Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 34
Eftirspurn eftir sjálfbærni-
upplýsingum fyrirtækja
hefur aukist umtalsvert
með tilheyrandi umfangi
og kostnaði við öflun slíkra
upplýsinga.
Nýtt regluverk hefur og mun gera
fjölmörgum fyrirtækjum skylt
að afla og birta upplýsingar um
umhverfisþætti, félagslega þætti
og stjórnarhætti í sínum rekstri
og í tilfelli fjármálafyrirtækja eru
kröfurnar sérstaklega miklar.
Til að koma til móts við þessar
auknu kröfur hefur Creditinfo
kynnt Veru til sögunnar, sem sýnir
á einum stað helstu sjálfbærniupp
lýsingar um öll íslensk fyrirtæki.
„Vera er sniðin þannig að við
hjá Creditinfo söfnum saman
upplýsingum um sjálfbærnimál
fyrirtækja. Sjálfbærniupplýsingar
finnast víða hvort sem þær eru
í skjölum, á vefsvæðum eða í
skýrslum. Það er jafnvel fjöl
miðlaumfjöllun sem við erum að
fylgja, við erum að skoða dómsmál
og þetta er rosalega breið flóra af
gögnum sem eru ekki endilega að
birtast einu sinni á ári í skýrslum
sem fyrirtækin matreiða sjálf. Við
erum að toga gagnaupplýsingar
héðan og þaðan og birtum í einu
þægilegu viðmóti,“ segir Reynir
Smári Atlason, forstöðumaður
sjálfbærnimála hjá Creditinfo.
„Ástæðan fyrir því að við hjá
Credit info búum Veru til er að
regluverk tengt sjálfbærni er að
leggjast á fjármálamarkaðinn af
miklum þunga. Bankar og önnur
fjármálafyrirtæki þurfa ákveðin
gögn til að geta auðveldað sér þessa
upplýsingaskyldu,“ segir Reynir,
sem starfaði hjá Landsbankanum
í þessum málaflokki áður en hann
fór til Creditinfo. „Maður sá þetta
fyrir og aðgengi að gögnum var
mjög takmarkað. Það er í rauninni
það sem við erum að leysa.“
Geta uppfært upplýsingarnar
Virkar Vera fyrir öll íslensk fyrir-
tæki?
„Já, þú getur flett upp hvaða
fyrirtæki sem er og sömu upp
lýsingar birtast fyrir öll íslensk
fyrirtæki. Svo geta fyrirtækin farið
inn í Veru í gegnum Mitt Credit
info og uppfært upplýsingar um
eigið fyrirtæki. En það er aðeins
hluti af upplýsingum sem þú
getur uppfært eins og til dæmis
losun gróðurhúsalofttegunda. Við
erum með líkan sem áætlar losun
gróðurhúsalofttegunda en ef fyrir
tækin hafa birt slíka tölfræði þá
höfum við náð í þær upplýsingar.
Ef þú hefur reiknað losun
gróðurhúsalofttegunda frá þínum
rekstri og vilt setja þær þarna inn
þá getur þú uppfært þær upplýsing
ar fyrir þitt fyrirtæki á Mitt Credit
info. Ef þú veist í hvaða löndum
virðiskeðjan þín liggur þá getur þú
sett þær upplýsingar inn og það er
hitt og þetta sem þú getur uppfært
og miðlað á fjármálamarkaðinn á
einum stað,“ segir Reynir, en Vera
aðstoðar öll fyrirtæki, hvort sem
þau eru smá eða stór, að miðla upp
lýsingum tengdum sjálfbærni til
hagaðila á samræmdan máta.
En sumt geta fyrirtækin sjálf
ekki uppfært að sögn Reynis. „Þú
getur til að mynda ekki fjarlægt
fjölmiðlaumfjöllun sem þér þykir
óþægileg eða dómsmál. Í dóms
málum horfum við líka á tengd
félög. Ef þú ert að skoða eitt fyrir
tæki en stór eigandi þess fyrirtækis
birtist í dómsmálum þá sést það
í Veru og sömuleiðis að ef þú átt
stóran hluta í fyrirtæki sem er búið
að vera í dómsmálum þá birtir
Vera það líka. Þannig að í Veru er
mjög fjölbreytt yfirlit yfir þessa
umhverfis og félagslegu stjórnar
hætti,“ segir Reynir Smári.
Auðvelt er að sækja sjálfbærni
upplýsingar um íslensk fyrirtæki á
þjónustuvef Creditinfo. Þær sjálf
bærniupplýsingar sem sóttar eru í
Veru nýtast fyrirtækjum sem þurfa
að standa skil vegna komandi
regluverks á sviði sjálfbærni líkt og
SFDR, CSRD, CSDD o.fl.
