Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 33
Eimskip er yfir 100 ára gam- alt fyrirtæki og er leiðandi flutningafyrirtæki í Norður- Atlantshafi með sérhæfingu í flutningi á frystum og kældum vörum. Félagið er meðvitað um samfélagslegt mikilvægi sitt og sína sam- félagslegu ábyrgð. Agla Huld Þórarinsdóttir er sjálf bærnisérfræðingur hjá Eim­ skip. Hún segir að Eimskip leggi sig fram við að vera til fyrirmyndar og leiðandi í sjálfbærnimálum, bæði gagnvart umhverfi og samfélagi. „Við leggjum mikla áherslu á að þekkja þá áhættuþætti sem snúa að sjálfbærni í okkar rekstri og við vinnum markvisst að því að draga úr þeim,“ segir hún. Orkuskiptin eru lykilatriði „Það er ljóst að orkuskiptin eru lyk­ ilatriði bæði í okkar rekstri og fyrir samfélagið í heild. Við verðum að stuðla að sjálfbærari lausnum og ná að koma í veg fyrir að hitastig jarðar stígi upp fyrir 1,5°C,“ segir Agla en Eimskip hefur verið að vinna að mörgum áhugaverðum verkefn um varðandi orkuskipti „Nú er svo komið að allir hafnar­ kranar okkar á Íslandi eru drifnir rafmagni. Starfsmenn okkar og samstarfsaðilar lögðu gríðarlega miklu vinnu í að breyta krönum þannig að þeir gætu gengið fyrir rafmagni,“ segir Agla. „Annað verkefni sem við erum stolt af er landtenging skipa en í desember náðum við þeim áfanga að geta tengt skipin okkar, Detti­ foss og Brúarfoss, við rafmagn þegar þau eru í höfn. Með því náum við að slökkva á ljósavélum og draga úr kol efnisfótspori okkar auk annarra jákvæðra áhrifa á nærsamfélag okkar. Þetta var skemmtilegt verkefni sem við unnum einnig með mörgum góðum samstarfsað ilum.“ Eimskip hefur verið að skipta yfir í umhverfisvænni öku tæki, bæði með notkun metanbíla og nú síðast með því að fjárfesta í tveimur 15 tonna flutninga bílum knúnum rafmagni. Þetta eru miklar fjárfestingar og það að stíga þessi skref þýðir að við erum að fjárfesta í tækjum sem eru tvöfalt dýrari en sam bærileg ökutæki sem eru knúin jarðefnaelds­ neyti. „Kostnaður er einmitt ein af áskorununum þegar horft er til orkuskipta en tæki sem eru knúin grænni orku eru alla jafna dýrari og þetta hægir á endur nýjun flotans okkar. Það er klárt mál að hvatning frá yfirvöldum gegnir lykilatriði ef flýta á orku skiptum,“ segir Agla. Agla segir skiparekstur vega þyngst þegar kemur að kolefnis­ fótspori og að segja megi að það sé stóra verkefni Eim skips varðandi orkuskiptin. „Við erum nú að vinna verkefni sem snýr að því að kanna hag kvæmni á smíði tveggja skipa sem væru knúin grænni orku. Þetta yrði viðamikil fjárfesting og margir óvissuþættir en öllu máli skiptir að allir aðilar séu samstíga. Fyrirtæki verða að þora að taka stór skref sem snúa að orkuskiptum og stjórnvöld verða að tryggja að næg orka sé í boði á viðráðan legu verði. Við höfum ásamt Landsvirkjun unnið að því að kortleggja þarfir okkar og það nýtist vonandi öðrum atvinnu­ greinum. Orkuskipti mega ekki leiða til þess að jafnvægi raskist heldur verðum við öll að njóta þess ávinnings sem hlýst af þeim.“ „Það er stutt í 2040 þar sem Ísland hefur sett sér skýr mark mið um að verða kolefnishlutlaust. Við verðum sem samfélag að sam einast um leiðir og tryggja þetta stóra heimsmarkmið sem allir eru að horfa til,“ segir Agla Huld. Stór áskorun í orkuskiptum skipa Agla Huld Þórarinsdóttir er sjálfbærnisérfræðingur hjá Eimskip. Hún segir fyrirtækið leggja sig fram í sjálfbærnimálum fyrir umhverfi og samfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon BRInk í desember náði Eimskip þeim áfanga að geta tengt Dettifoss og Brúarfoss við rafmagn þegar þeir eru í landi. Með því næst að slökkva á ljósa- vélum