hámarks-
hæð húss er 6m. Gestahús má vera allt að 80m², hámarkshæð húss er 5,5m.
12. Engjavatn L218342; Byggingarreitur og byggingarmagn; Deiliskipulag – 2302002
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til land-
spildunnar Engjavatns L218342. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingarreit undir íbúðarhús ásamt bílgeymslu og hesthúsi.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu-
tíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum
sveitarfélaganna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is.
Mál 1-3 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 6. apríl 2023.
Mál 4-12 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 28. apríl 2023.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið
skipulag@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 1717. MARS 2023
FÖSTUDAGUR