Sjálfbærniupplýsingar sem eru
sóttar eru aðgengilegar í 30 daga
og á þeim tíma getur þú óskað eftir
því að fyrirtækið sem þú ert að
kanna uppfæri sínar upplýsingar á
Mitt Creditinfo.
Spurður út í mikilvægi sjálf
bærniupplýsinga hjá fyrirtækjum
segir Reynir:
„Fólk hugsar strax um orð spors
áhættu fyrirtækja og það er eitt
hvað sem fólk á að vera meðvitað
um. Það er ekki bara ef eitthvað
misferst á Íslandi heldur líka ef
atburðir eiga sér stað í virðiskeðju
fyrirtækja og jafnvel í virðiskeðju
fyrirtækja í sama geira. Þá er
eðlilegt að spyrja: Hvaðan kemur
innihaldið í vöruna sem ég er að
kaupa? Er það að koma frá löndum
þar sem þessir þættir eru í ólestri?
Það er eitt og svo eru líka beinar
fjárhagslegar afleiðingar tengdar
þessum upplýsingum.
Til dæmis hjá fyrirtækjum sem
eru undir viðskiptakerfi Evrópu
með losunarheimildir, ETS, líkt
og flugfélögin, fyrirtæki í þunga
iðnaði og bráðum skipafélög og
flutningafyrirtæki líka. Þú vilt fá
að sjá hversu mikið ákveðið fyrir
tæki er að losa af gróðurhúsaloft
tegundum og þá ferð þú mögulega
að spyrja hvað kostar þessi losun
félagið og hvað er hægt að gera til
að draga úr losun?“
Hægt að ná í öll skjöl á sama stað
Hefur eftirspurn eftir sjálf bærni-
upplýsingum aukist á síðustu
misserum?
„Eftirspurnin er þegar orðin
mikil í Evrópu og við teljum að
það sama verði uppi á teningnum
hérna. Það eru ýmis ráð gjafar fyrir
tæki og hugbúnaðarfyrirtæki á
íslenska markaðnum sem aðstoða
við að útbúa og birta sjálfbærni
upplýsingar fyrir fyrirtæki en það
eru allir að gera þetta á mismun
andi máta.
Það sem við hjá Creditinfo
gerum er að við sækjum þessar
upplýsingar, sláum inn og gerum
þetta samræmt. Hjá okkur er hægt
að spara mikla vinnu og sækja
skjölin öll á sama stað. Við erum
aðeins á undan löggjafanum. Við
sjáum fram á aukið regluverk á
sviði sjálfbærni hér á Íslandi í
sumar og á næsta ári og við teljum
að við séum þá tilbúin með lausn
til þess að auðvelda fjármálafyrir
tækjum að sækja allar þessar upp
lýsingar og sömuleiðis líka þegar
kemur að birgjamati. Það er verið
að kalla eftir mun ítarlegri upplýs
ingum um fyrirtæki í birgjamati.
Við erum að auðvelda fyrirtækjum
að miðla þessum upplýsingum
öllum í gegnum sama stað og lág
marka áreiti,“ segir Reynir. n
Sjá nánari upplýsingar um Veru á
ufs.is
Vera aðstoðar fyrirtæki með sjálfbærniupplýsingar
Reynir Smári Atlason er forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Upplýsingar sem eru aðgengilegar í Veru
n Losun gróðurhúsalofttegunda
n Losunarkræfni atvinnugreinar
n Dómsmál tengd fyrirtæki
n Viðeigandi mælikvarðar fyrir sjálfbærniáhættu og tækifæri
samkvæmt SASB/IFRS
n UFS-áhættumat þriðja aðila
n Staða heimsmarkmiða í aðfangakeðju fyrirtækis
n Sjálfbærniumfjöllun fyrirtækis í fjölmiðlum
n Sjálfbærniumfjöllun helstu viðskiptalanda
n Kynjahlutföll starfsmanna, stjórnarmeðlima og framkvæmda-
stjórnar fyrirtækis
n Flokkun atvinnustarfsemi samkvæmt flokkunarreglugerð ESB
(EU Taxonomy) mun birtast í Veru á seinni hluta ársins 2023.
n Önnur tengd skjöl, s.s. sjálfbærniskýrslur fyrirtækja á einum stað
Ástæðan fyrir því
að við hjá Credit-
info búum Veru til er að
regluverk tengt sjálf-
bærni er að leggjast á
fjármálamarkaðinn af
miklum þunga.
Reynir Smári Atlason
Vera er sniðin
þannig að við hjá
Creditinfo söfnum
saman upplýsingum um
sjálfbærnimál fyrir-
tækja. Sjálfbærniupp-
lýsingar finnast víða
hvort sem þær eru í
skjölum, á vefsvæðum
eða í skýrslum.
Reynir Smári Atlason
20 kynningarblað 29. mars 2023 MIÐVIKUDAGURSjálfbærni í rekStri