og draga úr kolefnisfót- spori. Sjálfbærni snýst ekki bara um umhverfismálin „Þrátt fyrir að við horfum mikið til umhverfismála á okkar sjálfbærni­ vegferð þá er mikilvægt að hafa í huga að sjálfbærni snýst ekki bara um umhverfismál. Með sjálfbærni erum við að halda utan um alla þá málaflokka sem tryggja réttlátara samfélag. Málaflokkarnir eru margir og fyrirtækjum ber skylda til að meta sín áhrif og stuðla markvisst að betra samfélagi og nærumhverfi,“ segir Agla. Agla segir Eimskip leggja mikla áherslu á að tryggja öryggi og vel­ ferð starfsfólks. „Í því sambandi skiptir gríðarlega miklu máli að hafa góða öryggismenningu á öllum okkar starfsstöðvum. Til að tryggja öryggisvitund í okkar daglegu störfum þá leggjum við áherslu á fræðslu og góð samskipti. Öll störf eru metin út frá áhættu og hver hópur fær viðeigandi þjálfun. Við leggjum mikla áherslu á sér­ sniðna fræðslu fyrir ólík störf en síðan sameinumst við öll í árlegri öryggisviku þar sem við fram­ kvæmum fjölbreyttar æfingar sem styðja við góða öryggisvitund.“ Fjölbreyttur vinnustaður Eimskip er mjög fjölbreyttur vinnustaður. Félagið starfar í 20 löndum og þar starfar fólk frá yfir 40 löndum. Störfin eru einnig mjög fjölbreytt og það er því að mörgu að huga þegar unnið er að vellíðan starfsfólks. „Við settum á fót sér­ stakan heilsu­ og hamingjupakka sem tekur á fjölmörgum þáttum sem snúa að heilsu og vellíðan enda er mikilvægt að fjárfesta í heilsu starfsfólks og að stuðla að almennri vellíðan í vinnu. Góð heilsa snýst ekki eingöngu um heppni og því skiptir máli að styðja við fjölbreyttar þarfir starfsfólks,“ segir Agla enn fremur og bendir á að Eimskip hafi einnig innleitt samgöngustyrk sem fjölmargir starfsmenn hafa nýtt sér. „Við finn­ um fyrir mikilli ánægju með þessa viðbót auk möguleikans á því að nýta hana t.d. bara á sumrin. Svo er ein mjög skemmtileg hefð hjá Eimskip en við bjóðum starfs­ mönnum sem hafa hætt hjá okkur vegna aldurs alltaf í kaffi reglulega. Þetta er mjög skemmtilegur siður og ótrúlega gaman að fá fólkið okkar aftur í hús og um leið erum við að styðja við okkar fyrrverandi starfsfólk og bjóða upp á vettvang til að hittast,“ segir hún. „Fræðslan skipar stóran sess í okkar starfi og við erum stolt af því skrefi sem við tókum síðasta vor þegar við fórum af stað með leið­ togaþjálfun fyrir hóp starfsfólks á alþjóðavísu. Markmiðið með verk­ efninu er að byggja upp breiðan og fjölbreyttan hóp leiðtoga innan félagsins en í heildina hafa 74 ein­ staklingar frá 14 löndum farið í gegnum þjálfunina þar sem kynja­ hlutfall var jafnt. Þá er gaman að segja frá því að nú þegar hafa níu þátttakendur, þar af fimm konur, hlotið framgang í starfi í nýjum hlutverkum.“ Breytt regluverk Agla segir verkefnin fram undan ærin enda miklar breytingar á regluverki í tengslum við sjálf­ bærni, bæði sem snúa að rekstr­ inum og upplýsingagjöf. „Við vinnum hörðum höndum að því að kynna okkur regluverkin og þau áhrif sem þau hafa á okkar rekstur enda ljóst að þær breytingar munu hafa mikil áhrif á hvernig fyrirtæki vinna í framtíðinni.“ Að lokum segir Agla: „Ísland og heimurinn eru að stíga stór skref í átt að bættu samfélagi og hér þurfa allir að leggjast á eitt til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.“ n Eimskip hefur verið að skipta yfir í umhverfisvænni öku- tæki. Bæði með metan- bílum og nú síðast þá fjárfestum við í tveimur 15 tonna flutningabílum knúnum rafmagni. Agla Huld Þórarinsdóttir kynningarblað 19MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023 Sjálfbærni í rekStri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.