Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 11
Öldrun er óumflýjanlegur hluti af
lífinu, þegar við eldumst söfnum
við að okkur þekkingu, lífsreynslu
og visku sem getur verið okkur
sjálfum og öðrum dýrmæt. Þakk-
læti, sterkari og dýpri tengsl við fjöl-
skyldu, vini og ástvini og ekki síður
oft og tíðum aukinn tími til að sinna
áhugamálum sem veita ánægju og
aukna lífsfyllingu.
Það eru margir kostir sem fylgja
því að eldast, en einnig áskor-
anir. Með hækkandi aldri er ekki
ósennilegt að fólk þurfi aðstoð og
stuðning við dagleg verkefni, sér
í lagi þegar heilsan tekur upp á að
bregðast. Þörfin fyrir aðstoð verður
stundum meiri með aldrinum og
því er mikilvægt að fólk hafi mögu-
leika á að þiggja þjónustu sem
það getur treyst á. Þjónustu sem
eykur öryggi, lífsgæði, valdeflir og
mætir þjónustuþörf eins og best
verður á kosið hverju sinni. Þegar
við spyrjum eldra fólkið okkar út
í óskir sínar eru svörin oftast á þá
leið að einstaklingurinn vill geta
búið heima eins lengi og kostur er.
En svo það sé mögulegt verðum við
að skapa aðstæður sem styðja við
þeirra óskir.
Um mitt ár 2019 var undirritaður
samningur milli Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ) og Öldrunarheimila
Akureyrar (ÖA) sem fól m.a. í sér
heimild til að hefja nýsköpunar- og
þróunarverkefni um sveigjanleg
dagdvalarrými. Þar var áhersla
lögð á þverfaglega teymisvinnu
til að skapa markvissa og öf luga
starfsemi. Sveigjanleg dagdvöl sem
var þjónusta alla daga, allan ársins
hring sem aðlagaði sig þörfum ein-
staklingsins. Áhersla var lögð á að
styðja notendur dagþjálfunar til
sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því
að ef la færni og sjálfsbjargargetu
heima og í dagþjálfun.
Sveigjanleg dagþjálfun
Hugmyndafræði dagþjálfunar eða
dagdvalar er að vera stuðnings-
úrræði við eldra fólk sem býr í
heimahúsum. Markmiðið með
þjálfuninni er að viðhalda færni og
getu fólks til að búa áfram heima
og er ávinningurinn af því að koma
í veg fyrir eða seinka vistun á hjúkr-
unarheimili. Fjölbreytni og sveigj-
anleiki úrræða skiptir höfuðmáli og
veitir sveigjanleg dagþjálfun marg-
víslegan ávinning sem getur hjálpað
til við að auka lífsgæði.
Einn af helstu kostum þess-
arar þjónustu er möguleikinn til
að hlusta á það sem eldra fólkið
vill og sníða þjónustuna að þess
áherslum. Þjálfun sem þessi getur
veitt verulegan ávinning m.a. með
bættri andlegri og tilfinningalegri
líðan. Fjölskyldumeðlimir eru oft og
tíðum þeir aðilar sem bera ábyrgð á
eldri ástvinum sínum og það getur
á tímum verið krefjandi.
Með því að nýta sveigjanlega
dagþjálfun geta umönnunarað-
ilar dregið sig í hlé og sinnt sínum
verkefnum á sama tíma og þeir vita
að ástvinir þeirra fá þá umönnun
sem þörf er á. Þá hefur félagsleg ein-
angrun verið vandamál meðal eldra
fólks, sérstaklega þeirra sem búa
einir eða hafa takmarkaða hreyfi-
getu. Með sveigjanlegri dagþjálfun
aukast samskipti við aðra sem getur
hjálpað til við að koma í veg fyrir
einmanaleika, kvíða og þunglyndi.
Verkefnið hefur skilað árangri
Verkefnið hefur skilaði sýnilegum
árangri, það er ótvíræður ávinn-
ingur af sveigjanlegri dagþjálfun í
formi bættra lífsgæða fyrir notend-
ur og fjölskyldur þeirrar. Notendur,
aðstandendur og starfsfólk eru að
mestu sammála um að úrræðið hafi
bætt andlega líðan og hafi stuðlað
að viðheldni og jafnvel framförum
í líkamlegri færni og getu. Úrræðið
er nú þegar orðinn mikilvægur
hlekkur í þróun millistigsúrræða í
þjónustu við aldraða.
Rauði þráðurinn í niðurstöðum
framangreinds nýsköpunar- og þró-
unarverkefnis var að umsóknum
um hjúkrunarrými fækkaði. Þátt-
takendum fannst þeir fá þjónustu
sem veitti þeim tækifæri til að geta
búið lengur heima við öryggi, þar
sem þeim var tryggð sú aðstoð sem
þeir þurftu á að halda.
Þá upplifðu aðstandendur þeirra
sem tóku þátt í verkefninu einnig
aukið öryggi. Hér er um að ræða
þjónustu sem festa þarf í sessi til
framtíðar.
Vilji til að þjónusta eldra fólk
Samsetning mannfjöldans á Íslandi
er að þróast á þann veg að hlutfall
eldra fólks hækkar frá því sem áður
var og við þurfum að tryggja að
kerfin okkar verði tilbúin til þess
að styðja við þennan stækkandi
hóp. Það getum við gert með því
að koma til móts við fólk með fjöl-
breyttum úrræðum og þjónustu.
Ný viðhorf í þjónustu við eldra fólk
þar sem áhersla er lögð á aldursvænt
og styðjandi samfélag munu leiða
okkur að betri samfellu og sterkari
heildarsýn fyrir þjónustu við eldra
fólk.
Ávinningurinn af aðgerðum sem
þessum dregur úr álagi á ýmsum
sviðum heilbrigðismála eins og
t.d. heilsugæslu, félagsþjónustu og
hjúkrunarheimilum. Auk þess með
því að veita eldra fólki þjónustu
við hæfi og þörf hverju sinni verða
meiri líkur á auknum lífsgæðum og
sjálfstæði eldra fólks.
Markmiðið stjórnvalda er að bæta
lífsgæði eldra fólks með því viðhalda
færni og virkni einstaklingsins og
þar spila forvarnir, heilsuefling og
endurhæfing stóran þátt í heilbrigðri
öldrun þjóðarinnar. Það sýnir sig
einna best í þingsályktunartillögu
sem er nú í meðförum Alþingis.
Um er að ræða aðgerðaáætlun um
þjónustu við eldra fólk sem ætlað er
að vera leiðarvísir fyrir stjórnvöld
til að skapa skýra framtíðarsýn um
hvaða leiðir verði farnar til að bæta
þjónustu við eldra fólk og vinna
heildarstefnu sem felur í sér að eitt
þjónustustig taki hnökralaust við
af öðru, að ábyrgð á þjónustuþátt-
um milli aðila sé skýr og að gráum
svæðum verði útrýmt.
Um er að ræða aðgerðaáætlun
til fjögurra ára og er markmiðið að
tryggja að eldra fólki þjónustu við
hæfi, hvort sem um ræðir heima-
þjónustu á vegum sveitarfélaga eða
heilbrigðisþjónustu. n
Málarar
Við erum löggiltir málarar.
Tökum að okkur öll verkefni,
stór og smá. Gerum tilboð eða
tímavinnu og erum mjög sann-
gjarnir. Endilega hafa samband
í síma 782 4540 eða í
loggildurmalari@gmail.com
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
Ingibjörg Isaksen
þingflokks-
formaður
Framsóknar
Heima er best
Ávinningurinn af
aðgerðum sem þessum
dregur úr álagi á
ýmsum sviðum heil-
brigðismála eins og
t.d. heilsugæslu, félags-
þjónustu og hjúkr-
unarheimilum.
Erum við
að leita að þér?
Fréttablaðið skoðun 1129. mars 2023
MIðVIkuDAGuR